:: welcome to Ríkir hf :: bloghome | Viltu vera memm? ::
Vikulistinn (halogen)
- - - - - - - - - -
Vikulistinn (gmarius)
- - - - - - - - - -
Vikulistinn (hauxon)
- - - - - - - - - -
Vikulistinn (kristallur)
- - - - - - - - - -
Vikulistinn (Valgarduz)
- - - - - - - - - -
[::..Eldra stuff..::]

  :: fimmtudagur, september 18, 2003 ::

Sennilega hefur hann tekið upp nafnið Johnny Kay þar sem Jorgen van Kreschwengunken hefur þótt of erfitt?

Gmaríus hefur aðeins hlotnast sá heiður að bera tiltilinn golfmeistari Ríkra vegna þess að hann drekkur ekkert á meðan á keppninni stendur. Við hinir höfum listfengi golfsveiflunnar að leiðarljósi, frekar heldur en beinharðar tölur. Óendanleg mýkt sveiflunnar, flæði hugar og líkamans hafa verið aðal markmið okkar hinna með spileríinu. Náttúrulega ef Gmaríus heldur að við látum hann vinna sem gulla gull aftur í ár er það misskilningur, því þegar mótið fer fram verður hann loks orðinn fullorðinn og hefur því nægan þroska til að skilja er við tökum á honum af fullri hörku.

Hvað ætlar svo listaselloutið að fremja þetta árið? Frægt er þegar hann sigraði hausthörkurnar með bringuhárunum. Fer hann úr öllu í ár?? Hlaupa húsmæður í Jörundarholtinu út frá uppvaskinu til móts við "the Ultimate Male"?? Kemur Kristallur meira en kassa af Föroyja bjór í golftöskuna?? Labbar hann á eitthvað? Munum við Valgarduz ná að stíga upp úr ömurlegri meðalmennsku hvað varðar golfskor?? Eigum við hvorki möguleika á að vinna eða tapa??

Ég legg til að við spilum holukeppni með forgjöf þannig að golfið verði meiri og harðari keppni. Það þýðir líka að Mr. G vinnur ekki sjálfkrafa. Ég er að spá í að útbúa handsmíðaðan farandverðlaunagrip sem sigurvegarinn verður að finna góðan og áberandi stað í stofunni sinni og hafa til sýnis meða hann heldur titlinum.

Spennan er ótrúleg!

:: HauXon fimmtudagur, september 18, 2003 [+] ::
...
|

[::..Þóknanlegt..::]



Danskir teiknarar!



Jón Baldvin



Max Headroom



Seona Dancing



Türkmenbashy






STÓRVAL


[::.Tvífarinn.::]


Mugi jón Hafstein-son


William H. Macy
Hauxon á MSN

This page is powered by Blogger. Isn't yours?