| Vikulistinn (halogen) |
| - - - - - - - - - - |
|
| Vikulistinn (gmarius) |
| - - - - - - - - - - |
|
| Vikulistinn (hauxon) |
| - - - - - - - - - - |
|
| Vikulistinn (kristallur) |
| - - - - - - - - - - |
 |
| Vikulistinn (Valgarduz) |
| - - - - - - - - - - |
| [::..Eldra stuff..::] | |
|
|
:: mánudagur, september 29, 2003 ::
Sammála síðustu tveim ræðumönnum. Eins og berlega kom í ljós á afmælismóti GMars um helgina er golfform mitt ekki upp á marga fiska þessa dagana og því ekki sérlega sniðugt að ég sé mikið að taka þátt í Haraldarmótum hjá leyniklúbbum við slíkar aðstæður. Mér finnst einsýnt að við störtum móti á hádegi þann fjórða, spurning hvort einhver taki ekki að sér að ræða við Brynjar þannig að við eigum kláran rástíma með góðum fyrirvara.
VLJ
:: Valgarduz mánudagur, september 29, 2003 [+] ::
...
|
:: föstudagur, september 26, 2003 ::
Svo er bara að vona að það hafi ekki verið næturfrost því þá er völlurinn lokaður fram að hádegi. Hjá Golfklúbbi Borgarness er "Bændaglíma Shell Brúartorgi" 4. október og er ekki viss um að Þórisstaðir séu enþá opnir en við getum tékkað á því. Ef við ætlum líka að fara að spila í Borgarnesi eða upp í Svínadal bætist við klukkutími, einn og hálfur í ferðir. Ég held því að við ættum að reyna að hefja leik bara um kl 12 á Garðavelli og Kiddi getur þá tekið 9 holur með okkur (1000 kr.). Ég er ekki viss um að það sé góð hugmynd að það séu holl með óvönum í miðjum Haraldarbikarnum. Ef við Grétar höfum áhuga á að taka þátt í mótinu í leiðinni ættum við að reyna að fá að vera síðasta hollið svo að við getum haldið hópinn. Annars held ég að geti verið erfitt að taka þátt í tveggja daga móti sömu helgi og Ríkir hittast (eins og reynslan sýnir okkur).
:: HauXon föstudagur, september 26, 2003 [+] ::
...
|
:: fimmtudagur, september 25, 2003 ::
Sælir, ég vil ekki vera partýpadda en ég tel rétt að benda mönnum á að þann 4. og einnig 5 október verður haldið mót á Garðavelli, fyrir utan fyrirhugað mót Ríkra! En það er víst Haraldarbikarinn, elsta innanfélagsmót leynigolfklúbbsins Leynis. Þar mun víst verða ræst út frá 0830 til 1200 báða dagana! Svo nú er bara spurning um hvort við eigum bara ekki að taka þátt í því móti líka og sýna hvers við erum nú megnugir. :o Spurning um að þeir Félagar sem ekki félagar í leyniklúbbnum Leyni fái sérstaka undanþágu sé þess nokkur kostur. Annars verðum við bara að byrja eftir hádegi. Nánari upplýsingar á golf.is
:: Gmaríus fimmtudagur, september 25, 2003 [+] ::
...
|
Persónulega væri ég alveg til í ræsingu fyrir hádegi, afslöppun seinni part og síðan át og drykkju um kvöldið. Líst þar af leiðandi ágætlega á málamiðlunartillögu Kristalls. Aðalatriðið er að Hauxon gleymi ekki myndavélinni!!!!
Fore
:: Valgarduz fimmtudagur, september 25, 2003 [+] ::
...
|
Ég held að það hljóti að vera hægt að fallast á þessa tillögu. Það er reyndar oft frost svona snemma, en skiptir Ríka náttúrlega engu máli. Mótið verður skemmtilegast ef allir geta verið með þannig að ef þetta er mögulegt þá er það frábært! Ætli maður yrði ekki að takmarka bjórdrykkjuna við svona 4 stk. svo að maður verði ekki slafrandi um bæinn á milli móts og kveldmatar. Hvað segið þið hinir?
:: HauXon fimmtudagur, september 25, 2003 [+] ::
...
|
:: miðvikudagur, september 24, 2003 ::
Glæsilegar myndir Hauxon. Myndin af Valla og Halla er sannkallað "Kodak moment".
Fore
:: Gmaríus miðvikudagur, september 24, 2003 [+] ::
...
|
Hér svo önnur (sést hver hefur mestan tíma á sínum höndum :-)

:: HauXon miðvikudagur, september 24, 2003 [+] ::
...
|
Svona til þess að peppa menn upp fyrir herlegheitin, þá fann ég nokkrar myndir frá því úr Hvítkúkuglímunni í fyrra. Hér er ein af þeim betri:

:: HauXon miðvikudagur, september 24, 2003 [+] ::
...
|
Ég ætla hins vegar að viðurkenna að ég á ónýta tölvu og get því örugglega ekki spilað Links.
:: Valgarduz miðvikudagur, september 24, 2003 [+] ::
...
|
Miðar fást í forsölu í Olís nesti á Akranesi. Kosta 1300 krónur í forsölu en 1500 á vellinum sjálfum. Reyndar held ég að ég hafi lesið einhvers staðar að kreditkorthafar Visa fái miðann á þúsundkall. Reyndar ekki alveg viss.
Haldiði að allir komist á völlinn. Við ættum þá kannski að spila golf um morguninn ef allir eru lausir hehehehehehehehe!!!:-)
:: Valgarduz miðvikudagur, september 24, 2003 [+] ::
...
|
:: þriðjudagur, september 23, 2003 ::
Ekki ætla ég að fullyrða neitt um tölvumál Kritalls.
Hitt er aftur á móti á hreinu að leikurinn er klukkan 14 á laguardaginn. Spurning hvort það sé hægt að kaupa miða einhversstaðar í forsölu?
:: Gmaríus þriðjudagur, september 23, 2003 [+] ::
...
|
Verst að Kiddi getur heldur ekki verið með í Links þar sem hann á ónýta tölvu :-D
Við ættum að safna liði á leikinn (undarlegt að við séum allir lausir??) . Klukkan hvað er hann?
:: HauXon þriðjudagur, september 23, 2003 [+] ::
...
|
Ég ætla nú rét að vona að spádómar Valgarduz rætist ekki um að það verði eingöngu spilaður trekantur á golfvellinum. :Þ
Annars ætti Halogen að drífa sig ellimanna nýlenduna, það ku víst vera í tísku að ungir menn velji sér eldri konur. Ég reikna bara með þér, það ætti að vera laust herbergi í íbúðinni. Síðan getur þú endað ferðina með því að dreifa erðaefninu meðal unglambanna í Boston. Ekki leiðinleg ferð það.
4. október er dagurinn, sama hvernig verður verður og sama hversu margir/mörg við verðum! Síðan ef illa gengur þá getum við spilað Links í allan vetur og æft okkur þannig fyrir næsta vor. Minnir mig á áætlanir okkar Hauxon um að koma velli Garða inn í Links.
Annars þá sit ég nú heima og drekk sítrónuvatn og þurka hor úr nös, vona að það verði búið fyrir næstu helgi þegar við vinnum bikarinn til heiðurs mér og mínum 3 áratugum. Auðvitað mætum við allir á völlinn (Laugardalsvöllinn), ég held að ekkert geti hyndrað það. Nema kannski loftsteinn, oh umm eitthvað fleira.
Upp með stríðsmálinguna!!
Ps. ég vona að félagi Valgarduz nái sér fjótt af tramanu sem samlíking mín við mynd frá Hauxon olli :))))
:: Gmaríus þriðjudagur, september 23, 2003 [+] ::
...
|
Endar kannski með því að undirritaður, Hauxon og genið verðum einir um hituna á golfvellinum???
:: Valgarduz þriðjudagur, september 23, 2003 [+] ::
...
|
Ég er alltaf til í að éta og drekka. Ekki síst þegar því fylgja heimspekilegar umræður um heimsyfirráð.
Verum ekkert að væflast með þetta. Höldum okkur við laugardaginn 4. október og þeir sem geta mætt mæta þegar þeir geta.
(Föttuðuð þið þetta?) Fyrir eða eftir golfspilun skiptir ekki öllu máli.
Ætlar annars einhver á úrslitaleik á laugardaginn?
:: Valgarduz þriðjudagur, september 23, 2003 [+] ::
...
|
En hvað segið þið um að taka aðalfund í anda fyrsta aðalfundar sem haldinn var á Skólavörðustígnum. Sleppa golf spilun....bara éta, drekka og ákveða örlög almúgans. Spurning samt að óvanir sleppi vindlareykingum svo samkoman endi ekki eins og um árið. Sjálfur vil ég gjarnan að hún taki svipaða stefnu, enda fór genið ekki einsamalt heim.
:: Halogen þriðjudagur, september 23, 2003 [+] ::
...
|
ja...seisei....sjálfur er ég hvort eð er aldrei laus...er alltaf annað hvort á bingói með mömmu eða í messu.
Sver ég mig þar með í ætt með Félaga Kristalli og Félaga Gmar. Kristallur kýs að eyða deginum með ömmu, og Gmar kýs að skella sér í ellilífeyrisparadís og sötra margarítu með könum sem komnir eru yfir síðasta söludag.
:: Halogen þriðjudagur, september 23, 2003 [+] ::
...
|
:: mánudagur, september 22, 2003 ::
Sveinar kátir smælið!!!
Það er nú alger óþarfi að vera eitthvað hörundsár. Til dæmis er ég lítið sem ekkert móðgaður yfir því að GMar hafi líkt mér við þennan einstaklega ófríða mann á myndinni frá HauXon. Því eins og HauXon réttilega bendir á, þá snýst málið einfaldlega um það hvort þetta mót skuli haldið eða ekki. Ríkir gera ekki mannamun á milli annarra ríkra, en það eru nú einu sinni haustjafndægur á morgun og vetrarríki bara orðið talsvert nú þegar. Það sem ég á við er það, að við slógum mótinu á frest vegna anna Ríkra eins oft og lengi og hægt var. Nú finnst mér einfaldlega varla hægt að draga það lengur - þetta er hreinlega orðið spurning um af eða á - ekkert persónulegt, Kristallur:-)
Þar sem ég telst sennilega vera meðalgutlari í golfi, í svipuðum klassa og áðurnefndur Hauxon, þá grunar mig einnig að við meðalmennirnir deilum sama brennandi áhuganum á íþróttinni, og þar með á því að þetta golfmót verði að veruleika. Þar að auki verðum við nú að viðurkenna, að það yrði andskoti hallærislegt að um leið og síðasti Ríkur flytur aftur á Suðvesturhornið og oss aðeins dreift niður á tvö sveitarfélög, að þá félli golfmótið niður undir eins. Nei nei og aftur nei!! Það má ekki gerast!!!
:: Valgarduz mánudagur, september 22, 2003 [+] ::
...
|
Jæja jólasveinar! Málið snýst ekki um hvort einhver sé að dissa einn eða neinn hvorki Ríka eða ömmur okkar. Málið snýst bara um það hvort það á að halda þetta eða ekki. Það er nokkuð langt síðan þessi dagsetning var samþykkt sem eini möguleikinn. Það er lágmark að menn stingi upp á einhverju í staðinn ef þeir telja að hægt sé að gera hlutina öðruvísi.
Ég var aðeins að stinga upp á að Kristallur reyndi að púsla þessu einhvernveginn saman þannig að við getum allir(öll) hist, þó það væri ekki nema partur úr degi. Þó svo að ég hafi ekki haft minnstu hugmynd um hvers eðlis afmælisboðið væri eða klukkan hvað það er haldið, þýðir það ekki að mér finnist eitthvað lítið til koma með afmæli Drangma, síður en svo.
Urrrrrr voff voff
Hrannkoff
:: HauXon mánudagur, september 22, 2003 [+] ::
...
|
Það eru nokkur atriði sem ég þarf að koma að.
Varðandi hommabrandarann þá verð ég að draga í efa að það hafi verið sá aftasti, þar sem það var enginn aftastur. Þeir mynduðu hring í stutunni. Af því leiðir að það hefur verið einhver utanað komandi observer sem hefur prumpað.
Varðandi myndina sem Hauxon lét fylgja með grein sinni hér að neðan, þá fynnst mér þessi maður afskaplega líkur Herra Valgarduz. Í raun alveg óhugnalega. Líklega er þetta einn af tvíförum hans sem hann notar óspart við hin ýmsustu tækifæri.
Varðandi dagsetninguna þá held ég að við ættum að stefna á 4. október og á að nota þá jafnaðarmannaleið sem Valgerduz og Hauxon komu að í fyrri greinum. Sjálfur er ég ekki búinn að fá skrá fyrir október og veit því ekki hvort ég fæ þau frí sem ég pantaði, þar á meðal 4. október. Þetta mót verður vart dregið lengur nema þá að Ríkir sjái sér fært að mæta í heimsókn til mín í Florída síðustu vikuna í október. Bíð upp á fría gistingu meðan húsrúm leyfir, mjög stutt á nokkra golfvelli og í skemmtigarða. Option 3 í þessu máli er að spila mótið í golfhermi í Kópavoginum (þar er alltaf logn og 20 stiga hiti).
Annars þá bið ég fyrir bestu afmæliskveðjur til ættarhöfðingans í The Clan Drangar, auk þess sem hann Valli fær góðan skammt af afmæliskveðjum líka.
Við viljum Vilkó! Við viljum Vilkó! Við viljum Vilkó!
:: Gmaríus mánudagur, september 22, 2003 [+] ::
...
|
Amma mín var sjötug um daginn og ég kíkti til hennar í kaffi ásamt öðrum fjölskyldumeðlimum, það var fínt en tók ekki 24 tíma. 4. október er bara síðasti séns. Það var ákveðið hér á blogginu að þessi dagsetning stæði hvað sem tautaði og raulaði.
Hvort haldið þið að sé skemmtilegra: Endur taka sömu setninguna 15 sinnum fyrir ömmu sína eða að leysa heimsvandann undir ljúfum tónum Velvet Underground og sterkum drykk?
Ég er reyndar á því að sérhagsmunahyggja sé aðal ástæðan fyrir því að þessu hefur verið frestað hingað til. Það segir sig sjálft að maí, júní, júlí, ágúst og september stóðu allir til boða undir mótið en svo virðist sem mönnum hafi tekist að finna sér eitthvað "merkilegra" að gera hverja einustu helgi alla þessa fimm mánuði. Áhugaleysið er bara því miður algert og ég sé lítinn tilgang í að reyna að halda golfmótið að ári, það verður bara sama helvítis fokkið! :-/
Yfir og út motherfuckers!
:: HauXon mánudagur, september 22, 2003 [+] ::
...
|
Skamm Kristallur!!!
Bæði fyrir að dissa Halogen og líka fyrir að eiga níræða ömmu akkúrat núna.
Svarið við hommaspurningunni er náttúrlega: "Sá aftasti, hann var sá eini sem gat það."
Hvað golfmót varðar, þá fer þetta að verða spurning um það hvort við förum ekki bara í golf og þeir mæti sem geti. Það er ekki hægt að draga þetta alveg fram að jólum. Verandi Strandamaður veit ég, að þar sem fleiri en tveir Strandamenn koma saman verður sjaldnast eitthvert fínt og dannað kaffiboð - vaðandi fyllerí er mun líklegra við slíkar aðstæður. Athugaðu samt tillögu HauXons hér að neðan. Við getum alveg farið seint af stað, eða jafnvel byrjað og þú komið inn í hópinn á seinni níu :-)
:: Valgarduz mánudagur, september 22, 2003 [+] ::
...
|
:: sunnudagur, september 21, 2003 ::
Sei sei og jæja jamm! Það er tvennt í stöðunni að mínu mati. Það er annarsvegar að halda golfmótið eins og við vorum búnir að ákveða og menn láti sig þá bara vanta ef þeir komast ekki eða að færa þetta fram á föstudag. Ég held að færsla fram á föstudag sé ekki raunhæfur kostur þar sem flestir eru bundnir í vinnu og þar af leiðandi gæti reynst örðugt að leggja tímanlega af stað.
Er þetta afmæli ekki kaffiboð? Getið þið ekki mætt snemma og farið snemma? Ég hugsa að við hinir gætum sætt okkur við að leggja eitthvað seinna af stað. Athugaðu málið :-)
:: HauXon sunnudagur, september 21, 2003 [+] ::
...
|
:: laugardagur, september 20, 2003 ::
Ég kunni nú ekki við að pósta þessu svari þó mér hafi flogið það í hug :-)
:: HauXon laugardagur, september 20, 2003 [+] ::
...
|
:: fimmtudagur, september 18, 2003 ::
sex hommar saman í sturtu - einn þeirra prumpar
-hver prumpaði?????
:: Valgarduz fimmtudagur, september 18, 2003 [+] ::
...
|
Sennilega hefur hann tekið upp nafnið Johnny Kay þar sem Jorgen van Kreschwengunken hefur þótt of erfitt?
Gmaríus hefur aðeins hlotnast sá heiður að bera tiltilinn golfmeistari Ríkra vegna þess að hann drekkur ekkert á meðan á keppninni stendur. Við hinir höfum listfengi golfsveiflunnar að leiðarljósi, frekar heldur en beinharðar tölur. Óendanleg mýkt sveiflunnar, flæði hugar og líkamans hafa verið aðal markmið okkar hinna með spileríinu. Náttúrulega ef Gmaríus heldur að við látum hann vinna sem gulla gull aftur í ár er það misskilningur, því þegar mótið fer fram verður hann loks orðinn fullorðinn og hefur því nægan þroska til að skilja er við tökum á honum af fullri hörku.
Hvað ætlar svo listaselloutið að fremja þetta árið? Frægt er þegar hann sigraði hausthörkurnar með bringuhárunum. Fer hann úr öllu í ár?? Hlaupa húsmæður í Jörundarholtinu út frá uppvaskinu til móts við "the Ultimate Male"?? Kemur Kristallur meira en kassa af Föroyja bjór í golftöskuna?? Labbar hann á eitthvað? Munum við Valgarduz ná að stíga upp úr ömurlegri meðalmennsku hvað varðar golfskor?? Eigum við hvorki möguleika á að vinna eða tapa??
Ég legg til að við spilum holukeppni með forgjöf þannig að golfið verði meiri og harðari keppni. Það þýðir líka að Mr. G vinnur ekki sjálfkrafa. Ég er að spá í að útbúa handsmíðaðan farandverðlaunagrip sem sigurvegarinn verður að finna góðan og áberandi stað í stofunni sinni og hafa til sýnis meða hann heldur titlinum.
Spennan er ótrúleg!
:: HauXon fimmtudagur, september 18, 2003 [+] ::
...
|
Vissuð þið hins vegar, að Johnny Kay, söngvari Steppenwolf ("Born tú bí vææææld") var Austur-þýskur flóttamaður sem slapp yfir járntjaldið ungur að aldri, fór til USA og gerðist rokksöngvari. Ameríski draumurinn or what!!
VLJ
:: Valgarduz fimmtudagur, september 18, 2003 [+] ::
...
|
:: þriðjudagur, september 16, 2003 ::
Eg vona að Gmaríus son Hangatýs geri sér ljóst að ef hann mætir ekki á Rich Open verður titill hans til tveggja ára sem golfmeistari Ríkra sjálfkrafa hrifsaður af honum. Ríkir sýna engum miskunn sem gefa á sér skotfæri, ekki einu sinni öðrum Ríkum.
Hvað Falco og félaga varðar, þá man ég ekki annað en að sá mikli listamaður hafi alla tíð verið presenteraður sem Austurrískur. Sama gildir um Mozart en Hitler og Nena voru örugglega þýsk, sem og Nina Hagen sem var náttúrlega alger snillingur. Eg vil aðeins vekja athygli á því að á mínum yngri árum var ég stundum kallaður Valgo - til heiðurs þeim hæfileika mínum að fara einkar vel með ó-ó-Ó-ó-Ó-ó-Ó-óóó - kaflann í laginu Amadeus
Cease to resist, giving my goodbyes...
:: Valgarduz þriðjudagur, september 16, 2003 [+] ::
...
|
Það er greinilegt að Halogen hefur tekið að sér skipulagningu á komu Pixies í samkomu Ríkra. Ég get ekki annað en fagnað því. Eins og menn tóku eftir þá sá ég mér ekki fært að mæta á Vallholtið á föstudaginn. En ég er nú staddur í höll minni á Skólavörðuholtinu tímabundið. Varðandi golfmót Ríkra þá mun ég gera mitt besta til að mæta en get þó ekki lofað veru minni þar (myndi segja að líkurnar væru 87,525%).
:: Gmaríus þriðjudagur, september 16, 2003 [+] ::
...
|
:: föstudagur, september 12, 2003 ::
Annars var gaurinn sem flytur inn allar hljómsveitirnar (Rammstein, Foo Fighters etc) hérna hjá mér fyrir 5 min. Var sú hugmynd viðruð við hann að koma með Pixies hingað. Tók hann vel í. Þannig að raunin verður sú að Pixies kemur hingað í pílagrímsferð til þess eins að fá að spila fyrir Ríka.
:: Halogen föstudagur, september 12, 2003 [+] ::
...
|
Akkúrat! Falco austurískur... Nena belgísk.. ?? Hitler ... Mozart?
:: HauXon föstudagur, september 12, 2003 [+] ::
...
|
jammz Falco lést sviplega í mótorhjólaslysi fyrir nokkrum árum. Hann var Austurískur. En perlur eins og Amadeus og Herr Kommissar munu halda nafni hans á lofti um ókomna tíð
:: Halogen föstudagur, september 12, 2003 [+] ::
...
|
Ég myndi vilja að þau spiluðu á veröndinni á sumarhúsinu þar sem þorrablótið fer fram. Þau fengu greitt í brennivíni og þorramat hjá okkur. Orkuveitan myndi svo borga rest og skaffa hljóðkerfi Reykjavíkurborgar. ...þau myndu koma á hestum frá Leifsstöð. "It is tiiiiime, it is tiiiime, it is tiiime ... for stormy weather! Whoohh hooo"
Ég er harmi sleginn yfir andláti Falco og er ég undrandi á að þessu hafi verið haldið leyndu fyrir manni til þessa. Sennilega vill þýska ríkisstjórnin ekki að heimurinn komist að þessu til að sögusagnir um að Nena sé í rauninni belgísk fari ekki aftur á kreik. Til minningar um kallinn langar mig að pósta link á hanns frægasta lag í flutningi gúmmítöffarana í Moonboots: Amadeus (Mein Gott in Himmel!!! Super Radio Megamix) Lengi lifi svuntuþeysarinn!
:: HauXon föstudagur, september 12, 2003 [+] ::
...
|
Þurfum við ekki að redda okkur samkomuhúsi af við fáum Pixies. Spurning með samkomuhús truntudýrkenda. Nú eða Rein. Verst að geta ekki fengið Johnny Cash en hann er jú horfin yfir móðuna til snillinga á borð við Falco og Gunnar Jökul.
:: Halogen föstudagur, september 12, 2003 [+] ::
...
|
:: fimmtudagur, september 11, 2003 ::
Við kíkjum að öllum líkindum til ykkar á Vallaholt þrettán föstudagskvöld, amk. látum vita ef við komum ekki.
Verst með plötusafnið.. verða plöturnar ekki verðlausar? Getur maður safnað servéttum?? eða hári?? Eigum við ekki að fá Pixies til þess að spila á þorrablótinu?? Getur Grétar borgað með kjöti??
HERE COME YOUR MEN!
:: HauXon fimmtudagur, september 11, 2003 [+] ::
...
|
Bæþívei....kemst ekki á föstudagskvöld að skoða nýju húsakynni félaga Valgarðz. Vinna og aftur vinna.
LIFI PIXIES...eða var það DEATH TO THE PIXIES.
:: Halogen fimmtudagur, september 11, 2003 [+] ::
...
|
Guð er til....skapar...tekur....og nýjasta nýtt; lætur rísa upp frá dauðum. Sem sagt Pixies er að koma saman aftur. Með plötu og tónleikaferð. Jibbí. Nú er bara að tína dósir og flöskur og versla sér eitt stikki pílagrímsferð og berja undrið augum og eyrum. COME ON PILGRIM!!
:: Halogen fimmtudagur, september 11, 2003 [+] ::
...
|
:: miðvikudagur, september 10, 2003 ::
Jammz...fjórði október hljómar vel....en hvaða ár?
:: Halogen miðvikudagur, september 10, 2003 [+] ::
...
|
FJÓRÐI OKTÓBER........ S A M Þ Y K K T ! ! ! ! ! ! ! ! ! ! ! ! ! ! !
En fram að því vil ég hvetja Ríka til að kíkja í heimsókn að Vallholti 13, Akranesi. Ekki væri úr vegi ef Ríkir sæju sér fært að koma í smærri hópum til að kíkja á slotið, til dæmis komandi föstudagskvöld.
:: Valgarduz miðvikudagur, september 10, 2003 [+] ::
...
|
Svo virðist sem glímuskjálfti hrjái menn og Hvítkúlan hafi sigrað menn á andlega sviðinu. Maður gæti haldið að menn reyni að láta bjóða sér í brúðkaup eða fljýi í aðra landshluta af einskærum ótta við að Hvítkúlan hafi sigur. Sjálfur hef ég til dæmis skráð mig í Háskólann í Reykjavík með það eitt að markmiði að þurfa ekki að glíma um næstu helgi, og er að reyna að finna eitthvað að gera allar helgar í október.
Af öllu gamni slepptu þá VERÐUM við að FESTA TÍMA!! Ég sting upp á að glíman verði haldin 4. október, og ef menn hreyfa ekki mótmælum við því fyrir helgi... stendur það! ...þótt það verði skafrenningur og 18 gráðu frost! (Hrímkúluglíman??)
F J Ó R Ð I O K T Ó B E R ? ? ? ........ S A M Þ Y K K T ? ? ?

:: HauXon miðvikudagur, september 10, 2003 [+] ::
...
|
:: þriðjudagur, september 09, 2003 ::
Ég þakka allan þær vísur sem um mig hafa verið kveðnar. Greinilegt að veiðar hafa góð áhirf á orðsnilld Ríkra.
Ég get ekki annað en tekið undir með Valgarduz að atorka okkar Ríkra á sér enga líka. Nú virðist allt stefna í það að ekki verði fullmannað á hvítkúluglímu okkar sem stefnt hefur verið að mánuðum saman. Vinnusemi okkar er slík að ekki getum við fundið einn dag í öllum september mánuði. Sýnist mér að ef halda á til streytu þeim markmiðum okkar að allir félagar mæti á sama stað og glími þá verði það vart fyrr en í október í fyrsta lagi.
Ef svo er þá mæli ég með að spilað verði í Orlando í Flórída, þar sem ég hygg á að hvílast í vikutíma í lok október ásamt spússu minni.
Jæja þá er ég farinn til fjalla á ný til að vitja veiðilenda minna. Þar stefni ég á að fella svo sem eins og eina til tuttugu gæsa- og andafugla fjölskyldur um leið og ég kasta færi í vatn.
:: Gmaríus þriðjudagur, september 09, 2003 [+] ::
...
|
:: mánudagur, september 08, 2003 ::
Heilir
Það lýsir best hve Ríkir eru ötulir og önnum kafnir við undirbúningsstörf að yfirtöku veraldarinnar að á einu hausti skuli ekki vera hægt að finna EINN DAG þar sem Ríkir geta allir komið saman til hvítkúluglímu og hræáts. Atorka og iðjusemi Ríkra er hreinlega með ólíkindum og eindæmum. Ekki veit ég hvort þið sjáið húmorinn í þessu eins og ég, en ég kæmist vel til fundar við Ríka þann 13. september, en engan veginn þann 20. Þá ætla ég að vera staddur í brúðkaupsveislu og teyga þar allar þær veigar sem ég mögulega kemst yfir.
Förum við nú að nálgast mótsdag fyrra árs, sem mig minnir þó að allir hafi verið sammála um að hafi verið allt of seint á árinu.
En svo við skiptum um bragarhátt....
Gretarsromja
(eftir Garþ á Fellinu)
Hann liggur, hann bíður
hann á sér ei bærir,
legginn ei hreyfir
né höndina hrærir.
Hann horfir, hann rýnir.
Nálgast nú bráðin...
Er hreinninn hleypur
í urðinni skellur.
Gikkurinn smellur.
HVELLUR!
Og tarfur af dögum er ráðinn.
:: Valgarduz mánudagur, september 08, 2003 [+] ::
...
|
:: miðvikudagur, september 03, 2003 ::
Yo!
Ég kemst hvorki 6. né 13.....Veit að Grétar kemst heldur ekki næstu helgi....20. hljómar vel í mínum eyrum...í augnablikinu.
:: Halogen miðvikudagur, september 03, 2003 [+] ::
...
|
Spurning hvort nú sé ekki kominn tími til að blogga sig saman um golferísmóthaldið. Ég legg til að fram fari kosning um dagsetningu golfmósins. Hvað segja menn um 20. sept? 6. og 13. koma einnig vel til greina. Látið nú heyra í ykkur, svo að síðan breytist ekki í ljóðaheimasíðu Hrannars.
Vísur okkar Kristals um Hreindýraveiðar sýna hversu nátengdir Ríkir eru og að Ríkir taka þátt af fullum hug í gjörðum hvors annars þó fjarlægðir skilji að :-) Svo verður amk. ein staka að fylgja af öðru tilefni.
Valli og Íris búsetu
breyttu um þessa daga
Frá Flúðum fluttu
með fjölskylduna á Skaga
:: HauXon miðvikudagur, september 03, 2003 [+] ::
...
|
:: þriðjudagur, september 02, 2003 ::
Hreindýslegar hugsanir
eftir der Hauckskywosky
Blóðhlaupin augun,
böllurinn stinnur.
Sýnir enga miskunn
er skepnuna finnur.
Nasirnar þandar,
njólinn þrútinn.
Miðið hann vandar
við byssustútinn.
Hjartað stoppar,
úr hamrinum hvellur.
Ekkert það toppar
er tarfurinn fellur.
Spennan hverfur,
Spagetti um miðju
Allt í einu morðið verður
að vafasamri iðju.
Vandraði fullur trega,
við að elta bráð.
Til að fremja klaufalega
karlmennsku dáð.
:: HauXon þriðjudagur, september 02, 2003 [+] ::
...
|
:: mánudagur, september 01, 2003 ::
Meat is murder
:: Valgarduz mánudagur, september 01, 2003 [+] ::
...
|
|
[::..Þóknanlegt..::]

Danskir teiknarar!

Jón Baldvin

Max Headroom

Seona Dancing

Türkmenbashy


STÓRVAL
[::.Tvífarinn.::]

Mugi jón Hafstein-son

William H. Macy
Hauxon á MSN
|