| Vikulistinn (halogen) |
| - - - - - - - - - - |
|
| Vikulistinn (gmarius) |
| - - - - - - - - - - |
|
| Vikulistinn (hauxon) |
| - - - - - - - - - - |
|
| Vikulistinn (kristallur) |
| - - - - - - - - - - |
 |
| Vikulistinn (Valgarduz) |
| - - - - - - - - - - |
| [::..Eldra stuff..::] | |
|
|
:: þriðjudagur, febrúar 01, 2005 ::
Sá loksins Eternal Sunshine of the Spotless Mind - og til að vera viss horfði ég á hana tvisvar, þ.e. bæði sunnudags- og mánudagskvöld. Verð að vera sammála Kristalli í flestum þeim atriðum sem hann hafði út á myndina að setja. Vil ég rekja þau hér í stuttu máli og ríma þau saman við það sem ég upplifði við að horfa á þessa leiðindafilmu:
"Artí fartí crap" var ein lýsingin sem Kristallur notaði. Ég er sammála því að einhver VHS-leg myndataka, "óvenjuleg" klipping og skítugar sviðsmyndir duga ekki einar og sér til að gera mynd að einhverju voða merkilegu listaverki. Hins vegar þegar þessir hlutir missa marks eins og í þessu tilviki þá verður útkoman ekkert annað en artí fartí crap. Gott dæmi eru íbúðirnar sem fólkið býr í. Þær eiga að vera eitthvað svo "venjulegar" og "lýsandi" fyrir persónurnar eða eitthvað svoleiðis bölvað kjaftæði. Hver haldiði að búi svo sem í íbúð þar sem veggfóðrið er bólgið af rakabólum og málningin hálfflögnuð af ofnunum? Spáið í fúkkafýlunni þarna inni!!! Þessar sviðsmyndir misstu algerlega marks, a.m.k. hjá mér.
"Persónurnar leiðinlegar og asnalegar" ÞAÐ ER NÁKVÆMLEGA MÁLIÐ!!! Þessi mynd snýst um leiðinlegt fólk að gera asnalega hluti og haga sér eins og fáráðlingar. Það er ekki nokkur leið að ná einhverri tengingu við þessa sjálfhverfu, freku, talóðu, árásargjörnu tík sem Kate Winslet leikur, og hvað þá að mynda sér skoðun á persónu Jim Carrey, sem er einfaldlega svo illa leikin að hún skiptir mann ekki nokkru einasta máli. Ég meina, maðurinn er bara með þetta sama aulaglott út alla myndina, krotandi í einhverja skissubók - það verður aldrei neitt úr þessari persónu fyrir áhorfandanum - dettur dauð niður vegna lélegrar túlkunar.
Góður mælikvarði að mínu mati er sú staðreynd, að um leið og ég var búinn að horfa á ESOTSM á sunnudagskvöldinu, var að byrja í sjónvarpinu kvikmynd sem ég hafði lengi haft áhuga á að sjá: Lilya 4-ever eftir Lukas Moodysson. Er skemmst frá því að segja að ég festist gjörsamlega yfir þessari mynd og var upplifun mín af henni miklu sterkari á allan hátt en af "listaverkinu mikla" sem ég hafði nýlokið við að "njóta". Jú, rétt er það að myndinni um Lilyu er bókstaflega ætlað að sjokkera áhorfendur og vekja þá til samúðar með ambáttum nútímans - kynlífsþrælunum, en um leið að leyfa fólki að finna til vanmáttar síns gagnvart illskunni sem viðgengst hvarvetna í heiminum. Þetta tekst 100% hjá Moodysson.
ESOTSM er hins vegar sennilega ætlað að vekja fólk til umhugsunar og heimspekilegra vangaveltna um mannleg samskipti, sambönd, minni og gleymsku og eitthvað þvíumlíkt. Mannshugurinn hefur svo sem verið Kaufman hugleikið umfjöllunarefni og auðvitað er það flókna fyrirbæri alveg þess virði að skoða og fabúlera um. Í þessari mynd misheppnaðist það bara algerlega. Frá mínum bæjardyrum séð tókst Moodysson það sem hann ætlaði sér með Lilyu, í ESOTSM misheppnast hins vegar algerlega það sem höfundarnir ætluðu sér.
Það sem pirraði mig þó einna mest við þessa mynd er þessi digurbarkalega yfirlýsing á umslaginu, að öllum líkindum skrifuð þar fyrir atbeina íslenska dreifingaraðilans: "Myndin er snilldarlega gerð". Hver skrifar svona utan á myndina sem hann er að markaðsetja??!!!!! Hvers konar mont er þetta eiginlega??!!!!! Þetta er eins og ef ég gæfi nú út ljóðabók og skrifaði aftan á hana "Besta ljóðabók í heimi!!!!" Mér bara líkar ekki svona stórbirgingsháttur í fólki. Það er ég sem er að fara að horfa á myndina og ég ætla að fá að mynda mér skoðun á henni í friði!!!! Það hlýtur að vera minn réttur sem neytanda!
Að öllu jöfnu er ég hrifinn af kvikmyndum sem byggja á lágstemmdum sögum og hógværð í leik og úrvinnslu. Þannig nefni ég t.d. alltaf Fargo fyrst allra mynda þegar ég er spurður um uppáhalds kvikmyndir mínar. Mér sýnist að fólkið sem stendur að ESOTSM hafi verið að gera tilraun til að skapa svoleiðis mynd - það bara mistókst því miður.
Að lokum vil ég geta þess að Íris nennti ekki að horfa á myndina þegar hún sá að Jim Carrey léki í henni. Hún gubbar á hann.
:: Valgarduz þriðjudagur, febrúar 01, 2005 [+] ::
...
|
|
[::..Þóknanlegt..::]

Danskir teiknarar!

Jón Baldvin

Max Headroom

Seona Dancing

Türkmenbashy


STÓRVAL
[::.Tvífarinn.::]

Mugi jón Hafstein-son

William H. Macy
Hauxon á MSN
|