| Vikulistinn (halogen) |
| - - - - - - - - - - |
|
| Vikulistinn (gmarius) |
| - - - - - - - - - - |
|
| Vikulistinn (hauxon) |
| - - - - - - - - - - |
|
| Vikulistinn (kristallur) |
| - - - - - - - - - - |
 |
| Vikulistinn (Valgarduz) |
| - - - - - - - - - - |
| [::..Eldra stuff..::] | |
|
|
:: miðvikudagur, júlí 30, 2003 ::
Xælinú fhjelagar
Nú hef ég ásamt minni ektakvinnu og vorum afkomendum yfirgefið land suðursins að fullu. Ekki höfum við þó enn fengið framtíðardvalarstað á Nesi Akranna, heldur búum við sem stendur í bílskúr, ferðatöskum og í bílnum á þvælingi milli Ness og Fjarðar. Okkar veraldargóss er þó komið að Vallholti 13 á Nesi Akranna þar sem aðsetur okkar mun verða um ókomin ár. Hitt er rétt, að nú erum vér allir komnir í kallfæri hver við annan og þá ekki úr vegi að huga að keppnisdegi hins mikla móts. Sem stendur er ekkert í veginum fyrir því að stefnt verði á 9. ágúst sem keppnisdag og mæli ég sterklega með þeim degi, enda grunar mig að þegar lengra líður á mánuðinn verðum við hjónin búin að fá íbúðina á Vallholtinu afhenta og þá komin á fullt í innanhússdekorasjónir.
Hvað keppnisstað varðar, þá held ég að Selsvöllur við Flúðir sé út úr myndinni þetta árið. Þá er spurning hvort menn vilji keppa á Nesi Akra eða í Dal Svína, eða jafnvel fara á ókunnar slóðir til tilbreytingar. Mér skilst á umtali að Hamarsvöllur við Borgarnes sé laungóður og með afar hátt erfiðleikastig og gæti því verið gott tsjallengj fyrir Ríka. Einnig er meginhluti hans í góðu hvarfi frá þjóðvegi þannig að Ríkir ættu að geta stundað íþrótt sína í friði fyrir æstum múg.
Ekki ætla ég hér að detta í sömu gryfju og aðrir ríkir virðast hafa gert, að grobba mig fyrirfram af væntanlegum árangri á Rich Closed. Hefur enda mínu nafni blessunarlega lítið verið blandað inn í þá umræðu hér á blogginu og er það vel. Hef ég ekki eytt viðlíka tíma á golfvelli og Gmaríus, ekki lesið helming þess fjölda golfbóka sem HauXon hefur lagt að baki, ekki hef þá náðargáfu að hafa "náttúrulega golfsveiflu" eins og Kristallur og að lokum kemst karlmennska mín varla í hálfkvisti við Halógeninn. Mitt eina markmið með golfspilun minni er að njóta þeirrar hreinu og tæru ánægju sem íþróttin veitir, og í félagsskap Ríkra er sú ánægja margföld.
Kveðjur úr Firði Hvala
Valgarduz Lyngdalaeuz
:: Valgarduz miðvikudagur, júlí 30, 2003 [+] ::
...
|
|
[::..Þóknanlegt..::]

Danskir teiknarar!

Jón Baldvin

Max Headroom

Seona Dancing

Türkmenbashy


STÓRVAL
[::.Tvífarinn.::]

Mugi jón Hafstein-son

William H. Macy
Hauxon á MSN
|