| :: welcome to Ríkir hf :: bloghome | Viltu vera memm? :: | ||
|
:: laugardagur, október 04, 2003 :: Það er komið í ljós að það var ekki næturfrost og því komumst við af stað um leið og mótinu líkur. Við eigum pantaðan rástíma kl. 13:00 fyrir tvö holl.
:: föstudagur, október 03, 2003 ::
Nei Halogen!!!!! Nú stakkst þú eigin haus í snöruna og verður hengdur nálægt Húsafelli ef þú mætir ekki í matinn.
Ha! Er matur á morgun?.....hvurslags...ég kemst í golf en verð bissí seinnipartinn
Hipp hipp húrra. Þá er það ljóst að það verður fullskipað til borðs á laugardaginn. Ætli ég og mín þurfum ekki að beyðast gistingar hjá hjónunum á Vallholti sé þess nokkur kostur. Síðan er bara að stjórna veðurtunglunum þannig að spáinn rætist.
:: fimmtudagur, október 02, 2003 ::
Ég man þegar Kiddi kom síðast í heimsókn til okkar borðaði hann tvo hraunbita en ég sá ekki hversu margar rjómakúlur það voru því ég þurfti að fara á klósettið.
Samþykkt, höldum okkur við fjallalambið. Ég er með stórt og myndarlegt grill, örugglega hægt að koma öllu fyrir á því í einu. Förum alla vega ekkert að sækja grill í önnur hús fyrr en í lengstu lög.
Ég hugsa að lausnin séu annaðhvort tvö lítil læri (2-2.5 kíló) eða eitt risalæri (4kg??) Það þarf örugglega að áætla ca. 500 gr. per mann ef lærið er með beini. Ég hugsa að ef Kristallur og frú kæmu þyrftum við að heilsteikja ekki minna en hrossalæri. Ég nenni ekki að éta kjúkling, höldum okkur við laaambalærin. Ég finn grillilminn kitla nasirnar :-) Vúha!
Rétt athugað Kristallur - má mikið vera að Strandamaðurinn sterki éti ekki forystusauðinn í heilu lagi þegar þið hjúin bregðið ykkur bæjarleið ;-)
Svo fór ég nú reyndar að hugsa; þurfum við TVÖ læri þegar Kristallur og frú verða sennilega ekki í mat. Þá eru þetta ekki nema sjö manns. Það er kannski spurning um að hafa eitt læri og svo eitthvað smærra með, t.d. kjúklingabringur.
Royal-búðingur er að sjálfsögðu borinn fram "Royale búðingur" þegar Ríkir mætast! Hvernig er það ef við grillum tvö læri, komast tvö læri fyrir á einu grilli? Við getum kannski fengið grillið hjá mömmu og pabba að láni ef þörf krefur. Eftirrétturinn úr Marsinu hljómar mjög vel, tala nú ekki um ef ís væri borinn fram með. Var að fletta í gegnum hinar gríðarstóru matriðslubók Nönnu, en þar virðist oft vanta einfaldleikann :-)
Það er vel þess virði að tékka á afsláttarlærum hjá Bónusfeðgum. Ég get séð um salat, kartöflur og annað meðlæti.
:: miðvikudagur, október 01, 2003 ::
Einhvernstaðar heyrði ég af lærum á 40% afslætti í Bónus, svo það er spörning hvort við Aldarína tékkum ekki á því. Það væri líka spurning með einhvern fljótlegan en ofboðslega góðan eftirrétt. Legg til að menn grafi sig niður í kokkabækurnar og finni einhverja snilld.
Eigum við ekki að ræða matarmál. Er þetta ekki spurning um að kaupa eins og tvö falleg læri í Nettó eða Bónus og svo taki einhver að sér að sjá um salat, kartöflur og annað meðlæti. Við grillum og snæðum á Vallholti 13 og ef einhver hefur áhuga á gistingu þar, þá er það velkomið. Gott að vita það samt fyrirfram þannig að við getum gert ráðstafanir.
|
[::..Þóknanlegt..::]
![]() Danskir teiknarar! ![]() Jón Baldvin ![]() Max Headroom ![]() Seona Dancing ![]() Türkmenbashy ![]() ![]() STÓRVAL [::.Tvífarinn.::] ![]() Mugi jón Hafstein-son ![]() William H. Macy Hauxon á MSN | |
|
|
||