:: welcome to Ríkir hf :: bloghome | Viltu vera memm? ::
Vikulistinn (halogen)
- - - - - - - - - -
Vikulistinn (gmarius)
- - - - - - - - - -
Vikulistinn (hauxon)
- - - - - - - - - -
Vikulistinn (kristallur)
- - - - - - - - - -
Vikulistinn (Valgarduz)
- - - - - - - - - -
[::..Eldra stuff..::]

  :: föstudagur, ágúst 29, 2003 ::

Hér er ein í tilefni þess að Gmarius er á veiðum.

Blóðhlaupin augun
böllurinn stinnur
Sýnir enga miskunn
er skepnuna finnur

Svo dægurtexti á ensku svo að heimurinn geti sungið með.

Out flow the guts
as the belly he cuts.
Its the stinking smell,
he loves so much.

Cutting the meat
he wont even eat
The killer's so tired,
he can't stand on his feet

"Save the Reindeers!!"

:: HauXon föstudagur, ágúst 29, 2003 [+] ::
...
|
  :: fimmtudagur, ágúst 28, 2003 ::
Er manni þá óhætt að senda Orkuveitunni gíróseðil? Guð minn góður hvað Gabríela er léleg tónlistarkona, horfði á myndbandið (sem er ágætt, og tæknilega vinnan stórfengleg!) en tónlistin undir er er svona dæmigerð 'Steplaaðreynaaðveraartíengeturekkigertannaðenlélegarbarnagælur' ekki ósvipað ungbarnaplötunni hennar Röggu eða stelpan sem gerir 'búva' bolina. uusssss .... Eins með Björk, flest lögin hennar eru vögguvísur samdar fyrir son hennar og svo reynt að spila lagið með elektrónískum surg hljóðum og þá er allt voða artí fartí.

"Æjmmm ohhlll sóó slííípííí" tkrs tkrst pffk pfkk "Æjmmm spíííkin læk a tjsæææææld" tkrs tkrst pffk pfkk ##%%%!!!RUSL##!!

:: HauXon fimmtudagur, ágúst 28, 2003 [+] ::
...
|
  :: þriðjudagur, ágúst 26, 2003 ::
Svo vil ég taka fram að það er stranglega bannað að tala illa um Orkuveituna....bæði hér og annarsstaðar. Í leiðinni vil ég ljóstra því upp að hækkun heita vatnsins var neyðarúrræði hjá þeim svo þeir hefðu efni á minni vinnu. Því má líta svo á að hækkun heita vatnsins sé í raun óbein skattlagning af Ríkra hálfu. Því ætti öllum að vera ljóst að Orkuveita Reykjavíkur er vinveitt Ríkum og starfar í þeirra þágu. Í framhaldinu mælist ég til að skammstöfun þeirra (OR), muni hér eftir standa fyrir; Orkuveita Ríkra.

:: Halogen þriðjudagur, ágúst 26, 2003 [+] ::
...
|
Já og fyrst maður er að láta móðann mása.....hvaða bull er það að geta ekki komist hvenar sem er.......hvernig er með forgangsröðina hjá Ríkum. Djöfulsins aumingjar!!!
E.s.
Ég kemst alltaf, nema á fimmtudögum(Þá fer ég á bingó með mömmu) og sunnudögum (þá fer ég í kirkju).

:: Halogen þriðjudagur, ágúst 26, 2003 [+] ::
...
|
jammz...er á lífi. En haldið í gíslingu. Vil vekja athygli á heimsfrægð Zetors.......check it!!

:: Halogen þriðjudagur, ágúst 26, 2003 [+] ::
...
|
Halógeíusinn er undercover að vinna fyrir Keisaraveldið, hann hefur því ekki mikinn tíma til þess að gefa skýrslur þar sem Helgi Pé og hitt helvítið fylgjast með honum.

:: HauXon þriðjudagur, ágúst 26, 2003 [+] ::
...
|
  :: mánudagur, ágúst 25, 2003 ::
Tek undir með Haxon, helgin 19. til 20. hentar vel! Helgin þar á undan er líka fín, nema hvað að undirritaður er jafnvel að spá í að fara til Ítalíu til að tryggja sigur Schúmma. Það er þó ekki víst hvort ég læt verða að því! Kemur í ljós. Annars þá er ég að fara austur á firði til að stunda þar skipulagða eyðingu á hreindýrum og gæsum. Ekki liggur fyrir hvnær ég kem til byggða á ný.

:: Gmaríus mánudagur, ágúst 25, 2003 [+] ::
...
|
Þar sem ég stakk upp á því að menn stingi upp á einhverju, ætla ég að stinga upp á helginni 19-20 sept. Helgin þar á undan væri líka fín, en svo virðist sem nærveru Ríks sé óskað á ítalíukappakstrinum (sennilega er Schumi orðinn óöruggur) sem fer fram þá helgina.

:: HauXon mánudagur, ágúst 25, 2003 [+] ::
...
|
  :: sunnudagur, ágúst 24, 2003 ::
Mér sýnist sem svo að hvítkúluknattleikurinn verði áfram að fara fram við ókennilegar aðstæður vegna árstíðarbundins veðurfars sem áður. Þetta að sjálfsögðu eykur karlmennskudáðarþátt spilerísins en getur aftur á móti sett strik í reikninginn ef menn vilja fara úr lopapeysunni og ullarvettlingunum á meðan á leik stendur. Ef til vill ættum við að breyta hinu árlega hvítkúlumóti Ríkra í árlegt spilavistarmót (getum boðið elliheimilinu með) sem hægt er að leika í mestu illviðrum án þess að það hafi teljandi áhrif (nema mætingu hjá eldriborgurunum). Það ætti nú ekki að reynast erfitt að finna einn stakan dag (raunar hálfan) þessa 40 sem eftir eru af ágúst og september ef vilji er fyrir hendi. Til að byrja með geta þeir sem ekki komast á ákveðnum tímapunktum stungið upp á einhverju í staðinn sem svo aðrir geta meldað þar um. Ég kalla á þá áræðni, skipulagsgáfu, lífsorku, snilld, fimi og nákvæmni sem sameinað hefur Ríka í gegnum árþúsundin. Ætla menn að láta hversdagsleg ómerkisstörf (utan vinnu) stöðva messu hinna miklu stjórnenda alheimsins? Klárum þetta mál! Ekki vill maður að þrotlausar æfingar undanfarið ár séu til einskis. Við hjúin komumst alla daga nema næsta laugardag.
Skál! Fore! Hvar er golfskálinn... er þoka?

:: HauXon sunnudagur, ágúst 24, 2003 [+] ::
...
|
  :: þriðjudagur, ágúst 19, 2003 ::
Neiannars. Ég var að fá þær upplýsingar að 6. september verður frú mín í fullri vinnu vegna sérstaks starfsdags á vinnustað hennar. Aldrei friður með eitt eða neitt!!!

Fer þá að verða fátt um fína drætti með lausa daga?!?!?!??!

:: Valgarduz þriðjudagur, ágúst 19, 2003 [+] ::
...
|
  :: mánudagur, ágúst 18, 2003 ::
Svona bæ ðe vei má geta þess að Málningardögum er að verða lokið á Vallholti 13, taka þá við þrifadagar og síðan innflutningsdagar. Ættum við hjónin og afkvæmi okkar að verða komin þar í hús í lok vikunnar og þá verður óhætt að fara að droppa inn í kaffi.

Hvernig var með dagsetningu golfmóts? Var ekki rætt einhverntíma um fyrstu helgi septembermánaðar? Mótsdagur yrði þá sennilega laugardagur 6. sept. Hvað segja menn um þann dag?

Kveðjur úr bænum í brekkunni á nesi akranna

vlj

:: Valgarduz mánudagur, ágúst 18, 2003 [+] ::
...
|
Ekki veit ég hvar vellirnir eru enda hef ég ekki reynslu af golfspilun svo ýkja víða um land. Svona úr lofti séð virðast þetta nú ekki vera neitt voðalega merkilegir vellir, hálfgerðir skítavellir.

Vísuna get ég hins vegar botnað::::

Besservisserar best allt vita
benda oss á réttan stað.
Vellirnir heita Skrum og Skita
skaltu nú fá að vita það.

:: Valgarduz mánudagur, ágúst 18, 2003 [+] ::
...
|
  :: þriðjudagur, ágúst 05, 2003 ::
Ekki þvælist skáldagáfan fyrir þér félagi Hauxon í dag frekar en aðra daga.

Mig langar að minna á emailinn sem ég var að senda frá mér vaðandi samskotareikningin!

Síðan væri fínt að fá inn mögulegar dagsetningar vegna golfmótsins. Mig langar síðan að benda það ek og Valgardus, auk ljósa-engilsins áttumst við í 9 holur á Garðavelli í dag. Baráttan var blóðug og grimm en allir stóðu samt uppi sem sigurvegarar.

Síðan þá lagar mig að senda blóðugar bardagakveður til mannsins með blóðrauðu augun!

:: Gmaríus þriðjudagur, ágúst 05, 2003 [+] ::
...
|
Hér er komin ein ferskeitla fyrir veturinn:

Háæruverðugu höfðingjar!
Hlýnar mér að hitta ykkur.
Senn á borðum selshreifar.
Súrmatur og sterkur drykkur.

Erindi í kvæðabálkinn sem getur verið fjórskipur

Ríkramannakviða
1. hluti : Óðurinn til mikilfengleikans
2. hluti : Hvítkúluglímuannáll
3. hluti : Dumbungsdrápa - étið sér til hita
4. hluti : Requiem

:: HauXon þriðjudagur, ágúst 05, 2003 [+] ::
...
|
  :: föstudagur, ágúst 01, 2003 ::
Heilir og sælir fjelagar!
Staðsetning mótsins skiptir Ríka litlu en staðahaldara öllu. Ég er til í að spila hvar sem er svo lengi sem einhver lánar mér kylfu ræfil til að berja hnykilinn áfram. Anyway. Talandi um músik. Hef aðeins verið að rifja upp Stone Roses. "I wanna be adored" er náttúrulega fokking næst besta lag í heimi eða þar um bil. Auglýsi ég hér með eftir diskum með þeim Steinrunnu.

:: Halogen föstudagur, ágúst 01, 2003 [+] ::
...
|

[::..Þóknanlegt..::]



Danskir teiknarar!



Jón Baldvin



Max Headroom



Seona Dancing



Türkmenbashy






STÓRVAL


[::.Tvífarinn.::]


Mugi jón Hafstein-son


William H. Macy
Hauxon á MSN

This page is powered by Blogger. Isn't yours?