:: welcome to Ríkir hf :: bloghome | Viltu vera memm? ::
Vikulistinn (halogen)
- - - - - - - - - -
Vikulistinn (gmarius)
- - - - - - - - - -
Vikulistinn (hauxon)
- - - - - - - - - -
Vikulistinn (kristallur)
- - - - - - - - - -
Vikulistinn (Valgarduz)
- - - - - - - - - -
[::..Eldra stuff..::]

  :: föstudagur, júní 27, 2003 ::

Var það ekki Baudelaire sem sagði: "Ég er algerlega ósammála skoðunum þínum en er reiðubúinn að fórna lífinu fyrir rétt þinn til að láta þær í ljós". Mikil snilld sérstaklega í ljósi atburðanna "voðalegu" á Austurvelli.

HauXon! til hamingju með frúna og dótturina. Nafnið er alíslenskt, kjarnyrt og ekkert "Stjörnustríðslegt". Gaman að sjá að við sækjum báðir nöfn dætra okkar í goðafræðina, býr nú frjósemisgyðjan í þínum húsum en verndargyðjan hjá mér.

Vonir standa til golfunarfæris um helgina. Í þessum rituðum orðum fara fram samningaviðræður á heimili mínu um mögulegan ferðatíma á Strompanes til golfiðkunar.

:: Valgarduz föstudagur, júní 27, 2003 [+] ::
...
|
  :: miðvikudagur, júní 25, 2003 ::
Zælir stórmeistarar! Síðast liðinn sunnudag var efringjanum gefið nafn. Var hún skírð Sigrún Freyja í höfuðið á Sigrúnu Finnsdóttur frá Hóli í Norðurárdal, ömmu hennar. Sigrún Freyja var hin spakasta í skírninni og ákvað að fyrirtak væri að sofa á meðan á athöfninni stóð.

Á laugardaginn hins vegar útskifaðist kvinna mín úr Háskólanum og ber ykkur hér eftir að ávarpa hana "háæruverugi íslenskufræðingur" og hneigja ykkur. Í dag þriðjudag bárust svo BHM tíðindi á heimilið og má segja að BHM sé aldeilis með á nótunum. Ekki leiðinlegt að vera orðinn áskrifandi af enn einum (rusl)póstinum.

Svo vil ég beina orðum mínum að Kristalli sem virðist halda að mótmæli eigi að fara fram það sem margt fólk kemur saman. Þetta er auðvitað bévítans vitleysa og fólk með kröfuspjöld á að mótmæla einhvernstaðar þar sem ekki er hægt að lesa á spjöldin og enginn getur séð þau, það veit lögreglustjóri. Til dæmis hefðu ekki verið nein læti ef Falun Gong hefði ætlað að stunda mótmælin í Grímsey að næturlagi eða í Hrísey þar sem hefði verið hægt að setja þau í einangrun með dýrunum sem eru þar í sóttkví.

Við eigum nammi Halogen! Ef þú kemur færðu nammi !!!

Kv. Hrannkov Haukovisious

:: HauXon miðvikudagur, júní 25, 2003 [+] ::
...
|
  :: fimmtudagur, júní 19, 2003 ::
Mér var bent á að Halógen gæti ekki komið fyrr en hún verður fimmtán ára. Auðvitað þá ekki endilega að heimsækja okkur Öldu. Þó svo að Halógeið sé hinn mesti ljúflingur er hætt við því að við myndum setja aldursmuninn fyrir okkur. Þetta fer auðvitað eftir því hvort hann verður enn að "leita" árið 2018.

:: HauXon fimmtudagur, júní 19, 2003 [+] ::
...
|
  :: mánudagur, júní 16, 2003 ::
Svo eru aðrar kenningar sem gera ráð fyrir því að Halogenius hafi verið ættleiddur af Alfreð Þorsteinssyni og sé núna geymdur í kistu inni á skrifstofunni hans. Heyrst hefur að Alfreð sé svoldið fyrir "unga" drengi og Halogenið hefur sést sniglast mikið í kring um Orkuveitubygginguna undanfarið.

:: HauXon mánudagur, júní 16, 2003 [+] ::
...
|
Nú er aðeins einn dagur þar til lýðurinn fagnar "frelsinu" og höfum við hjúin verið að gera garðinn klárann til að fullkomna blekkinguna. Garðurinn við Víðimel fjertíuogfjegur eins og listigarður skreyttur stjúpum, morgunfrúm, flauelsblómum og hvað öll hin heita. Mun lýðurinn halda að snyrtingin sé vegna sautjánda en í raun er verið að fagna hinum tuttugastaogöðrum er prinsipesa Hrannarsdóttir öðlast það sjálfstæði að bera eigið nafn. Hafa starfsmenn Reykjavíkurborgar staðið sig með miklu prýði fyrir hátíðarhöldin og ég legg traust mitt á að svo muni einnig vera um hinar dreyfðu byggðir landsins.

Einnig var garðurinn snyrtur til í því skyni að ef til vill myndi það laða Halogenið á melana. Vorum við hjúin þess fullviss að eina rökbæra ástæðan fyrir því að Halogen hefur ekki komið að skoða erfingjann okkar, sé að hann hafi ævinlega snúið við þegar fegurðarskynjun hans var ofboðið við hliðið á Víðimel fertíuogfjegur. Reyndar eru uppi kenningar að Halogen hafi gufað upp.

Ríkir Ríkir Ríkir (húrra, húrra, húrraaaaaa!)

:: HauXon mánudagur, júní 16, 2003 [+] ::
...
|
  :: föstudagur, júní 13, 2003 ::
Hér í vesturbænum er ein gatan nefnd eftir kettinum mínum, Hrannars(-)tígur. Svo reyndi auðvitað einn borgarfulltrúi að vill á sér heimildir en honum var kippt út úr pólitík af "ókunnu afli".

:: HauXon föstudagur, júní 13, 2003 [+] ::
...
|
  :: fimmtudagur, júní 12, 2003 ::
Xælir fhelagar

Ég vildi bara vekja athygli á augljósum merkjum um yfirvofandi yfirtöku Ríkra sem farin eru að sjást í þjóðfélagi vorra daga. Í Hafnarfirði er nú verið að byggja heilt hverfi nefnt í höfuðið á einum Ríkra og kallast Vallahverfi. Einnig er búið að steypa saman grunnskólum á Selfossi þannig að þar er nú fjölmennasti grunnskóli landsins og heitir að sjálfsögðu Vallaskóli. Í augnablikinu ber reyndar fávís alþýðan þessi heiti fram sem Vaddlahverfi og Vaddlaskóli, en það er einungis tímaspursmál hvenær því verður við snúið svo nafn Ríks fái notið sín sem skyldi.

Valli

:: Valgarduz fimmtudagur, júní 12, 2003 [+] ::
...
|
  :: fimmtudagur, júní 05, 2003 ::
Samsærin eru allstaðar! Maður veit ekki fyrr en Billy Idol verður farin að gegna aðstoðarskólastjórastöðu í Rimaskóla eða Nick Kershaw kominn í kortagerðina. Ég sé fyrir mér senu þar sem flugstjórinn talar: " Welcome aboard flight number 6, 6, 6 .... íííjeee--aahhhhhh !!!! du du du du du dummm!" Hahahahaha! Annars er Gmaríus sjálfur erlendis að taka upp luft-myndband sem verður sýnt á MTV þar sem hann sést spila á gítar-hljómborð og þögn ríkir undir. Þannig getur fólk hlustað á lög sem þeim finnst góð án þess að þurfa að hlusta á lagið sem myndbandið er við og notið guðdómlegrar ásýndar Gmaríusar. Mér líst vel á að alþingismenn verði teknir inn í Íslenska dansflokkinn eins og Pétur Blöndal. Það hefði tildæmis verið betra að senda Tómas Inga Olrich í óperuna en til Parísar.

Ríkir uber alles, uber alles in der uniwersche!

:: HauXon fimmtudagur, júní 05, 2003 [+] ::
...
|

[::..Þóknanlegt..::]



Danskir teiknarar!



Jón Baldvin



Max Headroom



Seona Dancing



Türkmenbashy






STÓRVAL


[::.Tvífarinn.::]


Mugi jón Hafstein-son


William H. Macy
Hauxon á MSN

This page is powered by Blogger. Isn't yours?