:: welcome to Ríkir hf :: bloghome | Viltu vera memm? ::
Vikulistinn (halogen)
- - - - - - - - - -
Vikulistinn (gmarius)
- - - - - - - - - -
Vikulistinn (hauxon)
- - - - - - - - - -
Vikulistinn (kristallur)
- - - - - - - - - -
Vikulistinn (Valgarduz)
- - - - - - - - - -
[::..Eldra stuff..::]

  :: föstudagur, júlí 25, 2003 ::

Sælir.

Djarft þykja mér nú menn orðið kveða á þessum vef. Nú ætti lýðnum loks að verða ljóst hversu miklir andans menn eru hér á ferð. Skáld, kannski frekar ritsnillingar!

Ekki ætla ég að bæta hér um betur, enda finnst mér nóg að þeir félagar Kristallur og Hau sinni þeirri list. Annars þá tel ég að við þurfum að fara sinna þeirri list sem ort var um, GOLFINU. Að vísu stefndum ég, Hau og gulldrengurinn okkar á að halda eitt laumumót í morgun en ég lét aflýsa því á síðustu stundu sakir rigningar. Síðan þá hefur að vísu hætt að rigna og ég byrjað að bölva í hljóði. Þessi frestun kemur þó vonandi Hau til góða þar sem hann tjáði mér að ekki hefði hann fengið mikinn nætursvefn í nótt. Því má vera að við blásum aftur til leiks síðar í dag.

En þá að RIKIR closed, nú geri ég ráð fyrir því að fulltrúi okkar á suðurlandi hafi flutt búferlaflutningum á "nes hinna fögru akra" eða þá í versta falli á sveitabýli sitt við "fjörð hvalanna". Því er okkur orðið fátt til fyrirstöðu á því að blása til leiks þar sem ALLIR félagar gætu komið saman. Ég hvet menn til að koma með tillögur að leikdögum.

Einnig væri nú ekki úr vegi að halda hóf til heiðurs okkur sjálfum. Þá sérstaklega í tilefni þess að nú búum við allir á svæði sem ekki er meira en 17 mílur að þvermáli. Ég geri ráð fyrir að utan úr geimnum sjáist nú sterkur bjarmi frá þessu svæði, svokölluð jarðljómun!

Lifi Grímur Gíslason á Blöndósi!

:: Gmaríus föstudagur, júlí 25, 2003 [+] ::
...
|

[::..Þóknanlegt..::]



Danskir teiknarar!



Jón Baldvin



Max Headroom



Seona Dancing



Türkmenbashy






STÓRVAL


[::.Tvífarinn.::]


Mugi jón Hafstein-son


William H. Macy
Hauxon á MSN

This page is powered by Blogger. Isn't yours?