| :: welcome to Ríkir hf :: bloghome | Viltu vera memm? :: | ||
|
:: þriðjudagur, september 28, 2004 :: Rönneröppinn óskar meistaranum til hjartanlegrar og ævilangrar hamingju með daginn. Þetta gerist jú einu sinni á ári, að örverpinu í hópnum tekst að saxa aðeins á forskot okkar hinna, en það verður reyndar alltaf jafnóðum að engu. Kveðjur frá öllum á Vallaholtinu.
Hlutfallslegt aldursbil Ríkra hefur minnkað stórlega í dag. Ég vil óska "meiztaranum" til hamingju með daginn. Það er vonandi að 32. aldursárið reynist honum ekki jafn erfiðlega í golfinu og fyrrverandi meiztara. Skál!
Félagi Gmaríus á þrjátíuogeitthvað ára afmæli í dag. Óska ég honum til hamingju. Lítið hefur heyrst frá honum frá því á stórmóti Ríkra, enda hefur hann farið huldu höfði til að forðast lyfjapróf og titilssviptingu.
:: föstudagur, september 24, 2004 ::
Það er nú verst að Valgarduz sem var fyrir mót ekki aumingi, var orðinn það eftir mót. Auðvitað er þetta aumingjatal einungis til þess að villa um fyrir almúganum. Það tók kannski enginn eftir því að Vidjay Singh var ekki á Rydernum? Það hefur ekki enn verið tekið fram að lið Ríkra sigraði heimsliðið sem var stýrt af Gary Player! Návist Ríkra varð sumum um megn og spilaði Retrief Goosen á einungis 11 punktum. Gmaríuz spilaði eins og sannur golfmeistari sem spilar ekki betur heldur en þarf, heldur akkúrat það sem þarf. Hann er auðvitað samt aumingi og þarf að færa fram rök fyrir því að hann sé annað og telst aumingi þangað til.
:: miðvikudagur, september 22, 2004 ::
Að gefnu tilefni vil ég benda á að það var búið að samþykkja það að ég væri ekki aumingi!!!! Þar af leiðandi mótmæli ég því að það sé litið á það sem mælikvarða á aumingjadóm Gmariusar að hann skyldi heyja bráðabana við mig. Hvað þá með ykkur, sem ekki komust í bráðabanann við mig!!!
:: þriðjudagur, september 21, 2004 ::
Við vorum sannarlega aumingjar.
:: mánudagur, september 20, 2004 ::
Það er spurning hvort við vorum svona miklir aumingjar að tapa eða Grétar svona mikill aumingi að vinna á svona lélegu skori!
:: föstudagur, september 17, 2004 ::
Greinilegt að ritræpan hefur gripið um sig hér á blogginu. Alveg greinilegt að eftir þá miklu ritstífu sem hráði mannskapin í síðasta mánuði, þá er núna eins og allar flóðgáttir hafi opnast og viskan vellur af orði hverju.
Hvernig er með Gmaríus......hélt að þessi helgi gengi ekki fyrir hann. Hann þarf nauðsynlega að kommentera á planið.
Ja ég er alltént ánægður með að vera ekki aumingi
Það er nú bara svo að Alda detti ekki af baki þegar við ferðumst :-Þ
Maður sá farið eftir ólina á hálsinum á Kristalli. Við Gmaríuz fórum ekki fyrr en við vorum reknir út! Já og Halgen er aumingi! Það ættli að kalla hann The Ultimate Moron!
Ríkir þrífast á þversögnunum! Við erum allir aumingjar sem eru ofurseldir vinnunni og/eða konunni. Höldum innst inni með KR og finnst sund skemmtilegasta íþróttin! Og þegar ég segi við... þá meina ég ÞIÐ!
Mér sýnist þessi skemmtilega ritdeila vera einungis til staðar vegna mikils álits Kristalls á Halógen. Þar sem Ríkur er á ferð er ævinlega flokkur kvenkinda sem gerir aðsúg. Það skal því engan undra að Kriztallur hafi talið í fjarveru Halogeniuzar hefði hjörðin króað hann af og honum enginn kostur gefinn nema að rýja sér leið út! Það er einnig sú mynd sem vér hinir fjelagarnir sáum fyrir okkur, naktar kindurnar á bakinu eins og hráviði um allt sigraðar af Ultimate Male. Ef ég man rétt þá lét Kristallur sig hverfa síðast fljótlega eftir mat. hmmm
:: fimmtudagur, september 16, 2004 ::
Félagi Kristallur!
Félagi Kristallur!
Það er athyglisvert að heyra hvernig árið hefur leikið minni Félaga Kristalls. Þó ég viðurkenni að hans saga sé mun skemmtilegri til frásagnar en sannleikurinn. Þann dag sem síðastu ársleikar fóru fram var ég þríbókaður. 1) Rich Open Closed 2) Frumkvöðulsstarf mitt 3) Hitta kellingu. Valdi ég þau tvö sem mikilvægust eru.....þ.e. frumkvöðulsstarfið, þar sem ég þarf ekki að svara neinum nema sjálfum mér.....og svo Rich Open Closed. Sniftina hitti ég ekki. Félagi Kristallur ætti því ekki að vera með smáborgaralegar fullyrðingar um hvað sé á allra vitorði þegar hann hefur ekki vitneskju um málið sjálfur.
Svona til að minna á að þið drulluðuð allir í brækurnar á síðasta móti samdi ég litla og hógværa vísu.
Fjelagar! Nú styttist í hina heilögu stund og ekki úr vegi að fara að naglfesta dagskrána. Samkvæmt golf.is er mót bæði laugardag og sunnudag á Garðavelli. Mér sýnist við því þurfa að velja okkur annan völl. Borgarnesvöllurinn er bókaður á laugardag. Spurning hvernig ástandið er í Svínadal? Líst sæmilega á Borgarnes á sunnudeginum. Verður maturinn ekki bara "hver kemur með sitt sjitt"? Við Aldarína munum líklegast kaupa lamba fillè. Vænti þess að Halogenið haldi sig við vodgíkók, við Gmaríuz ginítónik og skagamennirnir í visskíji að írskum sið.
Mæl þú manna heilastur félagi Halogen :-þ
Góðan daginn.
:: miðvikudagur, september 15, 2004 ::
Ljómandi, ljómandi, ljómandi...... Stefnum að áti á laugardagskvöld og golfun á sunnudag. Fínt plan fyrir mig!
:: þriðjudagur, september 14, 2004 ::
Kæru fjelagr! Vér og hinn andsetni Gmaríuz áttum tal í morgunsárið. Niðurstaða ráðhaga okkar var að máltíð og fundarhöld á laugardeginum og svo einvígi (í þynnkunni) á sunnudeginum væri bezta niðurstaðan. Gmaríuz þarf að sinna skyldum sínum í samgöngumálum fyrripart laugardags en er svo frír seinnipartinn og á sunnudag. Með þessum behag fellur afmæli ömmu minnar vel saman við mótið. Hvað segið þið um þetta?
Sælir aðdáendur. Ég er ekki dauður! Heldur hefur mér verið haldið í gíslingu öfgahóps sem berst fyrir því að Ríkir geti ekki haldið sitt Ríkmannlega golfmót. En með einstakri snilld minni tókst mér að sleppa úr þeirri prísund og komast hingað alla leið, fyrir framan tölvuna mína.
:: mánudagur, september 13, 2004 ::
Föstudagurinn væri held ég í lagi fyrir mig -fyrsti dagur í feðraorlofi þannig að ég verð alla vega ekki í vinnu. Hvenær eigum við að segja að við hefjum leik? Svona ca 14.00??
:: föstudagur, september 10, 2004 ::
Það er við hæfi að Rich inc. Closed fari fram um leið og Ryder Cup. Aðstandendur Ryder cup geta verið fegnir að engar sjónvarpsvélar eða blaðamenn yfirhöfuð verða leyfðar á Rich inc. closed. Annars hefðu þeir þurft að fresta mótinu.
Ég tek undir ummæli meistara Valgarduzar en langar að gera örlitla breytingatillögu. Það er nefnilega þannig.. sko.. að langa amma mín heldur upp á 90 ára afmælið sitt um miðjan daginn 18. sept. (minnir svoldið á Kidda dæmi í fyrra:-) þannig að bezt væri að hefja leik seinnipartinn á föstudeginum 17. sept. Við getur verið laus snemma á föstudeginum. Þessi helgi hentar vel fyrir okkur þar sem við verðum hvort eð er á skaganum vegna afmælisins. Afmælið er frá kl. 15 og ætti að duga að vera þar í klukkutíma. Við gætum því verið laus kl. 16 á laugardeginum, en föstudagurinn yrði betri. Hvenær gæti fólk verið laust á föstudaginn?? Ef það fer svo að þetta verður óformlegt innanfélagsmót lít ég sem svo á að ég haldi titlinum Golfmeistari Ríkra þar til honum verður náð af mér með formlegum hætti. :-Þ
Eigum við ekki bara að skella á golfmóti og grilli 18. september, hvort sem allir komast eða ekki. Ég held það sé fullreynt mörgum sinnum að reyna að finna dagsetningu sem hentar öllum. Ef ekki allir komast, þá köllum við þetta bara óopinbert innanfélagsmót Ríkra.
:: miðvikudagur, september 08, 2004 ::
Félagar!
:: þriðjudagur, september 07, 2004 ::
Það væri náttúrlega bara kúl ef Halogen væri kominn með kellingu fyrir golfmót. Opnar nýja möguleika í keppnisfyrirkomulagi. Annars fer ég í fæðingarorlof þann 17. september þannig að eftir það hef ég NÓGAN TÍMA til að spila golf. Spörning um að nefna dagsetningar: Hvað segja menn um 17. eða 18. september?? Svo bara nett grill á eftir eða eitthvað.
:: föstudagur, september 03, 2004 ::
jó hómís....
:: fimmtudagur, september 02, 2004 ::
Terry Jones úr Monty Python dáir okkur og við dáum hann. Sönn ást á þessum síðustu og verstu tímum! hehehe http://www.mbl.is/mm/folk/frett.html?nid=1100951
|
[::..Þóknanlegt..::]
![]() Danskir teiknarar! ![]() Jón Baldvin ![]() Max Headroom ![]() Seona Dancing ![]() Türkmenbashy ![]() ![]() STÓRVAL [::.Tvífarinn.::] ![]() Mugi jón Hafstein-son ![]() William H. Macy Hauxon á MSN | |
|
|
||