| Vikulistinn (halogen) |
| - - - - - - - - - - |
|
| Vikulistinn (gmarius) |
| - - - - - - - - - - |
|
| Vikulistinn (hauxon) |
| - - - - - - - - - - |
|
| Vikulistinn (kristallur) |
| - - - - - - - - - - |
 |
| Vikulistinn (Valgarduz) |
| - - - - - - - - - - |
| [::..Eldra stuff..::] | |
|
|
:: fimmtudagur, janúar 01, 2004 ::
Skaupið skeri steytti á
Gústi Guðmunds sökkar
Ríkir hrópa aftur á
Hjálmar, Hallgrím, Óskar
Gleðilegt ár kammeratar. Eins og allir vita að þá er nýtt árþúsund loksins í garð gengið samkvæmt kenningum Gmaríusar. Við þessi heimssögulegu tímamót þykir mér rétt að dreypa aðeins á þeim mikilvægu málefnum sem fundarsköp nýs árþúsunds munu taka á.
1. Ólögleg handtaka Saddams Hussein. Er ekki rétt að hann svari til saka fyrir þennan glæpsamlega hallærisklæðnað í gegnum árin. Það vita allir að að hermannatízkan er sannarlega löngu úrelt og því samfellt 60 ára tízkumorð án vafa glæpur gegn mannkyni, amk. hér á vesturlöndum. Því ættum við að fara fram á að Húsi verði framseldur til Hríseyjar og þegar hann hefur lokið einangrun getur hann orðið bæjarlistamaður Vestmannaeyja.
2. Ólögleg handtaka kókaínboxarana. Já, íþróttagallar eru át, en eru þeir ólöglegir? Spurning hvort ekki þurfi að endurhanna landsliðsbúninginn í öllum íþróttum svo að við þurfum ekki að breyta Egilshöllinni í súr(k)álsverksmiðju. Eins og allir vita þá er eina leið íslenskra barna til að lenda ekki í álinu að verða landsliðsmaður/kona í íþróttum.
3. Kaupréttaráklæði hjá stjórnendum Kaupþings. Hversvegna varð svona mikið veður út af þessu? Fyrir 150 árum fengu menn borgað í áklæði og var mælt í álnum. Er eitthvað að því að Kaupþingsmenn fá greitt í kaupréttaráklæðum og komist þannig í álnir á?
Ég vil þakka Svavari Erni kærlega fyrir aðstoðina. Nú erum við komnir með þrjú verðug málefni og ekki nema sjö til viðbótar sem þarf til að fylla dagskrána.
Nýárskveðjur, Hrannarius Örnovisious Haukopolous
:: HauXon fimmtudagur, janúar 01, 2004 [+] ::
...
|
|
[::..Þóknanlegt..::]

Danskir teiknarar!

Jón Baldvin

Max Headroom

Seona Dancing

Türkmenbashy


STÓRVAL
[::.Tvífarinn.::]

Mugi jón Hafstein-son

William H. Macy
Hauxon á MSN
|