| Vikulistinn (halogen) |
| - - - - - - - - - - |
|
| Vikulistinn (gmarius) |
| - - - - - - - - - - |
|
| Vikulistinn (hauxon) |
| - - - - - - - - - - |
|
| Vikulistinn (kristallur) |
| - - - - - - - - - - |
 |
| Vikulistinn (Valgarduz) |
| - - - - - - - - - - |
| [::..Eldra stuff..::] | |
|
|
:: laugardagur, desember 30, 2006 ::
Af sportistum
Í fyrradag fóru fram árleg undarlegheit í sjónvarpinu. Forsetinn kom fram og hélt ræðu um hversu mikilvægt það væri fyrir ungdóminn að velja íþróttir til að forðast eiturlyfin. Nú eru íþróttirnar þess eðlis það eru alltaf einhverjir beztir og elur upp "sigurvegara". Það sjá hins vegar færri að fyrir hvern sigurvegara eru þúsundir sem ná ekki árangri. Við erum semsagt að ala upp "rejects", lúsera í þúsunda tali fyrir þessa fáu sem verið var að hilla í fyrrakvöld. Ég vil bara minna forsetann á að ef það er eitthvað sem fær ungmenni til að fara út í neyslu er það höfnun og vonbrigði sem er einmitt það sem flestir fá út úr erfiðinu við að stunda íþróttaþrælkun. Sem betur fer tekst flestum foreldrum og einstaka þjálfara að fela þetta fyrir börnunum þannig að ekki hlýst skaði af.
Jæja en gott og vel, á eftir forsetanum kom svo málhaltasti sjónvarpsmaður landsins í spariklæðunum og hélt langa og "hátíðlega" ræðu sem mér er ómögulegt að muna um hvað var. Sem betur fer voru myndskeið honum til hjálpar þegar tilnefningarnar voru kynntar þannig að maður gat fyllt í eyðurnar. Íslendingum hefur greinilega tekist vel til með íþróttaþrælana því margir þeirra hafa staðið sig vel í sýningum sínum á leikvöngum víðsvegar um heiminn.
Íslendingar eru litlir og íslendingar eru "bestir" í litlum íþróttagreinum. Í mínum huga náðu tveir íslendingar árangri á vetvangi sem hefur almennt áhugasvið utan eyjunnar. í þremur efstu sætunum voru tveir handboltamenn, góðir strákar sem eru í fremstu röð í sinni íþróttagrein. Við íslendingar lítum fram hjá þeirri staðreynd að handboltinn er sveitabjæjasport í Þýskalandi og íþrótt sem fáir vita almennt um utan Íslands. Hér heima er aðsóknin meira að segja það léleg að keppendur eru oft fleiri en áhorfendur. Þar sem strákrnir spila er oft ágæt aðsókn, kannski svipuð og á góðum fótboltaleik hér heima.
Einn tilnefndra náði hóp bestu leikmanna heims í erfiðustu einstaklingsíþróttagrein heims. Þegar hann spilar er það sýnt um alla heimsbyggðina í beinni útsendingu og milljónir manna fylgjast með bæði í Evrópu og USA. Íþróttagreinin er það almenn og vinsæl að sér sjónvarpsstöð sýnir ekkert annað allan sólahringinn. Með fullri virðungu fyrir handknattleiknum er mér til efs að nokkurntíman verði til "The handball channel" fekar en sér stöð fyrir bocha eða bogfimi.
Blessaðir íþróttafréttamennirnir ákváðu sem sagt að líta fram hjá umheiminum til þess að gefa "strákunum okkar" klapp á bakið fyrir HM. Það er orðin lenska á klakanum að taka ákvarðanir á annarlegum forsendum eins og stjórnmálamenn hafa sýnt okkur marg oft undanfarið og því ekki ástæða til að vera hissa. Íþróttafréttaritararnir eru jú allir meira eða minna reject úr handbolta eða fórbolta (og ég úr golfinu??).
...svo fer fátt meira í taugarnar á mér en að herya "Birgir Leifur Hafþórsson kylfingur úr GKG"
Gleðilegt ár folks!
:: HauXon laugardagur, desember 30, 2006 [+] ::
...
|
:: fimmtudagur, desember 21, 2006 ::
21. desember 2006 mun fara í sögubækurnar sem mikill sorgardagur. Hinn mikli einræðisherra og velvildarmaður Ríkra, Türkmenbashy er fallinn frá. Hans brjálaða hjarta mun hafa hætt að slá snemma í morgun.
Türkmenbashy hefur á ævi sinni náð að gera alveg ótrúlega hluti fyrir sig! Þjóð sinni til mikillar gleði og hamingju.
Ekki aðeins hefur hann náð þeim árangri að vera útnefndur 3 versti einræðisherra í sögu mannkyns heldur bannaði hann bókasöfn, heilsugæslustöðvar, ballett og gullfyllingar í tönnum. Einnig mun hann hafa haft nokkra óbeit á kennurum, nema þeim sem skrifuðu um hann lofpistla.
Svörtum skugga slær yfir jólahátíð okkar allra. Haldið hefur til feðra sinna enn einn brjálæðingurinn, langt fyrir aldur fram en eitt er víst minning hans mun lifa með okkur öllum um langa framtíð.
:: Gmaríus fimmtudagur, desember 21, 2006 [+] ::
...
|
:: þriðjudagur, desember 12, 2006 ::
Sælt veri fólkið
Ég er í brjáluðu skapi þessa dagana. Stjórnarherrar hægriflokkanna í bæjarstjórn Akraness eru vel á veg komnir með að rústa öllu jólaskapi hjá mér. Þar sem ég vildi ekki yfirtaka þessa síðu með reiðilestri mínum þá birti ég hann á tóma blogginu mínu (http://valgardur-lyngdal.blogspot.com). Lesið allt um málið!!! Nýjum lægðum náð í lágkúru hægri flokkanna!!!
:: Valgarduz þriðjudagur, desember 12, 2006 [+] ::
...
|
|
[::..Þóknanlegt..::]

Danskir teiknarar!

Jón Baldvin

Max Headroom

Seona Dancing

Türkmenbashy


STÓRVAL
[::.Tvífarinn.::]

Mugi jón Hafstein-son

William H. Macy
Hauxon á MSN
|