| Vikulistinn (halogen) |
| - - - - - - - - - - |
|
| Vikulistinn (gmarius) |
| - - - - - - - - - - |
|
| Vikulistinn (hauxon) |
| - - - - - - - - - - |
|
| Vikulistinn (kristallur) |
| - - - - - - - - - - |
 |
| Vikulistinn (Valgarduz) |
| - - - - - - - - - - |
| [::..Eldra stuff..::] | |
|
|
:: þriðjudagur, júlí 31, 2007 ::
Um vináttu, golf og fleira
.jpg)
Tékkið á þessum náunga:
Reyndar fullt af fleira flottu stöffi þarna, t.d. Low, Vampire Hands, STNNNG og fleira.
Við Kristallur brugðum okkur í golf á Þórisstöðum í dásamlegum rigningarúðanum í dag. Ég spilaði bara nokkuð vel miðað við að þetta var í annað skiptið í sumar sem ég snerti golfsettið mitt í öðrum tilgangi en að færa það til í geymslunni. Kristallur var í soldið meira basli en náði þó einu flottu pari eftir að boltarnir okkar höfðu á ótrúlegan hátt lent hlið við hlið með tommu millibili eins og myndin hér til hliðar sýnir. Ég er ekki að bulla í ykkur!!!! Við slógum algerlega úr sitt hvorri áttinni, ég sló yfir grínið og Kristallur til hliðar við grínið og boltarnir stoppuðu nákvæmlega þarna!!! Ég var síðan beðinn að koma því á framfæri að Kristallur setti næsta högg niður og náði þar með parinu. Ég var reyndar soldið dapur í dag, fékk þær fréttir að maðurinn sem var myrtur á Sæbrautinni í gær var Stefán æskuvinur minn og bekkjarfélagi. Einhver snjallasti, skemmtilegasti og yndislegasti drengur sem ég hef á ævinni þekkt. Ég hef alltaf saknað þess mikið að hafa misst sambandið við hann síðan í barnaskóla, hitti hann síðan fyrir örstuttu síðan og við hétum hvor öðrum því að bæta úr þessu sambandsleysi. Þetta vakti mig til umhugsunar um það að maður er allt of lélegur að hafa samband við vini sína, láta í sér heyra öðru hvoru, kíkja í kaffi, spjalla, stúta nokkrum bjórum eða rauðvínsflösku saman... bara rækta vinskapinn. Það er alveg nauðsynlegt að vera tibúinn að leggja eitthvað á sig til að rækta vinskapinn. Maður veit greinilega aldrei hvenær það er orðið of seint. En svona að lokum: Dagur Kári og Álfrún Embla!! Hjartanlega til hamingju með nöfnin ykkar. Þetta eru hvor tvegga gullfalleg og þjóðleg íslensk nöfn sem þið berið að sjálfsögðu með sóma.
:: Valgarduz þriðjudagur, júlí 31, 2007 [+] ::
...
|
|
[::..Þóknanlegt..::]

Danskir teiknarar!

Jón Baldvin

Max Headroom

Seona Dancing

Türkmenbashy


STÓRVAL
[::.Tvífarinn.::]

Mugi jón Hafstein-son

William H. Macy
Hauxon á MSN
|