:: welcome to Ríkir hf :: bloghome | Viltu vera memm? ::
Vikulistinn (halogen)
- - - - - - - - - -
Vikulistinn (gmarius)
- - - - - - - - - -
Vikulistinn (hauxon)
- - - - - - - - - -
Vikulistinn (kristallur)
- - - - - - - - - -
Vikulistinn (Valgarduz)
- - - - - - - - - -
[::..Eldra stuff..::]

  :: þriðjudagur, maí 03, 2005 ::

Sælir félagar Ríkir

Við hjónin á Vallholtinu höfum hug á að bjóða ykkur, frúm ykkar og börnum (þ.e. þeirra sem eiga frúr og/eða börn) til heimboðs og kvöldverðar á laugardaginn kemur, þann 7. maí. Ætlunin er að glóðarsteikja einhverja parta af forystusauðnum frá Eystra-Miðfelli, sjóða nokkrar kartöflur og skera niður Flúðagrænmeti. Gaman væri ef einhverjir gætu mætt svolítið snemma og e.t.v. tekið nokkrar holur á golfvellinum. Einnig væri skemmtilegt að geta setið yfir spilum eftir matinn og spjallað eitthvað fram eftir. Stefnt er að rólegum samfundi með börnum og öllu saman þannig að menn eru beðnir að fara varlega í að koma með miklar áfengisbirgðir með sér. Við hjónin bjóðum upp á smá vín með matnum, en vilji menn eitthvað sterkara en kaffi á eftir eru þeir beðnir að hafa slíkt meðferðis. Stefnt er á að geta hafið máltíð um klukkan 19.30.

Endilega svarið hvort þið getið mætt á laugardaginn þannig að við getum metið hversu mikið kjöt þarf að leggja í krydd. Látið líka vita ef einhverjir hafa hug á að mæta snemma og kíkja á golfvöllinn -húsrými og hospítalití fyrir konur og börn í boði á Vallholtinu á meðan.

:: Valgarduz þriðjudagur, maí 03, 2005 [+] ::
...
|

[::..Þóknanlegt..::]



Danskir teiknarar!



Jón Baldvin



Max Headroom



Seona Dancing



Türkmenbashy






STÓRVAL


[::.Tvífarinn.::]


Mugi jón Hafstein-son


William H. Macy
Hauxon á MSN

This page is powered by Blogger. Isn't yours?