| Vikulistinn (halogen) |
| - - - - - - - - - - |
|
| Vikulistinn (gmarius) |
| - - - - - - - - - - |
|
| Vikulistinn (hauxon) |
| - - - - - - - - - - |
|
| Vikulistinn (kristallur) |
| - - - - - - - - - - |
 |
| Vikulistinn (Valgarduz) |
| - - - - - - - - - - |
| [::..Eldra stuff..::] | |
|
|
:: þriðjudagur, mars 30, 2004 ::
Enn og aftur sannast það að stjórnmálamenn þessa lands eru aumingjar!
Þeir bara virðast ekki geta komið frá sér nokkrum hlut sem gengur upp til lengri tíma. Nýjasta dæmið er fæðingaorlofssjóður, þeir Ríkir sem eiga börn geta líklega tekið undir þá fullyrðingu að hann sé bara hið besta mál. En ekki tókst nú betur til en svo að þessir ræflar settu svo léleg lög að ekki eru til peningar til að reka sjóðinn og stefndi í að hann yrði auralaus von bráðar.
Það eina sem þessu vinsældapólitíkusum datt í hug að gera til að laga þetta er að setja þak á greiðslur úr sjóðnum að ógleymdu því að sækja einhverja peninga í atvinnuleysistryggingasjóð. Og þakið er skitnar 600 þúsund í heildarlaun á mánuði! Þetta er álíka heimskulegt og þegar þessum hálfvitum datt í hug að setja hátekjumörkin við 270 þúsund á mánuði.
Halda þessir aular að fólk með hærri tekjur en 600 þúsund þurfi ekki á þeim peningum að halda? Halda þeir virkilega að allir þeir sem hafa hærri tekjur en þetta geti auðveldlega skorið niður hjá sér neyslu um leið og útgjöld aukast vegna stærri fjölskyldu? Og hvaða hópur er það sem er að nýta þennan sjóð, jú fólk á aldrinum 20 til 40. Líklega sá aldurshópur sem er með hæstu útgjöld allra aldurshópa, menn eru jú á sama tíma að reyna að koma sér upp heimili og öðru því sem telst nauðsynlegt í nútímaþjóðfélagi.
Það virðist vera útbreiddur misskilningur að fólk í hærri tekjuhópum hreinlega sópi peningum inn á bankareikningana sína. Það er nú ekki raunin í þeim tilvikum sem ég þekki til, heldur eykst neysla með auknum tekjum. Fólk getur þá loksins leyft sér eitthvað sem allir ættu að geta gert! Það er að lifa lífinu fyrir utan vinnuna og greiðslu skulda. Það má nú líka ekki gleyma því að þessi hópur greiðir líka langmest til samfélagsins og nýtur um leið engra bóta eða annarra styrkja. Ég tel að þessi aðgerð sé ekki í anda laganna og sé til þess fallinn að draga úr fólki við það að taka sér fæðingarorlof (það er kannski líka tilgangurinn=lægri útgjöld).
Og síðan til að bíta höfuðið af skömminni (enn einu sinni) þá voru Samfylkingarmenn fyrstir til að lýsa því yfir hvað þetta væri nú frábær aðgerð! Húrra fyrir þessum aulum, öllum saman!
Og hananú!
:: Gmaríus þriðjudagur, mars 30, 2004 [+] ::
...
|
|
[::..Þóknanlegt..::]

Danskir teiknarar!

Jón Baldvin

Max Headroom

Seona Dancing

Türkmenbashy


STÓRVAL
[::.Tvífarinn.::]

Mugi jón Hafstein-son

William H. Macy
Hauxon á MSN
|