:: welcome to Ríkir hf :: bloghome | Viltu vera memm? ::
Vikulistinn (halogen)
- - - - - - - - - -
Vikulistinn (gmarius)
- - - - - - - - - -
Vikulistinn (hauxon)
- - - - - - - - - -
Vikulistinn (kristallur)
- - - - - - - - - -
Vikulistinn (Valgarduz)
- - - - - - - - - -
[::..Eldra stuff..::]

  :: sunnudagur, ágúst 24, 2003 ::

Mér sýnist sem svo að hvítkúluknattleikurinn verði áfram að fara fram við ókennilegar aðstæður vegna árstíðarbundins veðurfars sem áður. Þetta að sjálfsögðu eykur karlmennskudáðarþátt spilerísins en getur aftur á móti sett strik í reikninginn ef menn vilja fara úr lopapeysunni og ullarvettlingunum á meðan á leik stendur. Ef til vill ættum við að breyta hinu árlega hvítkúlumóti Ríkra í árlegt spilavistarmót (getum boðið elliheimilinu með) sem hægt er að leika í mestu illviðrum án þess að það hafi teljandi áhrif (nema mætingu hjá eldriborgurunum). Það ætti nú ekki að reynast erfitt að finna einn stakan dag (raunar hálfan) þessa 40 sem eftir eru af ágúst og september ef vilji er fyrir hendi. Til að byrja með geta þeir sem ekki komast á ákveðnum tímapunktum stungið upp á einhverju í staðinn sem svo aðrir geta meldað þar um. Ég kalla á þá áræðni, skipulagsgáfu, lífsorku, snilld, fimi og nákvæmni sem sameinað hefur Ríka í gegnum árþúsundin. Ætla menn að láta hversdagsleg ómerkisstörf (utan vinnu) stöðva messu hinna miklu stjórnenda alheimsins? Klárum þetta mál! Ekki vill maður að þrotlausar æfingar undanfarið ár séu til einskis. Við hjúin komumst alla daga nema næsta laugardag.
Skál! Fore! Hvar er golfskálinn... er þoka?

:: HauXon sunnudagur, ágúst 24, 2003 [+] ::
...
|

[::..Þóknanlegt..::]



Danskir teiknarar!



Jón Baldvin



Max Headroom



Seona Dancing



Türkmenbashy






STÓRVAL


[::.Tvífarinn.::]


Mugi jón Hafstein-son


William H. Macy
Hauxon á MSN

This page is powered by Blogger. Isn't yours?