| Vikulistinn (halogen) |
| - - - - - - - - - - |
|
| Vikulistinn (gmarius) |
| - - - - - - - - - - |
|
| Vikulistinn (hauxon) |
| - - - - - - - - - - |
|
| Vikulistinn (kristallur) |
| - - - - - - - - - - |
 |
| Vikulistinn (Valgarduz) |
| - - - - - - - - - - |
| [::..Eldra stuff..::] | |
|
|
:: miðvikudagur, febrúar 28, 2007 ::

DIONYSOS
Þetta er líklegasta vanmetnasta band í heimi. Eða svo gott sem. Frakkarnar voru að spila á laugardaginn var í Hafnarhúsi og var þetta lokaatriði Vetrarhátíðar. Ég, félagi Gmar, nokkrir frakkar, menningasnobbarar í pelsum (sem hrökkluðust út með skelfingarsvip þegar rokkið byrjaði), örfáir tónlistaráhugmenn og indie-krakkar voru staddir á þessum stórfenglegu tónleikum. Þetta var 5 stjörnu performans, þó sándið í Hafnarhúsi sé langt frá því að vera pörfekt.
Húrra fyrir þeim sem kynntu nokkrum Íslendingum fyrir þessari mögnuðu grúbbu, og ef fólk er ekki algjört fífl, á eftir að fá verðskuldaða athygli utan heimalandsins.
:: Halogen miðvikudagur, febrúar 28, 2007 [+] ::
...
|
:: sunnudagur, febrúar 11, 2007 ::
Góðar fréttir úr pólitíkinni.
Samkvæmt nýjustu skoðanakönnun gætu Vinstri grænir og Samfylkingin myndað ríkisstjórn væri kosið núna. Svo segir að minnsta kosti Fréttablaðið. Þetta væri náttúrulega alveg ágætis tilbreyting að fá sannkallaða jafnaðarstjórn á landinu og koma stjórnarflokkunum í síðbúið frí. Afskaplega ögrandi verkefni.
Jafnvel betri frétt kom svo strax í kjölfarið. Framsókn mælist aðeins með 3.9% fylgi og fengi því aðeins 2 menn á þing. Þetta er jafnvel betra en í manns villtustu draumum. Afskaplega væri heimurinn áhugaverður án þess að hafa Framsókn í lykilstöðu.
Nú er bara að halda áfram þessu góða starfi. Minnka Framsókn, varla hægt, og Sjálfstæðisflokkinn enn frekar og tryggja 2ja flokka jafnaðarstjórn, að minnsta kosti eitt kjörtímabil. Við eigum það inni.
:: Gmaríus sunnudagur, febrúar 11, 2007 [+] ::
...
|
:: fimmtudagur, febrúar 08, 2007 ::
Rétt er að benda á ágætan pistil Árna Páls Árnasonar, Samfylkingarmanns, um tvískinnung Sjálfstæðisflokksins í stóriðjumálum.
Það er greinilegt að Samfylkingin er að herða róðurinn í stóriðjumálunum og er að komast að sömu skoðun og ég hef haft lengi að nú sé komið nóg af stóriðju! Stóriðjustopp þeirra er ágætis byrjun.
Gott hjá þeim!
:: Gmaríus fimmtudagur, febrúar 08, 2007 [+] ::
...
|
Framsóknarmenn eru fremur sérstakur stjórnmálaflokkur. Þeir fagna þegar þingmönnum þeirra fækkar.
Kristinn H. sá sæng sína útbreidda og ákvað að segja bless við Framsókn og snúa sér að Frjálslindum. Gott og vel. Formanni þingflokks Framsóknar finnst þetta náttúrulega hið besta mál og talar um að þetta sé "ákveðinn léttir fyrir alla aðila". Þetta kallar maður að berjast fyrir flokkinn sinn en líklega telst þetta eðlilegt þar sem um Framsóknarmann er að ræða.
Ef ég man rétt þá er ekki langt síðan að formaður Framsóknar kallaði þennan sama Kristinn H. samvisku Framsóknarflokksins. Er þá Framsókn núna samviskulaus flokkur? Það bara getur ekki verið, ég bara vissi ekki til þess að hann hefði einhvern tímann haft einhverja samvisku.
:: Gmaríus fimmtudagur, febrúar 08, 2007 [+] ::
...
|
:: sunnudagur, febrúar 04, 2007 ::
Ísland of lítið fyrir íslendinga.
Alveg er þetta nú merkilegt að þjóð með 307.261 íbúa (m.v. 1.12.2006), skuli ekki telja sig geta búið í landi sem er 103.000 ferkílómetrar að flatarmáli (10.300.000 hektara). Þess vegna telja menn alveg nauðsynlegt að byggja um 4.500 manna byggð á 25 hektara landfyllingu við Örfirisey. Einn helsti sérfræðingur þjóðarinnar í jarðeðlisfræði, Magnús Tumi Guðmundsson, telur þetta óráð sérstaklega með tilliti til flóðahættu vegna landsigs og hækkunar sjávar.
Þar fyrir utan, höfum við virkilega ekkert betra við peningana okkar að gera heldur enn að nota þá til að búa til landfyllingar. Hugmyndir Ríkra um vatnsrennibraut yfir á Snæfellsnes verða í þessu sambandi ekki svo mjög óraunhæfar.
:: Gmaríus sunnudagur, febrúar 04, 2007 [+] ::
...
|
Rakst á ágætis pistil á netinu, saminn af einhverjum Digurbarka. Það er eins og ég tali í gegnum þennan mann, enda ekki ólíklegt þegar um Ríkan er að ræða. Í það minnsta er að undir miklum áhrifum af skrifum Ríkra.
Hluti pistilsins birtist hér að neðan.
"Frétt af pistli Valgerðar Sverrisdóttur um skýrslu IPCC er fremur ógeðfelld. Á milli línanna má lesa tilhlökkun til þess er hlýnun hefur átt sér stað og lífið á landinu verður kannski bærilegra. Þegar er hafin vinna við að kanna hvað Íslendingar gætu grætt á þeirri þróun. Þróun sem drepið gæti hundruð milljóna manna. Á vísir.is er svo sagt frá því að hlýnunin muni hafa jákvæð áhrif á nýtingu virkjana. Dásamlegt. Allt kann þetta að vera satt og rétt - en heyri maður af því að nágranninn sé komin með sjúkdóm sem gæti dregið hann til dauða, byrjar maður ekki á að útlista kostina sem væntanlegu andláti fylgja. Það er ósiðlegt. Valgerður mætti einbeita sér að þeirri hnattrænu ábyrgð sem Íslendingar rétt eins og aðrar þjóðir, standa frammi fyrir og verða að axla."
Hverjar eru líkurnar á því að Valgerður axli einhverja ábyrgð? Engar!
:: Gmaríus sunnudagur, febrúar 04, 2007 [+] ::
...
|
Mikið sá ég frábæra mynd í bíó núna áðan. Myndin heitir "Children of Men" og verður líklega að flokkast sem besta myndin á árinu 2006. Einstaklega vel gerð mynd með einhverjum sérstakasta söguþræði sem ég hef séð um langan tíma. Ef þið eruð að spá í hvað þið eigið að gera einhvern daginn og sjáið þessa mynd auglýsta ekki hika við að fara.
Damm, þessi mynd er snilld!
:: Gmaríus sunnudagur, febrúar 04, 2007 [+] ::
...
|
:: föstudagur, febrúar 02, 2007 ::
Hlýnum og framtíð jarðar.
Áhugaverð skýrsla kom út í dag um áhrif hlýnunar jarðar. Menn hafa nú loksins sammælts um það að hlýnun jarðar á síðustu árum er af manna völdum og að ef ekkert verður af gert stefni í mestu náttúruhamfarir í sögu mannkyns.
Hér upp á hinu ísakalda landi, sjá menn ekki þetta sem vandamál! Menn bíða óþreyjufullir eftir heitari sumrum og mildari vetrum. Þess vegna finnst hinni heimsku þjóð ekki vera nokkur ástæða til að sinna umhverfismálum svo neinu nemi. Þau eru númer 163 á aðgerðalista stjórnvalda, Framsóknarhækjunnar og Náttúrulausaflokksins.
Almenningur lætur sér málin ekki mikið varða og eru þeir, alltof fáu, sem tala gegn aukinni mengum, hvort sem er hér heima eða erlendis oft kallaðir afturhaldsseggir, andstæðingar framfara og kommúnistar. Stjórnvöld sjá bara eina leið fyrir Ísland. Aukin stóriðja er það sem koma skal. Íslendingar skulu berjast með oddi og egg gegn því að þurfa að undirgangast nokkurra þá skilmála sem ætlað er að draga úr mengun. Alltaf skal bent á sérstöðu landsins og það sett í sama flokk og þriðja heims lönd í þeim skilningi, að hér sé bara ekki komin nein stóriðja og því alveg nauðsynlegt fyrir þjóðina að fá helst svona 5 til 10 stykki í garðinn hjá sér. Þarna keppum við, við þróunarlönd eins og Brasilíu, Suður Afríku og fleiri og fleiri.
Og alltaf eru það peningar dagsins í dag sem skulu ráða, auknar skatttekjur svo við getum eytt meira um efni fram og skapað mun fleiri störf en við þurfum á að halda. Að ekki sé minnst á að halda uppi þessum frábæru vöxtum sem allir dýrka og dá. Meiri stóriðjur og hærri vexti ... húrra, húrra, húrra.
Heimska þjóð!
:: Gmaríus föstudagur, febrúar 02, 2007 [+] ::
...
|
Ný útflutningsvara!
Forsetinn er orðinn afbrags útflutningsvara. Hann er vinsæll í allskonar nefndir og ráð og hentar vel á fundum. Þetta fellur flestum vel í geð, nema úr sér gengnum þöngulhausum sem hafa verið áratugum of lengi í pólitík og hafa ekki heimsýn út fyrir túngarðinn hjá sér.
Spurning hvort við getum ekki fjölgað forsetum? Ég veit um 5 menn sem smellpassa í starfið.
:: Gmaríus föstudagur, febrúar 02, 2007 [+] ::
...
|
|
[::..Þóknanlegt..::]

Danskir teiknarar!

Jón Baldvin

Max Headroom

Seona Dancing

Türkmenbashy


STÓRVAL
[::.Tvífarinn.::]

Mugi jón Hafstein-son

William H. Macy
Hauxon á MSN
|