:: welcome to Ríkir hf :: bloghome | Viltu vera memm? ::
Vikulistinn (halogen)
- - - - - - - - - -
Vikulistinn (gmarius)
- - - - - - - - - -
Vikulistinn (hauxon)
- - - - - - - - - -
Vikulistinn (kristallur)
- - - - - - - - - -
Vikulistinn (Valgarduz)
- - - - - - - - - -
[::..Eldra stuff..::]

  :: þriðjudagur, apríl 29, 2003 ::

Jæja, sei sei, sussum sei. Öldu er haldið gegn vilja og að ósekju innan veggja óríkisspítalanna þessa dagana og verður að viðurkennast að maður hefur hugleitt að senda starffólkið þar í "early retirement". Svo er annað sem fer í taugarnar á mér.. það er bleyðuháttur veðurfræðinga þessa dagana. Dag eftir dag, viku eftir viku er spáð kólnandi veðri, auknum vindhraða o.s.frv. Síðan kemur annað á daginn. Nú er búið að vera von á 1 til 3 gráðu hita og 10 til 15 metrum á sekúndi í rúma viku. Samt kemur alltaf 10 stiga hiti og 3 til 5 metrar á sekúndu alla daga. Það er eins og þeir séu að reyna gera fólk alltaf ánægt með veðrið með því að spá einhverri hörmung. Ég var fyrir helgina að horfa á langtímaspá í óríkiskassanum þar sem sýnt var yfirlitskort af vestur evrópu, hæðir, lægðir og þrýstilínur. Sýnt var hvernig lægðirnar færðust til næstu vikuna samkvæmt tölvuspám. Ég horði á þetta og hugsaði með mér "jæja, ágætt þrýstilínurnar gliðna verulega, það verður semsagt lyngt og gott næstu daga". Svo kom Íslandskortið, auðvitað var spáin upp á 10 til 15 metra á sek og 3 gráðu hita um miðjan daginn... kólnandi veður og aukinn vindur. Einnig tók ég efir að veðurfréttaritarinn virðist ekki hafa nennt að merkja hæðir inn á yfirlitskortið, aðeins lægðir. Kannski að þar sé komin skýring á lélegum veðurmspám hennar. Já og sei sei ... röfl.



:: HauXon þriðjudagur, apríl 29, 2003 [+] ::
...
|

[::..Þóknanlegt..::]



Danskir teiknarar!



Jón Baldvin



Max Headroom



Seona Dancing



Türkmenbashy






STÓRVAL


[::.Tvífarinn.::]


Mugi jón Hafstein-son


William H. Macy
Hauxon á MSN

This page is powered by Blogger. Isn't yours?