:: welcome to Ríkir hf :: bloghome | Viltu vera memm? ::
Vikulistinn (halogen)
- - - - - - - - - -
Vikulistinn (gmarius)
- - - - - - - - - -
Vikulistinn (hauxon)
- - - - - - - - - -
Vikulistinn (kristallur)
- - - - - - - - - -
Vikulistinn (Valgarduz)
- - - - - - - - - -
[::..Eldra stuff..::]

  :: miðvikudagur, október 03, 2007 ::

Planið

Hérna kemur planið fyrir sumarbústaðaferð á Flúðir – ekki seinna vænna þar sem ferðin hefst á morgun!!!
1. Sambýlingar: Kristallur og fjölskylda og Valgarduz og fjölskylda verða saman í öðrum bústaðnum. Í hinum verða þá Halogen, Gmarius og Hauxon og þeirra fjölskyldur, þ.e. fleiri fullorðnir þar sem færri börn eru.

2. Matarmál: Hver fjölskylda sér um sig hvað varðar morgunverð, hádegisverð, snarl, snakk, gos og nammi. Sambýlingar geta auðvitað verslað saman ef vill.
Kvöldmáltíðir verða sameiginlegar eins og hér segir:
-Fimmtudagskvöld: Grillaðir hamborgarar. Hver sér um að kaupa hamborgara fyrir sig og sína. Valli og Íris sjá um að kaupa grænmeti, sósur og meðlæti með hamborgurunum.
-Föstudagskvöld: Heimabökuð Pizza. Valli og Íris sjá um að kaupa allt í hana.
-Laugardagskvöld: Grillað kjötmeti. Hver sér um að koma með kjöt fyrir sig og sína á grillið. Best að hver og einn sjái um sitt meðlæti líka – alltaf gaman að smakka sósurnar og salötin hver hjá öðrum…

3. Dægradvöl: Kippum með okkur golfsettunum, ég geri fastlega ráð fyrir því að hægt verði að spila á Selsvelli og aldrei að vita nema við tökum okkur smá tíma í það. Veðurspáin er alveg hreint ágæt fyrir helgina. Svo hvet ég bara alla til að taka með sér borðspil, gönguskó og playstation græjur.

Svo gerum við bara nákvæmlega það sem okkur sýnist í þessari ferð. Á laugardagskvöldinu getum við fullorðna fólkið átt einhvern smá samverutíma, svona eftir að yngstu börnin verða komin í háttinn. Hlín Guðný er búin að fá vinkonu sína á Flúðum til að hjálpa sér við að passa barnahrúguna í öðrum bústaðnum á meðan við getum aðeins glatt okkur í hinum.

Íris og Margrét eru með bústaðina leigða, þannig að þær verða væntanlega með lykilnúmerin að þeim á hreinu. Alltaf soldið atriði að geta opnað húsin :-)

Ef þið hafið athugasemdir við eitthvað af ofanskráðu, commentið þá hér að neðan. Ekki senda svör í tölvupósti, höldum umræðunni bara á blogginu.

Góða ferð og sjáumst annað kvöld

Efnisorð:


:: Valgarduz miðvikudagur, október 03, 2007 [+] ::
...
|

[::..Þóknanlegt..::]



Danskir teiknarar!



Jón Baldvin



Max Headroom



Seona Dancing



Türkmenbashy






STÓRVAL


[::.Tvífarinn.::]


Mugi jón Hafstein-son


William H. Macy
Hauxon á MSN

This page is powered by Blogger. Isn't yours?