| Vikulistinn (halogen) |
| - - - - - - - - - - |
|
| Vikulistinn (gmarius) |
| - - - - - - - - - - |
|
| Vikulistinn (hauxon) |
| - - - - - - - - - - |
|
| Vikulistinn (kristallur) |
| - - - - - - - - - - |
 |
| Vikulistinn (Valgarduz) |
| - - - - - - - - - - |
| [::..Eldra stuff..::] | |
|
|
:: þriðjudagur, mars 06, 2007 ::

Sælt veri fólkið
Rakst á þetta á Vísindavefnum og mátti til að deila þessu með ykkur.....
Spurning: Eru til tenntir fuglar?
Svar Vísindavefsins:
Nú á dögum finnast engir tenntir fuglar. Margir fræðimenn telja að gen sem stuðla að tannvexti hafi stökkbreyst og orðið óvirk í fuglum fyrir um 70 milljónum ára. Steingerðar leifar af mörgum forsögulegum fuglategundum benda til þess að þær hafi verið tenntar líkt og áar þeirra skriðdýrin.
Öglir (Archaeopteryx), sem fræðimenn telja að fuglar nútímans séu komnir af, var til dæmis með fjölda keilulaga tanna.Vísindamenn telja að þessi stökkbreyting hafi létt líkama fuglanna og gert þá þannig hæfari til flugs. Tennur eru þungar og þegar þær hurfu úr fuglskjaftinum hafa þung kjálkabein sem styðja við tanngarðinn jafnframt verið óþörf. Stökkbreytingin hefur þannig verið til hagsbóta fyrir fugla og breiðst út í hópnum með þeim afleiðingum að allir núlifandi fuglar eru með léttan en sterkbyggðan gogg í stað kjálkabeina. Mörg önnur dæmi eru um það hvernig náttúruval hefur aðlagað fugla að flugi og hægt er að lesa nánar um það í svari sama höfundar við spurningunni Hvað getið þið sagt mér um beinabyggingu fugla og líffærastarfsemi?
:: Valgarduz þriðjudagur, mars 06, 2007 [+] ::
...
|
|
[::..Þóknanlegt..::]

Danskir teiknarar!

Jón Baldvin

Max Headroom

Seona Dancing

Türkmenbashy


STÓRVAL
[::.Tvífarinn.::]

Mugi jón Hafstein-son

William H. Macy
Hauxon á MSN
|