:: welcome to Ríkir hf :: bloghome | Viltu vera memm? ::
Vikulistinn (halogen)
- - - - - - - - - -
Vikulistinn (gmarius)
- - - - - - - - - -
Vikulistinn (hauxon)
- - - - - - - - - -
Vikulistinn (kristallur)
- - - - - - - - - -
Vikulistinn (Valgarduz)
- - - - - - - - - -
[::..Eldra stuff..::]

  :: miðvikudagur, apríl 30, 2003 ::

Heyr, heyr kamerat X son of Hau. Ekki ætti að vera mikið mál að fá 50 kúlur til kynningar á Guðna, ráðamenn þjóðarinnar verða ansi lauslátir á fé svona nokkrum vikum fyrir kosningar. Þetta er því akkúrat rétta tímasetningin fyrir svona tillögur og talandi um útflutning. Þá legg ég til að 50 millur eða jafnvel 100 verði varið í kynnu á íslenski dægurtónlist á erlendri grundu. Þá sé ég fyrir mér að við myndum nota einn dáðasta dægurlaga söngvara Íslendinga í verkið. Engan annan en Árna Jónssen, Árna Johns eins og við myndum kalla hann. Hann er sönn baráttuhetja alþýðunnar af suðurlandi, maður sem barist hefur með kerfinu, á móti því, búinn að fara grjótið vegna þess að kerfið var á móti honum! Þetta er sönn hetja sem getur jafnvel fengið laglausa embættismenn eins og Geir Haarde, til að lúkka flottur á sviði. Nú síðan er hann AJ mikill baráttu sinni minnihluta hópa og þeirra sem eiga sér fáa málsvara í þjóðfélaginu. Dæmi: Vestamanneyingar og fangar. Ég er alveg viss um að AJ myndi ná til "strákana í hverfinu" um víða veröld! Okkar mann á erlendan markað.

Mig langar líka að þakka kamerat Valgarduz Lyngdalaeus fyrir skemmtilegt fræðslumyndband um notkun blaðra sem hann sendi oss í morgun.

Lifi menningarbylting Ríkra!!!

:: Gmaríus miðvikudagur, apríl 30, 2003 [+] ::
...
|
Legg til að settar verði 50 milljónir í að kynna Guðna Ágústson í úlöndum í þeirri von að hægt verði að flytja hann út. Það yrði mikil búbót fyrir íslendinga ef t.d. ríkur þjóðverji sýndi áhuga á að kaupa hann. Guðni er íslenskur sauður í húð og hár og stolt uppsveita suðurlands, því ætti hann að verða eftirsóttur erlendis ef við kynnum hann. ZZZzzz.....

:: HauXon miðvikudagur, apríl 30, 2003 [+] ::
...
|
  :: þriðjudagur, apríl 29, 2003 ::
Ekki er nú annað hægt en að taka undir orð X son of Hau varðandi slakar veðurspár. Þær hafa valdið manni þó nokkru hugarangri upp á síðkastið! Þar sem Ríkir eru verndarar og velgjörðarmenn golfvallanna á Akranesi og á Flúðum. Þá hafa þeir haft áhyggjur af því að hin slæma spá, gangi hún eftir, hefði neikvæð áhrif á vöxt og viðgang valla þeirra. En eins og X son of Hau nefni líka hafa þessa heigulsspár ekki gengið eftir. Því tel ég rétt að viðkomandi almúgaveðurspámönnum verði hið snarasta eytt, fyrir rangar spár og að hafa mögulega sett strik í golfáætlanir Ríkra. Því gangi þessar spár eftir þá getur Ríkur ekki spilað golf við viðunandi aðstæður en það eitt og sér er næg ástæða til að vera eytt.
Sem umhverfisstjóri Ríkra þá hef ég líka ákveðið að færa Landsvirkjun enn ofar á sprengjulistann. Það er alveg makalaust með þessa viðurstyggilegu stofnun, þar á bæ halda menn að þeir geti bara gert hvað sem er. Þrátt fyrir einhverja úrskurði um annað. Það er greinilegt að almúgastjórnendur þessarar stofnunar gera sér alls ekki grein fyrir andúð Ríkra á þeim!
Að öðru, ég hef ákveðið eftirfarandi: Leggja niður Ríkisútvarpið en þyrma Rás 1. Í staðinn mun sú stöð senda úr áróður Ríkra, klassíska tónlist og annað viðeingandi fræðsluefni! Þessi áætlun tekur nú þegar gildi.

Lifi menningarbylting Ríkra!!!

:: Gmaríus þriðjudagur, apríl 29, 2003 [+] ::
...
|
Jæja, sei sei, sussum sei. Öldu er haldið gegn vilja og að ósekju innan veggja óríkisspítalanna þessa dagana og verður að viðurkennast að maður hefur hugleitt að senda starffólkið þar í "early retirement". Svo er annað sem fer í taugarnar á mér.. það er bleyðuháttur veðurfræðinga þessa dagana. Dag eftir dag, viku eftir viku er spáð kólnandi veðri, auknum vindhraða o.s.frv. Síðan kemur annað á daginn. Nú er búið að vera von á 1 til 3 gráðu hita og 10 til 15 metrum á sekúndi í rúma viku. Samt kemur alltaf 10 stiga hiti og 3 til 5 metrar á sekúndu alla daga. Það er eins og þeir séu að reyna gera fólk alltaf ánægt með veðrið með því að spá einhverri hörmung. Ég var fyrir helgina að horfa á langtímaspá í óríkiskassanum þar sem sýnt var yfirlitskort af vestur evrópu, hæðir, lægðir og þrýstilínur. Sýnt var hvernig lægðirnar færðust til næstu vikuna samkvæmt tölvuspám. Ég horði á þetta og hugsaði með mér "jæja, ágætt þrýstilínurnar gliðna verulega, það verður semsagt lyngt og gott næstu daga". Svo kom Íslandskortið, auðvitað var spáin upp á 10 til 15 metra á sek og 3 gráðu hita um miðjan daginn... kólnandi veður og aukinn vindur. Einnig tók ég efir að veðurfréttaritarinn virðist ekki hafa nennt að merkja hæðir inn á yfirlitskortið, aðeins lægðir. Kannski að þar sé komin skýring á lélegum veðurmspám hennar. Já og sei sei ... röfl.



:: HauXon þriðjudagur, apríl 29, 2003 [+] ::
...
|
  :: föstudagur, apríl 25, 2003 ::
Ég ítreka enn og aftur skoðun mína á því að Ríkum er ekki sæmandi sú vísun í samkynhneigð og geðveilu sem slík motta tvímælalaust hefur. Ef einhverjir meðlima kjósa að vera með yfirlýsingar í þá áttina þá ætla ég ekki að stöðva þá í þeim gjörningi. And bæ ðí vei....Við Félagi Gmaríuz höfum báðir ágætan vöxt og fullkomlega færir í söfnun ef upp koma þær kenndir er greinilega hafa skotið sér rótum innan Félagsins.

:: Halogen föstudagur, apríl 25, 2003 [+] ::
...
|
Er mjög hrifinn af "alternate" tillögum HauXonarins varðandi hárvöxt. Það væri skemmtilegt að hitta taðskegglingana í hópi Ríkra augabrúnalausa við næstu samfundi - það gæfi oss sterka tilfinningu fyrir samkennd og samhljómi Ríkra. Einnig finnst mér eðlilegt að HauXon fái hormottupásu fram yfir erfingjafæðingu, það má ekki hræða hjúkkurnar um of.

Tek einnig undir og ítreka tillögu HauXonar um að Ríkir nýti sér hina myrku hlið tunglsins til kynningar eigin ágætis. Sem áróðursmálaráðherra Ríkra vil ég benda á það, að grjótmolinn á plötuumslaginu, sem brýtur hvíta ljósið upp í marglitar frumeindir sínar, mun vera upprunninn úr íslenskum jarðvegi. Á sama hátt eru það Ríkir, meitlaðir úr íslenskum sjávarhömrum, sem munu í fylling tímans brjóta upp hina einlitu heimssýn nútímans og ljá veröldinni litríkari og fjölbreytilegri tilveru á allan máta.

Lifi menningarbylting Ríkra!!!

:: Valgarduz föstudagur, apríl 25, 2003 [+] ::
...
|
  :: miðvikudagur, apríl 23, 2003 ::
Það er skiptir engu þó skegglögun manna sé mismunandi! Ég legg til að þeir sem treysta sér ekki í efrivörina safni kódilettubörtum eða raki af sér augabrúnirnar. Allt er hægt ef viljinn er til. Ég sjálfur mun stefna á að vera lítt skeggjaður við fæðinigu erfingjans en er til að safna eftir það. Hvað er betra en þykkt yfirvararskegg þar sem maður getur sleikt froðuna af þegar bjórinn er búinn?

Hauxoninn skellti sér ásamt föður, föðurbróður og móðurbróður á hljómleika til heiðurs því að Dökka hlið tunglsins hefur náð okkur að aldri. Hvílíkir unaðstónar hafa ekki borist mér í langan tíma. Enda gætu textarnir ekki höfðað betur til Ríkra: "Money", "Us and them" svo eitthvað sé nefnt. Ef Ríkir ættu að eiga sér titillag á erlendri tungu þá væri það að sjálfsögðu Money. Jens Hansson úr hinni hrúleiðinlegu Sólin hann sjón smínz leystist úr hlekkjum og spilaði úr sér skítinn. Húrra fyrir honum! Spurning hvort að við ættum að stefna á að Dúndurfréttir komi og spili eitt lag árið 2012 þegar Ríkir fagna 20 ára sigurgöngu fagnaðarerindisins.

:: HauXon miðvikudagur, apríl 23, 2003 [+] ::
...
|
Ekki get ég annað en tekið undir ábendingar Félaga Halogen da Ionized varðandi hormottuna. Ég tel að við þurfum að grípa til öflugri aðgerða en að safa einni slíkri á mann, það geta "flest"allir gert það. Ég tel meira við hæfi að Ríkir beini hinum miklu vitsmunalegu yfirburðum sínum í þann farveg, að hin vitskerta stjórn í vesturheimi fari að óttast verulega um stöðu sína.

:: Gmaríus miðvikudagur, apríl 23, 2003 [+] ::
...
|
Verð ég að benda Félaga Kristalli og Félaga Valgarduz á að leiðtogahæfileikar mælast ekki eftir því hvers hratt hormottan vex. Ljóst er að flestir andlega vanheilir þjóðarleiðtogar þessa heims hafa borið slíka mottu. En einna þekktust er mottan fyrir að vera vinsæl á meðal samkynhneigðra karlmanna af germönskum uppruna. Þar sem Ríkir teljast til hvorugra tel ég ekki sæmandi að bera slíkan hárvöxt.

:: Halogen miðvikudagur, apríl 23, 2003 [+] ::
...
|
Það er hins vegar spurning hvort Halogen hafi burði til að safna hormottu sökum kvenlegs hárvaxtar í fési.

:: Valgarduz miðvikudagur, apríl 23, 2003 [+] ::
...
|
Ég styð félaga Kristall í yfirvararskeggssöfnun og hvet fleiri Ríka til hins sama. Ef Ríkir sammælast um að safna yfirvararskeggi allir sem einn er ég meira en til í að fórna hökutoppi mínum þannig að einungis yfirvararskeggið verði eftir.
Valgarduz Lyngdalaeuz

:: Valgarduz miðvikudagur, apríl 23, 2003 [+] ::
...
|
  :: miðvikudagur, apríl 16, 2003 ::
Sælinú jafningjar
Oft stendur illt af kvennahjali sagði Þorkell Súrsson í denn og reyndist sannspár kallinn (þó hann ætti reyndar sjálfur mesta sök á illindunum, en það er önnur saga). Því gríp ég til þessa orðatiltækis hér að mér finnast stjórnmálamenn allir vera kellíngar upp til hópa og varla þess virði að Ríkir eyði á þá einu orði. Við höfum um annað og meira að hugsa en að hafa áhyggjur af þessum strengjabrúðum gróðaaflanna í þjóðfélaginu, því brátt kemur sú tíð að aðeins verður til eitt gróðaafl á heimsvísu - RÍKIR HF. Þá verða stjórnmálamenn að sjálfu sér óþarfir er Ríkir taka sér alræðisvald í hendur, leggja niður Alþingi og rífa Stjórnarráðshúsið sem er ekkert annað en táknmynd þeirrar kúgunar sem íslenska þjóðin hefur mátt sæta í gegnum aldirnar, fyrst af hendi Dana og síðar af hendi arðræningjanna og föðurlandssvikaranna sem þar hafa setið lengst af síðustu öld og í upphafi þessarar. Jöfnum þetta minnismerki þjáðrar þjóðar við jörðu svo Ísland megi endurheimta reisn sína og virðing undir handleiðslu Ríkra!!!!

:: Valgarduz miðvikudagur, apríl 16, 2003 [+] ::
...
|
  :: þriðjudagur, apríl 15, 2003 ::
Æ þessir auminga pólitíkusar! Það er alveg skelfilegt hvernig þeir fara að láta þegar líða fer að kostningum. Þeir sóa fé ríkisins í allar áttir án þess að hugsa hálfa hugsun (stjórnarflokkarnir) og lofa svo smælingunum öllu fögru eftir 10. maí næstkomandi (stjórnarflokkar og stjórnarandstaða), án þess að hugsa málin til enda að mínu máti. Þetta er alveg afskaplega ótrúverðugur málfluttningur!

Það er panik hjá flestum ef ekki öllum flokkunum. Að minnsta kosti er panik hjá Dabba. Best að lofa 30 miljörðum, meiri kvóta og ausa allmanna fé í vitleysu síðustu 4 mánuði kjörtímabilsins.
Það er líka panik hjá Dóra. Hann er hræddur um að verða atvinnulaus eftir 10. maí. Hann myndi þá bætast við hóp þeirra rúmlega 6000 manna sem er atvinnulausir í dag. Það er þó kannski mögulegt að vinir hans, hjá ítölsku mafíunni, Impregilo, gætu reddað honum djobbi á bor eða kannski á vörubíl við Kárahnjúka. Sem reyndar er dýrasta kostningaloforð allra tíma! Síðan er það hún Solla. Æ, hún vill náttúrulega ráða eins og Davíð. En það getur bara einn ráðið í einu. Svo hún gerir eins og Dabbi og Dóri, lofar 15 miljörðum hér, segist vera höfuð andstæðingur Sjálfstæðisflokksins en vill samt ekki segja af eða á um hvort hún vilji sitja í sjórn með Sjöllunum. Þetta minnir mann aðeins á borgarstjónarkostningarnar. Ég verð borgarstjóri, eða nei, jú, kannski, allt kjörtímabilið, engin veit æfi sína fyrr en öll er (menn mega jú víst skipta um skoðun).
Síðan eru það litlu kallarnir þeir Grimsi og Gauji "litli" (kannski ekki svo litlir lengur, sérstaklega í ljósi þess að Dóri bara minnkar og minnkar). Þeir bara náttúrulega vilja vera með, lofa aðeins minna en hinir. Eru þó með stór orð um byltingar á ýmsum sviðum. En vilja umfram allt alveg eins og hinir ráða, að minnsta kosti einhverju. Þeir eru sko alveg til í að vera stýrimenn, vélstjórar, kokkar eða bátsmenn á þjóðarskútunni.

Er einhverjum af þessum mönnum treystandi? Ég bara spyr.

:: Gmaríus þriðjudagur, apríl 15, 2003 [+] ::
...
|
Kveldið Jafningjar! Forsætisráðherra getur lofað hverju sem honum sýnist. Hann veit líka að það er ekki hann sem ræður eða tekur ákvarðanir. Það eru Ríkir. Þeirra er ríkið mátturinn og dýrðin. Forsætisráðherra veit að hans tími er liðinn og það er ekki hans að fylgja eftir loforðum sem gefin eru í dag. Það er Ríkra. Eitt er það sem er sauðslegra en sjálf sauðkindin. Það er Framsóknarflokkurinn. Mælist ég til að partý það er kennt er við framfarir og sækni (hvernig sem það hefur nú birst) verði leyst upp og sett í þrælkunarvinnu ásamt öðrum óþjóðalýð þessa lands. Í framhaldinu verði alllir flokkar leystir upp og meðlimar virkjaðir í þágu Ríkra.

:: Halogen þriðjudagur, apríl 15, 2003 [+] ::
...
|
  :: laugardagur, apríl 12, 2003 ::
Ég var að horfa á helvítið hann Dennis Miller hjá Jay og mér er óglatt! Þetta svín á ekki einu sinni skilið að fara á sprengjulistann okkar þar sem það yrði of þægilegur dauðdagi fyrir hann. Annars er öll dansmúsík runnin af rifjum refbræðra, flest allt auðvitað vonlaust. Spurning hvort við ættum ekki að fara fram á kauði breyti nafniu í Sceetur.

:: HauXon laugardagur, apríl 12, 2003 [+] ::
...
|
Við Félagi Kristallur ákváðum að taka út skemmtun er haldin var til heiðurs Ríkum í gær. Reyndar í samstarfi við undirhreyfingu Ríkra sem kölluð er af almenning Samfylking (Ríkra). Í stuttu máli þá ómaði samkomuhús sveitafélagsins a.k.a bíóhöllin á Akranesi af fögrum tónum Botnleðju og Maus. Brilliant tónleikar og vil ég þakka þeim hér með fyrir framlag sitt til baráttu Ríkra fyrir réttlæti. Hér eftir flokkast þeir með velunnurum Ríkra og verða geisladiskar þeirra merktir sem slíkir. Einnig munu meðlimir hljómsveitanna hljóta þá meðferð og þau forréttindi sem slíkri upphefð fylgir.

:: Halogen laugardagur, apríl 12, 2003 [+] ::
...
|
  :: föstudagur, apríl 11, 2003 ::
Ég trúi því nú tæpast að Scotter hinn miðaldra aflitaði þjóðverji sé að apa eftir Ravebæðrum þar sem hans tónlist er af gjörólíku meiði. Skútugaurinn niðursýður rafmúsikina þar til útdælist europoppuð Ibiza æla. Vonandi sjá Ravebræður fátt sameiginlegt með þeirru stefnu og sinni, enda "spiluðu" þeir rave eins og það kemur beint úr rafkúnni. En ef þið viljið hlusta á almennilega elektróník þá mæli ég með Magnúsi Blöndal. Sem meðal annars samdi fyrsta íslenska elektróníska verkið (Elektrónísk stúdía,1959). Hægt er að versla diskinn hér fyrir $10 eða fá hann kóperaðann hjá jónaða geninu fyrir $20......Orðatiltæki dagsins er: "maður er Ríks gaman".

:: Halogen föstudagur, apríl 11, 2003 [+] ::
...
|
I rest my case....'yall bunch of pussies............respect to the man in the icecream van (scooter)

:: Halogen föstudagur, apríl 11, 2003 [+] ::
...
|
Zælir Kammeratar!

Ég er þá kominn úr för minni til að tryggja heimsfriðinn. Lausnin fólst í því að Saddam féllst á að raka af sér yfirvaraskeggið og verður hann því óþekkjanlegur. Hafa þúsundir óbreyttra araba mátt þola andlát sökum þess eins að hafa yfirvaraskegg. Einnig var hann fenginn til þess að breyta nafninu sínu í Omar Sharif. Runninn fær að klára stríðið í Command and Conquer tölvuleiknum og fá fjölmiðlar í landi kleinuhringjanna myndskeið úr leiknum til að sýna í fréttatímum. Á heimleiðinni kom ég við á Ítalíu til að tryggja það að Il Pregilo kæmu aðeins með verkakvenn í stað verkamanna til landsins. Þetta var gert til þess að tryggja hlutfallsprósenta dökkhærðra yrði ekki of hátt á austurlandi. Einnig þótti nafn fyrirtækisins grunsamlegt ..."Pregilo"?? hvað er átt við með því? Ekki þótti ástæða til að taka áhættuna af ringulreið á hálendinu.

Mig langar taka undir með félaga Valgarduzi að engin þörf er fyrir Ríkann að velta fyrir sér hvort hitt eða þetta sé karlmannlegt, hversu lítilfjörleg sem athöfnin kann að vera öðlast hún nýtt gildi við það eitt að Ríkur fáist við hana. Golf er án nokkurs vafa erfiðista íþrótt sem völ er á. Leikmaðurinn hefur allan tíma sem honum þóknast til þess að hugsa hvað hann ætlar að gera. Þetta er flestum ofviða. Í öðrum boltaíþróttum er knötturinn á hreyfingu og þarf því leikmaðurinn að bregðast við með ósjálfráðu taugaviðbragði. Ekki er nóg með að viðkomadi geti hugsað höggið lengi áður en hann slær heldur getur hann einnig hugsað um það á meðan hann bíður eftir að spilafélagarnir leiki og svo á meðan hann gengur að boltanum. Engum dytti í hug að kalla fluguhnýtingar föndur, viský- og koníksdrykkju djamm eða 300 metra teighögg kvenlegt. Aðrar boltaíþróttir krefjast svo lítill heilastarfsemi að tekist hefur að kenna rottum að spila fótbolta. Alkunn er svo ímynd íþróttamanna sem er augljólega afleiðing skertar hugsunar í flestum íþróttum.

....and may god blessa (m) Ríka!

:: HauXon föstudagur, apríl 11, 2003 [+] ::
...
|
Karlmennska mín á sér greinilega enga hliðstæðu. Sýnist ég vera einn á þeirri skoðun að golf sé kvennleg íþrótt. Lífi hið eina sanna ríki....guðs Ríki(r)

:: Halogen föstudagur, apríl 11, 2003 [+] ::
...
|
Hvaðeina sem Ríkir taka sér fyrir hendur verður þar með sjálfkrafa stórfenglegt og yfirmáta karlmannlegt, hvort sem það er golf, bjargsig eða pólganga. Jafnvel ballett yrði sjálfkrafa stórfenglegur ef einhver Ríkur tæki þátt í honum. Hins vegar veit ég að enginn Ríkur mun nokkurntíma leggjast svo lágt þannig að ballett heldur áfram að vera kellingalegur viðbjóður um alla framtíð.
Karlakórar eru hins vegar án nokkurs efa alveg rosalega karlmannlegir, og enn heldur nú þegar einn Ríkur hefur ákveðið að nýta þann miðil til brautargengis áróðurs Ríkra. Hvet ég því félaga Ríka að fjölmenna með sitt lið í Grafarvogskirkju á þriðjudagskvöldið og fá testósterónið beint í æð á kirkjubekkjunum.

:: Valgarduz föstudagur, apríl 11, 2003 [+] ::
...
|
  :: fimmtudagur, apríl 10, 2003 ::
Golf verður ekki karlmannlegt við það eitt að karlmenni leiki það. Ekki frekar en ballet sé karlmannlegt þó karlmaður taki þátt. Hin miklu karlmenni ættu að skrá sig hér

:: Halogen fimmtudagur, apríl 10, 2003 [+] ::
...
|
Hófsemi Halogen da Ionized er margrómuð. Seint gleymast þær 4 klukkustundir sem Karlmennið barðist í gegnum norðan næðu og rigningu á stuttermabolnum einum klæða. Með bjór í þeirri vinstri, síkóinn í þeirri hægri og kilfuna á milli fóta sér. Þar sannaðist það í eitt skipti fyrir öll að golf er karlmennsku íþrótt, sem er jú Ríkum vel sæmandi.

:: Gmaríus fimmtudagur, apríl 10, 2003 [+] ::
...
|
Ekki get ég nú tekið undir að golf sé Ríkmannleg íþrótt og þá enn síður karlmannleg. Golf er auðveld íþrótt og reynir ekki á neinn hátt á líkamsburð, þrótt, úthald, styrk, snerpu, samhæfingu og einbeitingu Ríkra. Sem er jú afburða og enginn dauðlegur stenst þeim snúning. Aftur á móti lít ég golf sem ágætis umgjörð um bjórdrykkju og vettvang þar sem Ríkir koma saman og skipuleggja örlög heimsins.

:: Halogen fimmtudagur, apríl 10, 2003 [+] ::
...
|
Bara til að bæta við golfsögu GMars: sveiflaði kylfum í fyrsta sinn á þessu vori í fyrradag. Gekk ekkert fyrr en ég fékk haglél og hríðarbyl á móti mér á 3. braut, þá fyrst fór ég að hitta boltann og spila almennilegt golf. Verst að hríðin var svo blind að engum gat auðnast að líta atgerfi Ríks augum.

:: Valgarduz fimmtudagur, apríl 10, 2003 [+] ::
...
|
Lúkkið hefði alveg dugað, en úr því hann er líka haldinn svo háalvarlegum ameríkaniseraðum stupiditysuperiorisma legg ég til náin kynni við Napalm til handa Dennis Miller apaskeinis.

:: Valgarduz fimmtudagur, apríl 10, 2003 [+] ::
...
|
Ég get vottað það hAUxON er enn á meðal vor! Við félagarnir auk okkar eins diggasta aðdáanda Ríkra, Svenna, héldum í víking í gær. Var ferð okkar heitið á nes hinna fögru akra. Lékum við það 9 holur í hinni Ríkmannlegu íþrótt golfi. Ekki er hægt annað en á hlakka til golfsumarsins þar sem ástand vallarins var eins og best verður á kosið.

:: Gmaríus fimmtudagur, apríl 10, 2003 [+] ::
...
|
He´s goner

:: Halogen fimmtudagur, apríl 10, 2003 [+] ::
...
|
  :: miðvikudagur, apríl 09, 2003 ::
Wadda!!! Er myndin af Dennis tekin úr Bravo blaði.... eða Pop Rocky....mynd 2 er tvímælalaust pósa mánaðirins....var nú ekki hægt að splæsa í sófa fyrir gaurinn...Eina sem hefði getað fullkomnað homosexualismann í myndinni væri að hafa hann nakinn á bjarnarfeld....Með arinn í bakgrunn....og allur pakkinn tekinn með "soft lens" (eins og í Oprah Winfrey).....

:: Halogen miðvikudagur, apríl 09, 2003 [+] ::
...
|
Ég spyr er þetta þessi fökking Miller gæ?

See, I'm Dennis Miller og here I'm again

Ef svo er þá verðum við að fá að vita hvað hann hefur til saka unnið? Annað en að lúkka eins og fag á myndunum.

:: Gmaríus miðvikudagur, apríl 09, 2003 [+] ::
...
|
Jammz og jæ! Jú og hæ....Á upphafsorðum Gmaríusar er ljóst að hann hefur ei komist jafn óskaddaður úr för þessari og vér vonuðumst. Hann talar tungum.....tungu spillingar og villutrúar. Í skásta falli brjálast. Vér verðum að skilja að slíkar farir eru ekki hættulausar enda ekki að ástæðulausu sem heilt haf skilur að Ríka og landi hins illa.
And bæ ðí vei.....húv ði fökk is Dennis Miller???

:: Halogen miðvikudagur, apríl 09, 2003 [+] ::
...
|
I would like to thank Rikir for there warm welcome on my behalf.

Loksins er ég kominn úr svaðilför minni til lands Mammúts. Það er alveg merkilegt með þetta land, þarna býr að því að mér sýnist eitt mesta samansafn vitleysinga. Ég tel að Valgarduz Lyngdalaeus geti tekið undir þau orð mín, þar sem hann er jú ei fyrir löngu, kominn úr einni slíkri hættuför! Varðandi skattana þá er manni orðið hálf óglatt. Útsendarar Mammúts í flestum flokkum hér á landi keppast nú við að yfirbjóða hvorn annan. 15 miljarðar hér, 20 miljarðar þar og viti menn ef menn fundu ekki einhversstaðar 30 miljarða til að lækka skatta!!! Og hjá hverjum? Hjá sauðsvörtum almúgalýð! Því gleðst ég mjög yfir yfirlýsingu Kristallur Von Strandir um að nú sé þetta í síðasta sinn sem hann greiði skatta. Þessari hugmynd greiði ég atkvæi mitt. Enga skatta á RÍKA! Enga skatta á RÍKA! Enga skatta á RÍKA! Þetta eru slagorð sem auðvelt er að muna, því ætti það nú ekki að vera erfitt að fá sauðsvartann almúgalýðinn til að safnast saman á Austurvelli til að hrópa þessi nýju baráttuorð sín.
Annað mál fyrst byrjað er að tala um íþróttir. Oft er þörf, en nú er nauðsyn að setja menn á sprengjulistann! Ég legg til að Birgir Leifur auk hinna hrútleiðilegu tvíburar verði settir á listann hið snarasta (sé ekki búið að því áður). Þeir eru fallnir í greipar "auðvaldsins" og sjálfblekkingarinnar. GKG og KR hverskonar er þetta nú eiginlega. Ojbjakk.

Lifi Ríkra tíundinn!

We will prevail!
Good night, and my God continue to bless Rikir!

:: Gmaríus miðvikudagur, apríl 09, 2003 [+] ::
...
|
Who the #*??! is Dennis Miller??? Ég ætlaði reyndar að mælast til þess að Ruud van Nistelrooy yrði settur á sprengjulistann en mundi þá að ég er Wolves-aðdáandi og er þess vegna alveg sama um súkkulaðigæjana í úrvalsdeildinni. Alvöru fótbolti er spilaður í neðri deildunum á Englandi þar sem menn verða að spila með tvöfalt lag af legghlífum eða verða 67% öryrkjar ella.

:: Valgarduz miðvikudagur, apríl 09, 2003 [+] ::
...
|
  :: þriðjudagur, apríl 08, 2003 ::
Vil ég bjóða Gmaríus a.k.a GMAR velkominn og fagna því að hann sé heimtur úr helju. Sýndi hann það og sannaði að Ríkum er ekkert ofaukið. Tókst honum greinilega að snúa af sér útsendara æðstaprests í landi Mammúts. Vér fögnum komu hans og lýsum yfir þjóðargleði í tilefni þess. Skal allur almenningur bera hvítt gleðiband í tilefni dagsins og draga fána að húni.

:: Halogen þriðjudagur, apríl 08, 2003 [+] ::
...
|
  :: mánudagur, apríl 07, 2003 ::
Það er vissulega rökleysa að Ríkir hf skuli greiða skatt til þegna sinna. Mælist ég til þess sú kúgun sem Samtökin sæta af hálfu fals-ríkisins verði snúið hið snarasta og tíund rukkuð. Skal skuldin vera reiknuð um 30 ár aftur í tímann, eða sem svarar ævilengd hvers Ríks. Jafnframt skuli allir þegnar landsins greiða Ríkum tíund og skal sú greiðsla vera afturreiknuð til 1992, eða til þess tíma er Samtökin voru stofnuð.

:: Halogen mánudagur, apríl 07, 2003 [+] ::
...
|
Góða kveldið! Nú er sólarhringur liðinn og ekkert heyrst í Félaga GMAR. Ekki líst mér á, því þegar síðast fréttist var hann að fara að ferma almúga til lands Mammúts hins illa. Er öllum ljóst að um mikið áhættustarf er að ræða og óvíst um afturkomu úr slíkum förum. Er ljóst að dýrkendur Mammúts eru til alls líklegir og þá sérstaklega þegar nærvera mikilmennis á borð við Félaga GMARs ógnar stöðu æðsta prests hinna villutrúandi Mammúts dýrkenda. Ef ekki heyrist frá félaga vorum í dagrenning mun land villutrúenda fara í efsta sæti gjöreyðingalistans og tilheyrandi ferli í gang. Í hefndarskyni fyrir hryðjuverk þetta skulum við einnig huga að útrýmingu mið- og suður Ameríku vegna mögulegra tengsla í gjörningi þessum.

:: Halogen mánudagur, apríl 07, 2003 [+] ::
...
|
Vei sé Ríkum og þeirra orðsnilld. Tími var kominn til að þegnar okkar fái notið visku þeirrar er Ríkum var einum gefin. Sé ég mikla tekjumöguleika fyrir samtökin í auglýsingaborða síðunnar. Það þarf ekki nema meðalgreindan mann (hálfdrættingur ríkra) til að sjá að hér er um að ræða gjöfulasta auglýsingapláss netsins. Er ég sannfærður um að innan skams muni Samtökunum ekki skorta fé til baráttu réttlætis....réttlætis til handa guði og mönnum.

:: Halogen mánudagur, apríl 07, 2003 [+] ::
...
|
Heilir Ríkir og heill þér almúgi sem enn lifir í alsælu fáfræði og blekkinga og hefir ekki enn kynnst hinni sönnu dýrð Ríkra. Brosið þér, fífl, því þér vitið eigi betur. Hlæið þér, vanmáttugir, því slíkt er eðli gervilífs yðar í gerviheimi án göfugrar handleiðslu Ríkra. Því þér vitið ei um yðvar óumflýanleg örlög, er Ríkir munu koma og krefjast veldis síns sem réttbornir synir Oþins, hins vitkasta og máttkasta goðs.

Smá viðbót að lokum:

Ofursnjall, orðheppinn

Íslands von

er hetjan Hrannoulos

Haucxins son



:: Valgarduz mánudagur, apríl 07, 2003 [+] ::
...
|
Sæll almúgi og Ríkir, þar sem tími minn er afstæðari en venjulega ætla ég að taka ögn af honum til að semja söngtexta við fysta vers af fimmtíu um dýrð Ríkidæmisins og manngoðanna sem stjórna því. Get vonandi editerað þetta seinna.



Stæltur, stórvaxinn,

stórsnjallur

er vestfjarðarisinn

Kristallur




Enginn heillar konur

meira en

Osrams Sonur

Halógen




Allt frá Flúðum út á haf

fræða skal

Mæster Valgarduz af

Lyngsins dal




Fram og aftur um flugvél

skimar

Hið glæsta karlamódel

Gmar

:: HauXon mánudagur, apríl 07, 2003 [+] ::
...
|
  :: sunnudagur, apríl 06, 2003 ::
Stund sannleikans nálgast. Ríkir koma, sjá og sigra......líka þig Sigurjón digri

:: Halogen sunnudagur, apríl 06, 2003 [+] ::
...
|

[::..Þóknanlegt..::]



Danskir teiknarar!



Jón Baldvin



Max Headroom



Seona Dancing



Türkmenbashy






STÓRVAL


[::.Tvífarinn.::]


Mugi jón Hafstein-son


William H. Macy
Hauxon á MSN

This page is powered by Blogger. Isn't yours?