:: welcome to Ríkir hf :: bloghome | Viltu vera memm? ::
Vikulistinn (halogen)
- - - - - - - - - -
Vikulistinn (gmarius)
- - - - - - - - - -
Vikulistinn (hauxon)
- - - - - - - - - -
Vikulistinn (kristallur)
- - - - - - - - - -
Vikulistinn (Valgarduz)
- - - - - - - - - -
[::..Eldra stuff..::]

  :: þriðjudagur, apríl 15, 2003 ::

Æ þessir auminga pólitíkusar! Það er alveg skelfilegt hvernig þeir fara að láta þegar líða fer að kostningum. Þeir sóa fé ríkisins í allar áttir án þess að hugsa hálfa hugsun (stjórnarflokkarnir) og lofa svo smælingunum öllu fögru eftir 10. maí næstkomandi (stjórnarflokkar og stjórnarandstaða), án þess að hugsa málin til enda að mínu máti. Þetta er alveg afskaplega ótrúverðugur málfluttningur!

Það er panik hjá flestum ef ekki öllum flokkunum. Að minnsta kosti er panik hjá Dabba. Best að lofa 30 miljörðum, meiri kvóta og ausa allmanna fé í vitleysu síðustu 4 mánuði kjörtímabilsins.
Það er líka panik hjá Dóra. Hann er hræddur um að verða atvinnulaus eftir 10. maí. Hann myndi þá bætast við hóp þeirra rúmlega 6000 manna sem er atvinnulausir í dag. Það er þó kannski mögulegt að vinir hans, hjá ítölsku mafíunni, Impregilo, gætu reddað honum djobbi á bor eða kannski á vörubíl við Kárahnjúka. Sem reyndar er dýrasta kostningaloforð allra tíma! Síðan er það hún Solla. Æ, hún vill náttúrulega ráða eins og Davíð. En það getur bara einn ráðið í einu. Svo hún gerir eins og Dabbi og Dóri, lofar 15 miljörðum hér, segist vera höfuð andstæðingur Sjálfstæðisflokksins en vill samt ekki segja af eða á um hvort hún vilji sitja í sjórn með Sjöllunum. Þetta minnir mann aðeins á borgarstjónarkostningarnar. Ég verð borgarstjóri, eða nei, jú, kannski, allt kjörtímabilið, engin veit æfi sína fyrr en öll er (menn mega jú víst skipta um skoðun).
Síðan eru það litlu kallarnir þeir Grimsi og Gauji "litli" (kannski ekki svo litlir lengur, sérstaklega í ljósi þess að Dóri bara minnkar og minnkar). Þeir bara náttúrulega vilja vera með, lofa aðeins minna en hinir. Eru þó með stór orð um byltingar á ýmsum sviðum. En vilja umfram allt alveg eins og hinir ráða, að minnsta kosti einhverju. Þeir eru sko alveg til í að vera stýrimenn, vélstjórar, kokkar eða bátsmenn á þjóðarskútunni.

Er einhverjum af þessum mönnum treystandi? Ég bara spyr.

:: Gmaríus þriðjudagur, apríl 15, 2003 [+] ::
...
|

[::..Þóknanlegt..::]



Danskir teiknarar!



Jón Baldvin



Max Headroom



Seona Dancing



Türkmenbashy






STÓRVAL


[::.Tvífarinn.::]


Mugi jón Hafstein-son


William H. Macy
Hauxon á MSN

This page is powered by Blogger. Isn't yours?