:: welcome to Ríkir hf :: bloghome | Viltu vera memm? ::
Vikulistinn (halogen)
- - - - - - - - - -
Vikulistinn (gmarius)
- - - - - - - - - -
Vikulistinn (hauxon)
- - - - - - - - - -
Vikulistinn (kristallur)
- - - - - - - - - -
Vikulistinn (Valgarduz)
- - - - - - - - - -
[::..Eldra stuff..::]

  :: miðvikudagur, apríl 09, 2003 ::

I would like to thank Rikir for there warm welcome on my behalf.

Loksins er ég kominn úr svaðilför minni til lands Mammúts. Það er alveg merkilegt með þetta land, þarna býr að því að mér sýnist eitt mesta samansafn vitleysinga. Ég tel að Valgarduz Lyngdalaeus geti tekið undir þau orð mín, þar sem hann er jú ei fyrir löngu, kominn úr einni slíkri hættuför! Varðandi skattana þá er manni orðið hálf óglatt. Útsendarar Mammúts í flestum flokkum hér á landi keppast nú við að yfirbjóða hvorn annan. 15 miljarðar hér, 20 miljarðar þar og viti menn ef menn fundu ekki einhversstaðar 30 miljarða til að lækka skatta!!! Og hjá hverjum? Hjá sauðsvörtum almúgalýð! Því gleðst ég mjög yfir yfirlýsingu Kristallur Von Strandir um að nú sé þetta í síðasta sinn sem hann greiði skatta. Þessari hugmynd greiði ég atkvæi mitt. Enga skatta á RÍKA! Enga skatta á RÍKA! Enga skatta á RÍKA! Þetta eru slagorð sem auðvelt er að muna, því ætti það nú ekki að vera erfitt að fá sauðsvartann almúgalýðinn til að safnast saman á Austurvelli til að hrópa þessi nýju baráttuorð sín.
Annað mál fyrst byrjað er að tala um íþróttir. Oft er þörf, en nú er nauðsyn að setja menn á sprengjulistann! Ég legg til að Birgir Leifur auk hinna hrútleiðilegu tvíburar verði settir á listann hið snarasta (sé ekki búið að því áður). Þeir eru fallnir í greipar "auðvaldsins" og sjálfblekkingarinnar. GKG og KR hverskonar er þetta nú eiginlega. Ojbjakk.

Lifi Ríkra tíundinn!

We will prevail!
Good night, and my God continue to bless Rikir!

:: Gmaríus miðvikudagur, apríl 09, 2003 [+] ::
...
|

[::..Þóknanlegt..::]



Danskir teiknarar!



Jón Baldvin



Max Headroom



Seona Dancing



Türkmenbashy






STÓRVAL


[::.Tvífarinn.::]


Mugi jón Hafstein-son


William H. Macy
Hauxon á MSN

This page is powered by Blogger. Isn't yours?