:: welcome to Ríkir hf :: bloghome | Viltu vera memm? ::
Vikulistinn (halogen)
- - - - - - - - - -
Vikulistinn (gmarius)
- - - - - - - - - -
Vikulistinn (hauxon)
- - - - - - - - - -
Vikulistinn (kristallur)
- - - - - - - - - -
Vikulistinn (Valgarduz)
- - - - - - - - - -
[::..Eldra stuff..::]

  :: mánudagur, júní 16, 2003 ::

Nú er aðeins einn dagur þar til lýðurinn fagnar "frelsinu" og höfum við hjúin verið að gera garðinn klárann til að fullkomna blekkinguna. Garðurinn við Víðimel fjertíuogfjegur eins og listigarður skreyttur stjúpum, morgunfrúm, flauelsblómum og hvað öll hin heita. Mun lýðurinn halda að snyrtingin sé vegna sautjánda en í raun er verið að fagna hinum tuttugastaogöðrum er prinsipesa Hrannarsdóttir öðlast það sjálfstæði að bera eigið nafn. Hafa starfsmenn Reykjavíkurborgar staðið sig með miklu prýði fyrir hátíðarhöldin og ég legg traust mitt á að svo muni einnig vera um hinar dreyfðu byggðir landsins.

Einnig var garðurinn snyrtur til í því skyni að ef til vill myndi það laða Halogenið á melana. Vorum við hjúin þess fullviss að eina rökbæra ástæðan fyrir því að Halogen hefur ekki komið að skoða erfingjann okkar, sé að hann hafi ævinlega snúið við þegar fegurðarskynjun hans var ofboðið við hliðið á Víðimel fertíuogfjegur. Reyndar eru uppi kenningar að Halogen hafi gufað upp.

Ríkir Ríkir Ríkir (húrra, húrra, húrraaaaaa!)

:: HauXon mánudagur, júní 16, 2003 [+] ::
...
|

[::..Þóknanlegt..::]



Danskir teiknarar!



Jón Baldvin



Max Headroom



Seona Dancing



Türkmenbashy






STÓRVAL


[::.Tvífarinn.::]


Mugi jón Hafstein-son


William H. Macy
Hauxon á MSN

This page is powered by Blogger. Isn't yours?