| :: welcome to Ríkir hf :: bloghome | Viltu vera memm? :: | ||
|
:: laugardagur, nóvember 29, 2003 :: Það er spörgsmál hvort við hefðum ekki átt að taka upp á vídeó þegar Valli slafraði í sig höndinni svo að hann þurfi ekki að gera þetta aftur. Ég er ekki viss um að ég komist í þorraskap nema að geta sagt "oj" við einhvern.
:: föstudagur, nóvember 28, 2003 ::
Heyrði í flögmanninum áðan og fékk staðfest að ekki hafa verið gerðar ráðstafanir enn með bústað, enda hefur árið liðið á slíkum ógnarhraða að maður hefur varla tekið eftir því. Það hlýtur þó að gerast í mjög náinni framtíð að pöntuð verði glæsivilla við hæfi Ríkra einhvers staðar í fjarlægri byggð.
Já kusslass er með þorrablótsbústaðinn? Annars held ég að það verði lítið um þorramat í bústaðnum þennan veturinn miðað við hvernig honum voru gerð skil í fyrra. Ef ég man rétt stóð ég einn yfir vaskinum og slafraði í mig súrsuðum selshreifum á meðan þið hinir "kapparnir" horfðuð á með hrylling í augum.
:: fimmtudagur, nóvember 27, 2003 ::
Það er spörning. Var ekki flyvemasteren með bústað í jan. eða feb.?
:: þriðjudagur, nóvember 18, 2003 ::
Halogen hefur tekið að sér að vera au-pair hjá the Lárussons að beiðni móður Péturs. Samkæmt heimildum var óþrifnaðurinn á svo háu stigi að neyðarástand ríkti á Óðinsgötunni þegar Pétur opnaði glugga eða hurð. Pétur sem unnið hafði í Sorpu um skeið hafði tekið vinnuna með sér heim. Samkvæmt skýrslu Hreinlætisstofu sem Halogen skilaði inn í síðustu viku tók fjórar vinnustundir utan skipulagningu verklags að gera salernið þannig að það væri hratinu manns samboðið. Ef ég þarf að kúka í miðbænum, treysti ég að Halogen hafi unnið gott starf.
:: mánudagur, nóvember 17, 2003 ::
Annars má ég víst ekki pikka svona hratt á tölvuna. Stebbi segir að ef ég ætli einhverntíma að verða vinsælasti kennarinn megi ég bara nota tvo putta til að pikka í einu og láta aldrei líða skemmri tíma en þrjár sekúndur milli slaga, helst fimm.
Ég er alvarlega að spá í að leggja fyrir mig ballöðusöng og græða múltímonní á að syngja lög eftir útlendinga sem hafa verið útþynnt í dægurmálaútvarpinu og á lagalista Bylgjunnar. Ég myndi búa til svona djúpan titring í röddina til að veikja hnjáliði kvenna um heim allan. Ef Páll Rósinkrans getur sungið karókílög inn á diska og selt síðan í þúsundum, þá hlýt ég að geta það líka!!! Verst að Idolið var bannað fullorðnum, annars hefði ég sko tekið þátt og sungið t.d. Your song eftir Elton John, Smoke gets in your Eyes eða He aint heavy, he's my brother.
:: fimmtudagur, nóvember 13, 2003 ::
Ef ég væri þú þá myndi ég ekkert vera að hlusta á Heru. Þá er nú skemmtilegra að fylgjast með karókí keppninni Idol, þar sem upprennandi stjörnur úr Ölveri samkeppa. Hvað ef Kalli sjóari væri um það bil að komast á samning hjá Diskótekinu Dísu og væri síðan rekinn úr keppninni? Hvað þá?... Hann gæti gleymt ferlinum!
|
[::..Þóknanlegt..::]
![]() Danskir teiknarar! ![]() Jón Baldvin ![]() Max Headroom ![]() Seona Dancing ![]() Türkmenbashy ![]() ![]() STÓRVAL [::.Tvífarinn.::] ![]() Mugi jón Hafstein-son ![]() William H. Macy Hauxon á MSN | |
|
|
||