| Vikulistinn (halogen) |
| - - - - - - - - - - |
|
| Vikulistinn (gmarius) |
| - - - - - - - - - - |
|
| Vikulistinn (hauxon) |
| - - - - - - - - - - |
|
| Vikulistinn (kristallur) |
| - - - - - - - - - - |
 |
| Vikulistinn (Valgarduz) |
| - - - - - - - - - - |
| [::..Eldra stuff..::] | |
|
|
:: miðvikudagur, júlí 30, 2003 ::
Lyngdaleus æfir lítið
les jafnvel ennþá minna
Það er því svoldið skrýtið
Honum tekst samt að vinna
:: HauXon miðvikudagur, júlí 30, 2003 [+] ::
...
|
Xælinú fhjelagar
Nú hef ég ásamt minni ektakvinnu og vorum afkomendum yfirgefið land suðursins að fullu. Ekki höfum við þó enn fengið framtíðardvalarstað á Nesi Akranna, heldur búum við sem stendur í bílskúr, ferðatöskum og í bílnum á þvælingi milli Ness og Fjarðar. Okkar veraldargóss er þó komið að Vallholti 13 á Nesi Akranna þar sem aðsetur okkar mun verða um ókomin ár. Hitt er rétt, að nú erum vér allir komnir í kallfæri hver við annan og þá ekki úr vegi að huga að keppnisdegi hins mikla móts. Sem stendur er ekkert í veginum fyrir því að stefnt verði á 9. ágúst sem keppnisdag og mæli ég sterklega með þeim degi, enda grunar mig að þegar lengra líður á mánuðinn verðum við hjónin búin að fá íbúðina á Vallholtinu afhenta og þá komin á fullt í innanhússdekorasjónir.
Hvað keppnisstað varðar, þá held ég að Selsvöllur við Flúðir sé út úr myndinni þetta árið. Þá er spurning hvort menn vilji keppa á Nesi Akra eða í Dal Svína, eða jafnvel fara á ókunnar slóðir til tilbreytingar. Mér skilst á umtali að Hamarsvöllur við Borgarnes sé laungóður og með afar hátt erfiðleikastig og gæti því verið gott tsjallengj fyrir Ríka. Einnig er meginhluti hans í góðu hvarfi frá þjóðvegi þannig að Ríkir ættu að geta stundað íþrótt sína í friði fyrir æstum múg.
Ekki ætla ég hér að detta í sömu gryfju og aðrir ríkir virðast hafa gert, að grobba mig fyrirfram af væntanlegum árangri á Rich Closed. Hefur enda mínu nafni blessunarlega lítið verið blandað inn í þá umræðu hér á blogginu og er það vel. Hef ég ekki eytt viðlíka tíma á golfvelli og Gmaríus, ekki lesið helming þess fjölda golfbóka sem HauXon hefur lagt að baki, ekki hef þá náðargáfu að hafa "náttúrulega golfsveiflu" eins og Kristallur og að lokum kemst karlmennska mín varla í hálfkvisti við Halógeninn. Mitt eina markmið með golfspilun minni er að njóta þeirrar hreinu og tæru ánægju sem íþróttin veitir, og í félagsskap Ríkra er sú ánægja margföld.
Kveðjur úr Firði Hvala
Valgarduz Lyngdalaeuz
:: Valgarduz miðvikudagur, júlí 30, 2003 [+] ::
...
|
Er að hlusta á Soft Bulletin með Flaming Lips... þvílík og önnur eins snilld!! "I accidentally touched my head, and noticed that I had been bleeding. For how long I didn't know. What was this I thought that struck me, what kind of wepons have they got? The softest bullet ever shooooooot?" hreinasta snilltd! snilld! urr voff
:: HauXon miðvikudagur, júlí 30, 2003 [+] ::
...
|
:: mánudagur, júlí 28, 2003 ::
Hér er svo mynd af Sigrúnu Freyju í baði með mömmu sinni, sem ég set hér inn til þess að sanna að ég sé líka mjúkur maður en ekki bara harður vísuklambrari og golfnagli :-Þ

:: HauXon mánudagur, júlí 28, 2003 [+] ::
...
|
Zælir mikilsvirtu fjelagar! Nú hefur Gmaríus hafið för sína til Afríku þar sem hann ætlar að leysa vandann í Líberíu. Yfirskin ferðarinnar eru farþegaflutningar á milli Gatwick og Sierra Leone sem er nágrannaríki Líberíu. Gmaríus mun svo læðast yfir landamærin í skjóli nætur og "taka menn út". Ótrúlegt hugrekki ef tekið er mið af því að hann þorði ekki í golf á föstudaginn út af rigningu. Líbería var land búið til af Bandaríkjamönnum þegar þeir gáfu "frelsuðum" þrælum færi á að snúa aftur til Afríku. Merkileg náðargáfa sem Bandaríkjamönnum er gefin í utanríkismálum.
Aðeins klæddur nærhaldi,
njósnari í skjóli nætur.
"Berrassaður" í blámannalandi
berst við mannætur.
Svo er það hittingurinn. Við Aldarína erum laus 9. ágúst næstkomandi en aðrar helgar í ágúst eru "pantaðar". Þegar Gmaríus hefur lokið mannaveiðum í Afríku er líklegt hann hefji fuglaveiðar í september, þannig að góð skipulagning er nauðsynleg!
Baráttukveðjur!
H og miss og little miss.
:: HauXon mánudagur, júlí 28, 2003 [+] ::
...
|
:: föstudagur, júlí 25, 2003 ::
Sælir.
Djarft þykja mér nú menn orðið kveða á þessum vef. Nú ætti lýðnum loks að verða ljóst hversu miklir andans menn eru hér á ferð. Skáld, kannski frekar ritsnillingar!
Ekki ætla ég að bæta hér um betur, enda finnst mér nóg að þeir félagar Kristallur og Hau sinni þeirri list. Annars þá tel ég að við þurfum að fara sinna þeirri list sem ort var um, GOLFINU. Að vísu stefndum ég, Hau og gulldrengurinn okkar á að halda eitt laumumót í morgun en ég lét aflýsa því á síðustu stundu sakir rigningar. Síðan þá hefur að vísu hætt að rigna og ég byrjað að bölva í hljóði. Þessi frestun kemur þó vonandi Hau til góða þar sem hann tjáði mér að ekki hefði hann fengið mikinn nætursvefn í nótt. Því má vera að við blásum aftur til leiks síðar í dag.
En þá að RIKIR closed, nú geri ég ráð fyrir því að fulltrúi okkar á suðurlandi hafi flutt búferlaflutningum á "nes hinna fögru akra" eða þá í versta falli á sveitabýli sitt við "fjörð hvalanna". Því er okkur orðið fátt til fyrirstöðu á því að blása til leiks þar sem ALLIR félagar gætu komið saman. Ég hvet menn til að koma með tillögur að leikdögum.
Einnig væri nú ekki úr vegi að halda hóf til heiðurs okkur sjálfum. Þá sérstaklega í tilefni þess að nú búum við allir á svæði sem ekki er meira en 17 mílur að þvermáli. Ég geri ráð fyrir að utan úr geimnum sjáist nú sterkur bjarmi frá þessu svæði, svokölluð jarðljómun!
Lifi Grímur Gíslason á Blöndósi!
:: Gmaríus föstudagur, júlí 25, 2003 [+] ::
...
|
:: þriðjudagur, júlí 22, 2003 ::
Hér eru fleiri hugmyndir:
Hauxon gengur snautlega
slær útí skurði og grjót
Sigrar samt auðveldlega
eitt sem öll Ríkragolfmót
Þessi er sennilega best og raunsönnust:
Hauxon gengur snautlega
slær í skurði og vötn
Tuborginn hann tigulega
teigar af mikilli nautn
:: HauXon þriðjudagur, júlí 22, 2003 [+] ::
...
|
Með smá lagfæringum þar sem vatn á ekki mörg rímorð:
Hauxon gengur snautlega
slær útí skurði og polla
Hauxon með miklum trega
törfum kennir lexíu holla
:: HauXon þriðjudagur, júlí 22, 2003 [+] ::
...
|
:: mánudagur, júlí 21, 2003 ::
Á vellinum við Garða
Gmar, Hauxon æfa enn
Fyrir keppni harða
við Kristall & Hologen
Valli, því er hann ekki með?
Ha, hvað?
Marðarlega hjá honum sneitt!
Hmmmm!
Hvernig getur þetta skeð?
Já, auðvitað!
Sveitalubbinn getur ekki neitt!
DOUBLE FORE!
:: HauXon mánudagur, júlí 21, 2003 [+] ::
...
|
:: fimmtudagur, júlí 10, 2003 ::
Þat mælik nú sem sannast reynist at ek hefi eigi golfkylfu sveiflað síðan á móti Ríkra í Dal Svína, enda mun mér einum lítil gleði af slíkum sveiflunum minnugur gleði þeirrar sem nærvera Ríkra veitir við slíka leiki. Legg ek nú allt kapp á at ek komist sem fyrst með bú mitt ok búalið á Nes Akra svo nær nái Ríkum at vera ok þurfi eigi svo oft einn mínum kylfum að sveifla sem nú.
Vér hjónin höfum undanfarið skoðað íbúðir á Nesi Akra í gríð og erg en ekki enn fundið þá einu réttu. Annað hvort eru þær sem við sjáum of litlar/lélegar eða of dýrar. Engu að síður höfum við nánast pakkað öllu okkar hafurtaski og stefnum jafnvel á að millilenda í Hvalfjarðarstrandarhreppi (ath. lengsta nafn sveitarfélags á Íslandi!) á leið okkar á Akranes. Nærvera okkar á stór-Akranessvæði gæti því orðið staðreynd í kringum 20. þ.m.
:: Valgarduz fimmtudagur, júlí 10, 2003 [+] ::
...
|
:: þriðjudagur, júlí 08, 2003 ::
Ja, nú er ég nú aldeilis hissa!
Britney Spears segist ekki lengur vera jómfrú! Þetta kom fram í viðtali sem ÉG átti við hana í karlablaðinu W nýlega. En ég ákvað að bregða á leik í einni vísitasíu minni til vesturheims nýlega og bregða mér í hlutverk blaðamanns.
Þetta eru mikil tíðindi í heimi almúganns en þetta eru ekki neinar fréttir fyrir okkur Ríka þar sem Halogen da Ionized hefur haft hana sem fryllu sína frá 18 ára aldri (hennar), eða var það 14 ára. :Þ
:: Gmaríus þriðjudagur, júlí 08, 2003 [+] ::
...
|
:: laugardagur, júlí 05, 2003 ::
Gmaríus lifir líka, þrátt fyrir að hafa tekið sér full langt frí frá ritstörfum. Það gladdi mitt stóra hjarta að frétta að allir Ríkir -1 hefðu mætt til golfiðkunar í dal Svínanna. Verst þótti mér þó að hafa ekki verið þar sjálfur. Ekki er ólíklegt að einhverjir myndu álikta sem svo að hinir 4 Ríku hefðu einungis verið að draga úr samkeppni við sig á Ríkir Open. Þessu fer þó fjærri! Fjarvera mín var eingöngu í öryggisskyni og til þess að koma inn þeirri blekkingu hjá almúganum að einhver sundrung ríkti meðal Ríkra. Hhahahaha.
Annars þá hef ég nú haldið mig út á landi undanfarna daga, ég hef farið 2 hringi í kringum okkar stóra land það sem af er summri og hugsað mikið um golf.
Ég bíð annars spenntur eftir næsta Ríkir Open, mun stunda æfingar af kappi eins og aðstæður leyfa.
Lifið heilir, félagar!
:: Gmaríus laugardagur, júlí 05, 2003 [+] ::
...
|
:: þriðjudagur, júlí 01, 2003 ::
Yo´ll! HaloGENIUS lifir og er kominn aftur. Leynd mótsins sem Ríkir héldu lengst í óbyggðum, tókst ekki sem skildi. Þegar Ríkir mættu á staðinn höfðu safnast saman múgur og margmenni til að berja hina útvöldu augum. Að auki höfðu útsendarar leppstjórnarinnar komið fyrir woodoo lækni eða seiðkarli sem hafði með brögðum áhrif á sveiflu mína og þar með spilamennsku. Ljóst er að þetta var gert með því markmaði að koma mér úr jafnvægi og skapa glundroða innan samtakana. Vér minnumst nú allar sömu bolabragða á Flúðum síðastliðið haust þegar Hauxon varð fórnarlamb seiðkarla á vegum leppstjórnarinnar og spilamennskan eftir því.
:: Halogen þriðjudagur, júlí 01, 2003 [+] ::
...
|
Sagði hann ekki: "Ég er reiðubúinn að fórna lífi þínu, fyrir rétt þinn til að láta þær í ljós." Ég held a.m.k. að Sólveg Pétursdóttir hafi lesið þetta þannig.
Langar mig að þakka spilafélögum mínum í leynigolfmótinu sem fór fram um síðustu helgi sem liður í Ríkramótaröðinni í golfi. Í dal svínanna tókust Ríkir á við óblíð nátturuöflin og höfðu sigur. Halógen fór ekki úr að ofan eins og síðast og gekk því ekki eins vel og þá. Ég sjálfur "týndi" sveiflunni en fann hana sem betur fer aftur þar sem ég gleymdi henni nálægt fyrsta teig.
Svo vil ég benda á að Freyja er að sjálfsögðu einnig dregið af freigáta og þannig ér nálgunin bæði úr "Ancient mythology" og "Galaxy far far away" eins og spjátrungarnir myndu segja á tungu Saxa.
:: HauXon þriðjudagur, júlí 01, 2003 [+] ::
...
|
|
[::..Þóknanlegt..::]

Danskir teiknarar!

Jón Baldvin

Max Headroom

Seona Dancing

Türkmenbashy


STÓRVAL
[::.Tvífarinn.::]

Mugi jón Hafstein-son

William H. Macy
Hauxon á MSN
|