:: welcome to Ríkir hf :: bloghome | Viltu vera memm? ::
Vikulistinn (halogen)
- - - - - - - - - -
Vikulistinn (gmarius)
- - - - - - - - - -
Vikulistinn (hauxon)
- - - - - - - - - -
Vikulistinn (kristallur)
- - - - - - - - - -
Vikulistinn (Valgarduz)
- - - - - - - - - -
[::..Eldra stuff..::]

  :: mánudagur, janúar 12, 2004 ::

Eins og bent hefur verið á hér á blogginu, þá gekk undirritaður til liðs við flugmafíuna þann 19. desember síðastliðinn, í því skyni að herða enn frekar tök Ríkra á því sviði. Þá hefur félagi Halogen undanfarið misseri unnið að fyrstu YFIRTÖKU sem Ríkur framkvæmir í viðskiptalífinu, og árnar undirritaður honum heilla hér með fyrir það. Það eru því ýmis teikn á lofti til merkis um að hin réttláta hönd Ríkra styrkist nú og eflist til stórra verka og góðra. Yfirtaka Alheims nálgast óðum.

Það er því nauðsynlegt, nú þegar svo mikil og stór skref eru nýstigin, að Ríkir hittist brátt á sínum árlega Þorrafundi í sumarhúsi til skrafs og ráðagerða um næstu skref. GMaríus mun vera í startholunum með að útvega flugmafíusumarhús fyrir fundinn, en einnig vil ég benda á að menntamafían á nokkur glæný og glæsileg stórhýsi austur í hreppum, þar sem meðal staðalbúnaðar er áskrift að Stöð2 og Sýn. Ég veit alltént að slíkt hús er örugglega laust helgina kringum 14.febrúar, ef sú tímasetning gæti hentað fólki. Látum nú í oss heyra, enda hefur það sýnt sig og sannað að bloggið er ætíð uppá sitt besta þegar nálgast fundi Ríkra.

kv
Valgarduz Lyngdalaeusch

:: Valgarduz mánudagur, janúar 12, 2004 [+] ::
...
|

[::..Þóknanlegt..::]



Danskir teiknarar!



Jón Baldvin



Max Headroom



Seona Dancing



Türkmenbashy






STÓRVAL


[::.Tvífarinn.::]


Mugi jón Hafstein-son


William H. Macy
Hauxon á MSN

This page is powered by Blogger. Isn't yours?