:: welcome to Ríkir hf :: bloghome | Viltu vera memm? ::
Vikulistinn (halogen)
- - - - - - - - - -
Vikulistinn (gmarius)
- - - - - - - - - -
Vikulistinn (hauxon)
- - - - - - - - - -
Vikulistinn (kristallur)
- - - - - - - - - -
Vikulistinn (Valgarduz)
- - - - - - - - - -
[::..Eldra stuff..::]

  :: fimmtudagur, september 28, 2006 ::


Svartur dagur


Í dag er svartur dagur! Þrátt fyrir að í dag sé einn af 5 Ríkustu dögum ársins þá tókst útsendurum Skrattans að kasta á hann dökkum skugga. Tappi var settur í eitt af höfuð fljótum þessa lands og þar með hefst vatnssöfnun í svokallað Hálslón. Allt þetta er gert til að gleðja Mammon í nafni uppbyggingar á landsbyggðinni.

Í dag er Skrattanum skemmt.

Blessuð sé minning Jöklu.

:: Gmaríus fimmtudagur, september 28, 2006 [+] ::
...
|
  :: miðvikudagur, september 27, 2006 ::
Sit hérna að læra undir miðannarpróf og hlusta á Velvet Underground. Komst í gott skap við að hlusta á þessa snilld og ekki frá því að ég hafi fengið ginítónik með smá sítrónutvist bragð í munninn augnablik... sem auðvitað minnir mig á hrímkúluna sem nálgast óðfluga.

....Jæja, nú eru það "Nöfn, binding, tagskoðun og gildissvið"

Iiii don't know just where I'm goin, but I'm gonna try for the kingdom if I can....

:: HauXon miðvikudagur, september 27, 2006 [+] ::
...
|
  :: þriðjudagur, september 19, 2006 ::
TÓNLEIKASKANDALL

Ég er ekki sáttur við tímasetningu tónleika Sykurmolana - 17 nóv.
Ég á 2 miða á Sufjan Stevens í Fríkirkjunni og það á besta stað í þokkabót, sama kvöld!!!
Anskotinn sjálfur! Fjandi freistandi að losa sig við Sufjan og fara á Molana.

Hvað ætla hinir þvinguðu að gera?

:: Halogen þriðjudagur, september 19, 2006 [+] ::
...
|
  :: mánudagur, september 18, 2006 ::
Eins og menn hafa kannski tekið eftir þá er Skakkamanage það eina sem birtist á hlustunarlistanum mínum hér til vinstri. Veit ekki hvort að Páfinn hefur eitthvað með það að gera en mæli með Skakkamanage. Gott íslenskt low-fi poppgæti.

Kveðja Hrannkolariuz

:: HauXon mánudagur, september 18, 2006 [+] ::
...
|
  :: fimmtudagur, september 14, 2006 ::
Í dag er einn af 5 merkilegustu dögum ársins!

Þessi dagur er kenndur við Valgarduz. Í tilefni af því sendum við honum okkar bestu kveðjur.

Hipp, hipp, húrrei!

:: Gmaríus fimmtudagur, september 14, 2006 [+] ::
...
|
  :: miðvikudagur, september 13, 2006 ::
“Batnandi mönnum er best að lifa” minnir mig að standi einhversstaðar skrifað.

Ég var að skoða Moggann áðan og sá að Samfylkingin vill slá frekari stóriðjuframkvæmdum á frest. Þetta verða að teljast mikil tíðandi frá jafn villuráfandi flokki í umhverfismálum og Samfylkingunni. Þegar betur er að gáð þá er þetta ekki nema von, það styttist í kosningar og því ekki seinna vænna en að fara reyna að hisja upp um sig brækurnar þessum málum. Hinn jafnaðarflokkurinn hefur haft um langa tíð skýra stefnu í þessum málaflokki og hefur sú stefnufesta að miklum hluta skilað honum þangað sem hann er í dag. Svo gott sem jafnoka Samfylkingarinnar, eitthvað sem Samfylkingarmenn reiknuðu ekki með að gæti gerst.

Vonandi að það verði innistæða fyrir þessum yfirlýsingum eftir kosningar. Allaveganna virðist allt stefna í að stjórnarflokkarnir muni ekki ætla að breyta um stefnu í þessum málaflokki á næstunni. Þeim líður best við það að riðlast á náttúrunni í nafni framfara og atvinnuskröpunnar

:: Gmaríus miðvikudagur, september 13, 2006 [+] ::
...
|
  :: mánudagur, september 11, 2006 ::
FALLING MAN

Veit ekki hvort þið sáuð heimildarmyndna sem sýnd var í sjónvarpinu í gær og bar held ég þetta heiti. Vinkill myndarinnar var þessi fræga mynd frá árásinni á World Trade Center þar sem maður hefur stokkið fram af og er að hrapa af hundruðustu og eitthvað hæð.



Heimildarmyndin var reyndar óttarlega amerísk, það átti að finna hver maðurinn á myndinni var. Það var svo að loksins að þeir fundu út hver þetta var og talað var við systur hanns að hún kom blaðamanninum í skilning um hvað er svona merkilegt við þessa mynd, það skiptir engu máli hver er á myndinni hvað er á mydinni.

Þessi mynd er táknmynd ömurlegs atuburðar þar sem þúsundir manna höfðu þann einn kost að brenna lifandi eða fremja sjálfsmorð frammi fyrir augum alheimsins. Hún er einnig táknmynd nýs heims þar sem "freslið" er ekki lengur sjálfsagt. Mér er enn hálf flökurt eftir að horfa á þetta. Myndin vekur upp margar siðferðislegar spurningar. Er rétt að sýna sjálfsmorð og fólk í andarslitrunum í fjölmiðlum? Er það kannski nauðsynlegt til þess að maður sjái alvöruna? Veit ekki. Leið líka hryllilega eftir að hafa horft á Hotel Rwanda í vetur. Ótrúlegt hvað heimurinn getur verið glataður á köflum.

*Andvarp* ...Hrannsky

:: HauXon mánudagur, september 11, 2006 [+] ::
...
|
  :: fimmtudagur, september 07, 2006 ::
En aftur að golfmótinu, áður en sú umræða færist alla leið niður eftir síðunni. Við verðum að komast að niðurstöðu um dagsetningu ekki seinna en strax. Úr því að 7. október er ómögulegur, eigum við þá að reyna 30. september? Mér finnst alla vega ekki hægt að fara alveg aftur í seinni part október - gætum týnt kúlunum á snævi þakinni jörð.

:: Valgarduz fimmtudagur, september 07, 2006 [+] ::
...
|
  :: miðvikudagur, september 06, 2006 ::
Hvernig er það er þessi vefur orðin vinsældarlisti FM957 eða hvað?

30 % af breidd síðunnar fer undir eitthvað vinsældar gleðipopp.
Aðeins rúmlega 50% fer undir það sem máli skiptir.
Afgangurinn fer undir það sem er líðnum þóknanlegt.

Ég vil því nota tækifærið og hveta listfræðinga og forritunarsérfræðinga fjelagsins til að breyta þessu hið snarasta og minnka magn sykurs á þessari síðu!

:: Gmaríus miðvikudagur, september 06, 2006 [+] ::
...
|
  :: þriðjudagur, september 05, 2006 ::
Nú fara leppalúðarnir á Alþingi að skrúfa frá Kárahnjúkavirkjun. Var að horfa á myndir eftir Chris Lund (chris.is) sem vor teknar þarna í fyrra og verða eitt af því fáa til að bera því vitni hvað er þarna eftir að þessu verður drekkt. Myndirnar voru settar saman í slide-show fyrir tónleikana í vetur og lagið "Cold water" eftir Damien Rice spilast undir og er mjög viðeigandi.

Slide-sjóvið

*Andvarp*

:: HauXon þriðjudagur, september 05, 2006 [+] ::
...
|
  :: sunnudagur, september 03, 2006 ::
Ágætu félagar. Nú er sá tími ársins genginn í garð að RÍKIR fari að hugsa til síns árlega íþróttamóts. Ég vil hérmeð biðja RÍKA að hugsa nú hratt og ákveða hið fyrsta stað og tíma þannig að allir geti farið að gera viðeigandi ráðstafanir. Hér með sting ég upp á laugardeginum 7. október og að stefnt verði að móti sunnan Faxaflóa og Hvalfjarðar. Svari nú hver sem fljótar getur, enda liggur okkur Skagamönnum á að geta þá gert áætlanir í húsnæðismálum (pantað kennaraíbúð) til að eiga vísan samastað á höfuðborgarsvæðinu þegar þar að kemur.

:: Valgarduz sunnudagur, september 03, 2006 [+] ::
...
|

[::..Þóknanlegt..::]



Danskir teiknarar!



Jón Baldvin



Max Headroom



Seona Dancing



Türkmenbashy






STÓRVAL


[::.Tvífarinn.::]


Mugi jón Hafstein-son


William H. Macy
Hauxon á MSN

This page is powered by Blogger. Isn't yours?