| Vikulistinn (halogen) |
| - - - - - - - - - - |
|
| Vikulistinn (gmarius) |
| - - - - - - - - - - |
|
| Vikulistinn (hauxon) |
| - - - - - - - - - - |
|
| Vikulistinn (kristallur) |
| - - - - - - - - - - |
 |
| Vikulistinn (Valgarduz) |
| - - - - - - - - - - |
| [::..Eldra stuff..::] | |
|
|
:: miðvikudagur, mars 31, 2004 ::
Hins vegar vil ég bæta við þetta, að það væri náttúrlega miklu viturlegra að binda þakið við framfærsluvísitölu á hverjum tíma, svo einhverjar fastar krónutölur dagi ekki uppi sem nátttröll í tímans rás, eins og HauXon bendir svo réttilega á.
:: Valgarduz miðvikudagur, mars 31, 2004 [+] ::
...
|
Nei, nú ætla ég ekki að þegja!!!
Að eignast barn er persónulegt val sem hefur ýmsar afleiðingar í för með sér. Þegar fólk tekur þessa ákvörðun má það búast við því að þurfa tímabundið að trappa sig niður í vinnu, gera verulegar breytingar á útgjöldum heimilisins og koma sér upp alveg nýrri forgangsröðun hvað flesta hluti varðar - sérstaklega hluti sem kosta peninga. Næstu árin má fólk síðan búast við að þurfa að vera frá vinnu vegna veikinda barna, svo koma fjárútlát vegna daggæslu, tómstunda og að lokum vegna neyslu barnsins. Að eignast barn er auðvitað fyrst og fremst tilfinningaleg skuldbinding, en hún hefur líka fjárhagslegar afleiðingar.
Fæðingarorlofssjóður er "samfélagslegur lúxus" sem Íslendingar geta veitt sér verandi meðal ríkustu þjóða heims. Það Þýðir þó ekki að í hann sé hægt að ausa óendanlegum fjármunum, enda skattaálögur víst nógar fyrir þó við bætum ekki slíkum böggum á skattgreiðendur þessa lands. Fæðingarorlofssjóði er ætlað að koma til móts við ungt fólk sem er að vinna sig upp í atvinnulífinu og er á sama tíma að koma sér upp heimili og fjölskyldu. Til að útvega félaga Grétari Mar örlitla jarðtengingu þá ætla ég að fullyrða það, að fólk í þessari stöðu nær almennt ekki svo háum tekjum að vera með 600 þúsund í heildarlaun á mánuði. Þorri landsmanna lifir einfaldlega í öðrum veruleika en heimi lúxusjeppa, sumarbústaða og "designer-einbýlishúsa".
Þetta er því spurning um forgangsröðun. Það þurfa ALLIR að trappa sig niður í neyslu við það að eignast barn og eftir því sem fólk er með lægri tekjur, því erfiðara er það, því það er einfaldlega af minna að taka. ÞETTA FÓLK Á ÞVÍ AÐ SITJA Í FORGANGI ÞEGAR KEMUR AÐ ÞVÍ AÐ NJÓTA SAMFÉLAGSLEGRA GÆÐA!!! Fólk með hærri tekjur en 600 þús. á mánuði ætti einfaldlega ekki að þurfa að finna eins mikið fyrir samdrættinum í heimilisbókhaldinu. Þegar allt kemur til alls, þá verða þeir sem minna hafa að færa hlutfallslega meiri fjárhagslegar fórnir vegna barneigna en þeir sem meira hafa. Það greiða jú allir sömu dagvistunargjöld, versla í sömu búðunum o.s.frv. Ég verð að segja að málflutningur GMars hér að neðan minnir óþægilega mikið á hugsunarhátt Heimdellinga um samfélagslegt frumskógarlögmál - SURVIVAL OF THE FATTEST!!!!
Þegar allt kemur til alls, þá er það alltaf persónuleg ákvörðun hjá fólki að eignast barn. Þurfi þeir sem hæstu launin hafa að þola það að þurfa að selja lúxusjeppann og fara á þriggja ára gamla Toyotu í staðinn, eða að þola nokkur ár án þess að eiga sumarbústað úti á landi; THEN SO BE IT!!! Aðrar stéttir þurfa víst að færa aðrar eins, ef ekki hlutfallslega meiri fórnir en það.
Kammerat Valgarduz
:: Valgarduz miðvikudagur, mars 31, 2004 [+] ::
...
|
:: þriðjudagur, mars 30, 2004 ::
Ég ætla að leyfa mér að taka upp einskonar Framsóknarsjónarmið í þessu máli fyrst að það er búið að saka mig um að vera í Flokknum. Í prinsippinu er ég mótfallinn því að það verði sett þak á greiðslurnar þar sem þá er komin einhver krónutala í gang sem er nánast öruggt að verður að engu með árunum eða verði jafnvel lækkuð handvirkt eftir nokkur ár. Amk ef menn ætla að setja svona þak þá ætti það að vera sem hlutafall af framfærsluvísitölu hvert tíma. Þannig væri ólíklegra að menn færu að vasast í þessu eftir á. Segjum að grunnframfærsla sé 80.000 kr., þá væri þakið á fæðingarorlofsgreiðslurnar 7.5 sinnum grunnframfærsla = 600.000. Gefum okkur svo að eftir 10 ár verði grunnframfærslan 100.000 kr. yrði þakið 750.000 kr. Þessi leið tel ég að gæti verið til þess fallin að gera sem flesta sátta.
Ég held reyndar að, ef fólk getur ekki náð endunum saman með segjum 800.000 kr. (annar aðillinn 600 og hinn 200), ætti að taka af því fjárræðið. Ef fólk er ekki tilbúið að trappa sig niður í lúxusneyslunni er ég ekki viss um að þeir sömu hafi áhuga á að eignast börn yfir höfuð. Menn verða þá bara að velja hvort þeir ætla að fresta kaupunum kondói á Spáni eða ofurlúxusjeppanum um 3 mánuði meðan þeir kynnast barninu sínu. "Ég verð nú bara að segja það!"*
*Tilvitnun í f.v. formann Framsóknarflokksins
:: HauXon þriðjudagur, mars 30, 2004 [+] ::
...
|
Nei ekki sérstaklega. En ég á nú frekar von á því að það gerist eitthvað á næstu 20 árum eða svo. Þetta er fyrst og fremst réttlætismál hinna vinnandi stétta!
:: Gmaríus þriðjudagur, mars 30, 2004 [+] ::
...
|
Ber að skilja þennan nýfengna áhuga Gmars á fæðingaorlofssjóði svo að það sé eitthvað í vændum?
:: Halogen þriðjudagur, mars 30, 2004 [+] ::
...
|
Enn og aftur sannast það að stjórnmálamenn þessa lands eru aumingjar!
Þeir bara virðast ekki geta komið frá sér nokkrum hlut sem gengur upp til lengri tíma. Nýjasta dæmið er fæðingaorlofssjóður, þeir Ríkir sem eiga börn geta líklega tekið undir þá fullyrðingu að hann sé bara hið besta mál. En ekki tókst nú betur til en svo að þessir ræflar settu svo léleg lög að ekki eru til peningar til að reka sjóðinn og stefndi í að hann yrði auralaus von bráðar.
Það eina sem þessu vinsældapólitíkusum datt í hug að gera til að laga þetta er að setja þak á greiðslur úr sjóðnum að ógleymdu því að sækja einhverja peninga í atvinnuleysistryggingasjóð. Og þakið er skitnar 600 þúsund í heildarlaun á mánuði! Þetta er álíka heimskulegt og þegar þessum hálfvitum datt í hug að setja hátekjumörkin við 270 þúsund á mánuði.
Halda þessir aular að fólk með hærri tekjur en 600 þúsund þurfi ekki á þeim peningum að halda? Halda þeir virkilega að allir þeir sem hafa hærri tekjur en þetta geti auðveldlega skorið niður hjá sér neyslu um leið og útgjöld aukast vegna stærri fjölskyldu? Og hvaða hópur er það sem er að nýta þennan sjóð, jú fólk á aldrinum 20 til 40. Líklega sá aldurshópur sem er með hæstu útgjöld allra aldurshópa, menn eru jú á sama tíma að reyna að koma sér upp heimili og öðru því sem telst nauðsynlegt í nútímaþjóðfélagi.
Það virðist vera útbreiddur misskilningur að fólk í hærri tekjuhópum hreinlega sópi peningum inn á bankareikningana sína. Það er nú ekki raunin í þeim tilvikum sem ég þekki til, heldur eykst neysla með auknum tekjum. Fólk getur þá loksins leyft sér eitthvað sem allir ættu að geta gert! Það er að lifa lífinu fyrir utan vinnuna og greiðslu skulda. Það má nú líka ekki gleyma því að þessi hópur greiðir líka langmest til samfélagsins og nýtur um leið engra bóta eða annarra styrkja. Ég tel að þessi aðgerð sé ekki í anda laganna og sé til þess fallinn að draga úr fólki við það að taka sér fæðingarorlof (það er kannski líka tilgangurinn=lægri útgjöld).
Og síðan til að bíta höfuðið af skömminni (enn einu sinni) þá voru Samfylkingarmenn fyrstir til að lýsa því yfir hvað þetta væri nú frábær aðgerð! Húrra fyrir þessum aulum, öllum saman!
Og hananú!
:: Gmaríus þriðjudagur, mars 30, 2004 [+] ::
...
|
Það er aldrei of seint að gleðja mann. Ég hreinlega táraðist við stuðninginn :-)
:: HauXon þriðjudagur, mars 30, 2004 [+] ::
...
|
ég er sammála Hauxsyni.......
er ég nokkuð of seinn?
:: Halogen þriðjudagur, mars 30, 2004 [+] ::
...
|
:: mánudagur, mars 29, 2004 ::
Næsta er enn betra:
And I'm thinking and I'm thinking
'till there's nothing I aint thunk.
Breathing in the stink, 'till finally I stunk.
'Twas at that time, I swear I lost my mind.
Started making plans to kill my own kind.
Started making plans to kill my owd kind.
Varðandi leikritið sem hér hefur fram farið undanfarið, þá var ég nú bara rétt að byrja að safna saman svívirðingum um sauðaþjófakynið frá Dröngum, auglýsingaskrumara, sósíalista og Fáskrúðsfirðinga þannig að þessi "happy ending" kom eiginlega einum of snemma fyrir mig. Hins vegar fer vel á því að það skyldu vera kvendýrin ofbeldisfullu sem bundu endi á flugeldasýningu Ríkra.
Hvað einkunnir varðar, þá vil ég sem fagmaður á því sviði segja eftirfarandi:
Allir sem þátt tóku eiga skilið 9,5 fyrir efnistök og framsetningu, 10 fyrir sannfæringarmátt og 9,75 fyrir orðaforða og málnotkun.
Að auki fær GMar ágætiseinkunn fyrir sjálfshæðni
HauXon fær ágætiseinkunn fyrir frumleika og rökræna framvindu
Kristallur fær ágætiseinkunn fyrir frumkvæði og sköpunarmátt, þar sem hann hratt jú verkinu af stað
BRAVÓ BRAVÓ!!!!!!
:: Valgarduz mánudagur, mars 29, 2004 [+] ::
...
|
I had me a wife, I had me some daughters.
I tried so hard, I never knew still waters.
Nothing to eat and nothing to drink.
Nothing for a man to do but sit around and think.
Nothing for a man to do but sit around and think.
:: HauXon mánudagur, mars 29, 2004 [+] ::
...
|
Það vantaði náttúrlega allt "nudity" í leikritið okkar :-D hehehehehe
:: HauXon mánudagur, mars 29, 2004 [+] ::
...
|
Þarna hefur hann þá endað bölvaður 1000 kallinn sem skatturinn hirti af mér í fyrrasumar! ;) Já ég er alveg viss um að það væri hægt að gefa þátttakendum í okkar leikriti 10 fyrir sannfæringarmátt. Og 9.5 fyrir efnistök og framsetningu. Hvað segir annars okkar Rektorinn okkar um það mál?
Talandi um "And Björk of course" þá var ansi öflugt námskeið sem liðið fór á.
Skundum á Broadway og strengjum vor heit!
:: Gmaríus mánudagur, mars 29, 2004 [+] ::
...
|
Mikið er nú gott að ást og hamingja ríki hjá Ríkum. Þetta skemmilega leikrit var næstum því eins gott og leikritið í sjónvarpinu í gær. Spurning hvort að hæfileikafólkið í hafnarfjarðarleikhúsinu taki ekki verkið upp á sýna arma. Var kominn með fína byrjun á næsta póst :-)
"Þetta er sennilega rétt hjá þér Grétar minn, ég fann einhverja skítalykt af einum þúsundkallinum sem ég fékk í fæðingarorlof. Hann hlýtur að vera kominn frá þér!"
Tók nokkra Violent Femmes diska með mér í vinnuna í dag sem ég ætla að rippa og set síðan í gang í útvarpinu.
Híhíhíhíh´hihi (giggile)
:: HauXon mánudagur, mars 29, 2004 [+] ::
...
|
Kæru félagar og vinir!
Nú höfum við dregið upp hvíta fána og fallist í faðma. Ást og kærleikur ræður ríkjum Ríkra.
Allir félagarnir ættu að nú að geta glaðst, því að 9 stykki miðar á Violent Femmes eru komnir í hús mér. Stykkið kostar aðeins 3000. Ég mun taka við fjárframlögum frá ykkur inn á velvildarreikning minn hvenær sem er. Mun senda nánari upplýsingar um velvildar reikning minn í tölvupósti.
Ps. ekki verða seldir nema 1000 miðar!

:: Gmaríus mánudagur, mars 29, 2004 [+] ::
...
|
:: sunnudagur, mars 28, 2004 ::
Eru menn ekki búnir að sjá helgar DV?

:: Gmaríus sunnudagur, mars 28, 2004 [+] ::
...
|
Glymur hæst í tómri tunnu!
Það hlaut að koma að því að dvöl þín í vesturbænum hefði slæm áhrif á dómgreind þína gamli vinur. Þú ert nú bara byrjaður að hljóma eins og ein af þessum ófullnægðu gömlu konum sem maður heyrir alltaf vera sívælandi í hverjum útvarps- eða sjónvarpsþættinum á fætur öðrum.
Reynir að koma höggi á þá sem vinna í þessu þjóðfélagi. Það hefur líklega ekki hvarflað að þér að það er nauðsyn hverjum fullorðnum manni að vinna til að geta framfleitt sér og sínum. Þetta teljið þið vesturbæingarnir greinilega algjöran óþarfa. Liggið frekar á spena hins opinbera og bíðið þess að út komi einhverjir peningar, skiptir þar engu hvort um er að ræða lán eða styrk. Það er ekki nema von að einhverjir á þessu landi þurfi að vinna í að minnsta 2 vinnum til að sjá sér og sínum (afætum) farborða. Maður getur í það minnsta lagst sæll til hvílu á hverju kveldi, vitandi það að þeir peningar sem maður greiðir í skatta, renna óskiptir í þróunar- og efnahagsaðstoð á heimilum þeirra sem ekki nenna að vinna!
Nær væri að skikka öll þessi olnbogabörn þjóðfélagsins í þegnskilduvinnu og gera 8-10 tíma vinnuframlag pr. dag að forsendu þess að þeir fengju einhverjar bætur í sinn hlut. Þá væri í það minnsta hægt að flýta öllum framkvæmdum verulega án mikils tilkostnaðar. Hægt væri að byrja á Sundabrautinni svo að við hin sem vinnum gætum komist á sem skemmtum tíma upp á Skaga í golf eða austur á land.
:: Gmaríus sunnudagur, mars 28, 2004 [+] ::
...
|
Að heyra í þér.. áfram FM .. þetta er í stíl við klappsýrueinkennin. Ég reikna með að þið hafið verið heima hjá Halogeninu og hann ráðið hvað var á (eins og venjulega). Annars hefðuð þið hlustað á Létt eins og er iðulega stillt á í bílnum þínum. Varðandi að taka afstöður þá ert þú nú eins og 14 ára gömul unglingsstelpa sem þarf að láta ganga á eftir sér endalaust í þeim eina tilgangi að fá staðfestingu á að hún sé "mikilvæg". Eru ótal dæmi þess ferskt í minni Ríkra sem ég nenni ekki að nefna hér. Það fyndnasta við þetta allt saman er að þú hefur ekki þurft að haga þér svona því að við hinir höfum reynt að koma fram við þig eins og jafningja. Málið er að þetta ristir dýpra og sennilega hefur þú fundir fyrir vanmætti þínum alveg frá fæðingu. Ég skil nú ekki út af hverju tvífarinn þinn hann Svali á FM hefur ekki fengið að prófa hvíta kellingajeppann þinn í sjónvarpinu. Nýjasta dæmið um minnimáttarkenndina eru "jarðarkaup" austur á landi.. hehehehe þvílíkur brandari. Jörðin er einskinsnýt freðmýri sem er hvorki hægt að komast yfir á fótum né á hesti. Húsið er handónýtt og myndi að öllu jöfnu verið borgað með því þegar svona er selt úti á landi. Svo býr greyið í einhverri kompu sem varla er hægt að snúa sér við í og vinnur tvær vinnur til þess að geta viðhaldið þessum bjánalega sýndarveruleik. Ef það er einhver sem er raunverulega fátækur þá ert það þú Grétar minn. ...og ekki tala um tónslist! ...ég vil ekki heyra það! .. settu frekar hár í gelið þitt!
:: HauXon sunnudagur, mars 28, 2004 [+] ::
...
|
:: laugardagur, mars 27, 2004 ::
Áfram FM .... ég og Halogenið sátum í gærkveldi og hlustuðum á FM síð-unglingana, "Skonrokk". Hins vegar hef ég ákveðið að taka afstöðu með sjálfum mér í þessu máli. Hef ekki lagt það í vana minn að taka afstöðu með öðru en sjálfum mér hingað til, svo ekki sé ég nokkra einustu ástæðu til að vera að breyta því núna á síð-unglingsárum.
Talandi um glataðan tónlistarsmekk þá verð ég greynilega að fara að taka aftur upp þessa gömlu diska og rifja upp Erasure! Er að vísu að hlusta á Prodigy og Out of Space meðan ég hluta á þetta, það er sko ekkert rusl.
Má ekki vera að þessu þar sem ég þarf að fara að setja gel í hárið á mér!
Áfram FM
:: Gmaríus laugardagur, mars 27, 2004 [+] ::
...
|
Ég skil nú ekki af hverju Grétar tekur ekki afstöðu með mér í þessu máli hérna! Eru menn hérna svo mikil smámenni að þeir þora ekki að segja skoðun sína. Grétar með sína FM957 hárgreiðslu og strípur er kannski bara eins og hinir FM-hnakkarnir passífur á allt sem reynir á hann. Enda furðulegt hvernig hann hefur hangið utan í okkur hinum eins og klappstýra því hann hefur ekki snefil vit á tónlist eða öðru sem rætt er um á fundum hjá Ríkum. Maður veit að hann setur Earasure eða Björk (commercial rusl) í spilarann um leið og hann hættir að sýnast fyrir okkur.
:: HauXon laugardagur, mars 27, 2004 [+] ::
...
|
TIME OUT - takk fyrir!
:: Gmaríus laugardagur, mars 27, 2004 [+] ::
...
|
:: föstudagur, mars 26, 2004 ::
UPPPPSSS!!!
Ja nú þykja mér menn vera byrjaðir að hleypa af stóru fallbyssunum ... greinilegt að ummæli Kristalls um að "Helvíti eru Ríkir alltaf hressir á blogginu. Maður þarf að fara koma af stað einhverjum leiðindum til þess að ná einhverju aksjóni hérna. So here goes nothing ". Hafi svo sannarlega náð fram því sem hann vara að reyna. Það er að hleypa lífi í umræðuna á blogginu. Ekki ætla ég að blanda mér í þessa hörðu orðræðu svo neinu nemi. En verð þó að biðja menn um að gæta stillingar og geyma kjarnorkusprengjurnar þangað síðar.
Sjálfur er ég búinn að setja við skjáinn og bíða óþreyjufullur eftir svari við mínu Kúbverska bloggi. Lék þar tæknin á mig enn einu sinni og bölvaður Internet Explorer vinur minn, þar sem refresh virkaði ekki sem skyldi.
Það má vel vera að einhverjum finnist Icelandair skítaeinokunarfyrirtæki, en hvað sem því líður þá er ég nú hræddur um að landanum myndi nú bregða hressilega ef þess nyti ekki við. Þá fyrst yrði ástandið í samgöngumálum eins og á einokunartíma Dana, enda ekki flogið til nema 2ja borga daglega allt árið. Einnig er ég nú ansi hræddur um að hinir ýmsu "kotbændur" í borgum og bæjum landsins sem ganga undir nafninu, ferðaþjónustuaðilar, daglegu tali, myndu nú væla ansi hátt ef stóra einokunarfyrirtækið í henni Reykjavík myndi ekki sjá um mest alla landkynningu fyrir þá. Ætli þeir væru bara ekki upp til fjalla að mjólka ærnar sínar. ;o
Varðandi spjátrungshátt flugmanna hef ég það eitt að segja að ekki Þykir mér nú neitt verra að vera talinn spjátrungur, enda tel ég það merki þess að vera ekki mótaður í sama mót og almúginn.
Varðandi miða á hina og þessa tónleika þá skilst mér að mínir miðar og minnar kvinnu séu komnir heilir og höldu í hús hjá Halogeninu enda sá hann um að draga þá björg í bú þar sem ég átti í snörpum orðaskiptum við félaga Kastró á sama tíma.
Og hananú .... í bili.
:: Gmaríus föstudagur, mars 26, 2004 [+] ::
...
|
Þykir mér leitt það virðingarleysi sem gamall "vinur" minn sýnir mér hér. Það er nú bara þannig að "vinir" verða oft til vegna þess að fólk þarf að gera eitthvað saman. Nú hafa leiðir skilið og sé ég ekki ástæðu til þess að halda sambandinu áfram, enda hafa samskiptin undanfarin ár verið fyrst og fremst formleg vegna "vinskaparins" en ekki vegna þess að maður hafi gaman af samskiptum við þig. Þú ert líka kannski sá aðili í Ríkum sem hefur bara flotið með og ekki haft mikið til málana að leggja sem við hinir getum samsvarað okkur við. Ég legg því til að þú segir þig úr félagsskapnum svo að hinir getum hist áfram óþvingað. Þú getur síðan fundið þér aðra vini úr Samblekkingunni á Akranesi!
:: HauXon föstudagur, mars 26, 2004 [+] ::
...
|
Gat nú verið að þessu yrði tekið persónulega! Skil ekki hversvegna þú ert að ráðast á fjölskylduna mína hér. Þó svo að ég hafi verið að skammast út í þína fjölskyldu þá er bara vegna þess að þau virðast ekki bera gáfur til þess að skilja Samblekkinguna, að öðru leiti vil ég ekki gagnrýna hana. Sá sem er með raunverulega minnimáttarkennd hér er sá sem er aðeins grannur á vitsmunalega sviðinu. Ég held að menn sem taka pólitíska, málefnalega umræðu persónulega séu búinir að búa við Hitlersískt skoðanauppeldi og ættu bara að halda kjafti!
:: HauXon föstudagur, mars 26, 2004 [+] ::
...
|
J? satt segir ?? en, ?a? versta af ?llu er helv?tis Samfylkingin sem er ekkert anna? en hugmyndafr??ilegt sellout. ?essir aumingjar hafa gefi? ?ll m?lefni sem eru "?vins?l" upp ? b?tinn ? von um a? einhverji kj?si sig. Sty?ja K?rahnj?kamor?i? en segjast vilja vernda n?tt?runa og auka menntunarstig ? landinu. ?etta er brandari!
Hvernig er ?a? svo me? heilbrig?isgeirann, vilja vi?halda kerfi sem sn?st bara um ?a? a? l?knar geti legi? ? s?num ofurlaunum og a? ?a? s? sett m?turlega l?ti? af peningum inn ?annig a? hinir starfsmenn sp?talanna ?urfa a? lifa vi? hungurm?rk. ?a? v?ri n?r a? einkav??a alla ??tti heilbrig?iskerfisins, fr? ?vottah?sunum til l?knanna. Eins og ?etta er n?na er ?etta ein helsta sto? ?riggja st?tta samf?lagsins sem samfylkingin er a? reyna a? koma ?. R?kir eiga allt (meiar a? segja Samfylkinguna), meiga allt og geta allt, svo eru ?a? millist?ttin sem skaffar au?inn fyrir efsta lagi?. Passa? er upp ? a? millist?tting eigi aldrei nema fyrir b?l, h?sn??i og kannski ?t a? ?ta e?a ? b?? tvisvar ? m?nu?i me? ?v? a? taka restina af ?eim me? einokunarvaxtakerfi og h?um sk?ttum sem Samfylkingin stendur fyrir.
Eins og stendur er Samfylkingin jafnsl?m e?a verri heldur en Sj?lst??isflokkurinn ? ?essum efnum. N? ?egar ma?ur hefur svona ?reglulegar tekjur (og f?rist ???gilega n?l?gt ne?sta stiginu) s?r ma?ur betur ?r?ttl?ti? sem Samfylkingin stendur fyrir. Ma?ur m?ti annarslagi? Eigendum landsins ? 10 mkr. l?xusfarart?kjunum s?num svona r?tt til a? minna mann ? ?a? hvar ma?ur stendur ? stiganum. Svo s? ?g ni?ur l?ka, svertingjana, arabana og austurlandab?ana a? skr? sig atvinnulausa e?a a? vinna ? ?vottah?sum sp?talanna. Erum vi? a? kj?sa ?etta?
?a? sem er sorglegast vi? ?etta er a? framapotararnir ? Samfylkyngjunni (eins og ?g k?s a? kalla ?ennan vi?bj??) er allt f?lk sem ??ttist hafa hugsj?nir h?r ? den, en hefur ekki ?huga ? neinu n?na nema a? f? Eigendur landsins til a? borga ? kosningasj??inn. Samfylkingin er enginn jafna?armannaflokkur heldur hentip?lit?kusaflokkur af verstu ger?. a? v?ri n?r a? segja a? Frams?knarflokkurinn s? eini flokkurinn ? ?slandi sem getur kalla? sig jafna?armannaflokk (me? ?rl?tilli h?gri slags??u)
?? Kristallur og ?ll ??n fj?lskylda og ?etta Grundask?lapakk ?ttu? a? skammast ykkar!! ojojojojjjj v????haaaa!!
? T?rkmenistan v?ri b?i? a? banna Samfylkinguna!
:: HauXon föstudagur, mars 26, 2004 [+] ::
...
|
:: föstudagur, mars 19, 2004 ::
Saelir Felagar.
Eg er ekki fra tvi ad eg heyri votta fyrir ofund i ummaelum Rikra herna a vefnum. Herna a Kubu er natturulega bara leidinlegt. Engar svifluaefingar stundadar her, tar sem kamerat Castro telur svoleidis sport einkenni kapitalistma. Tessi stefna naer to ekki langt ut fyrir Havana tar sem tad eru nokkrir godir vellir i svona 1 tima akstur fra Havana. Eg bara nenni ekki ad setja i bil tangad og til baka.
Annars ta hefur madur verid a slodum Hemmingway og rolt um borgina. Ta er eins og gefur ad skilja mjog leidinlegt svo ad madur verdur ad setjast reglulega nidur og fa ser svaladrykk. Her er nog af konuefnum fyrir Halogenid, fullt af litlum J'Lo herna ut um alla borg sem myndu fyrir halft ord eda ta bara 15 dollara giftast honum to ekki vaeri nema i svona nokkra tima. Eg er eiginlega buinn ad sja ad Kuba er mekka kapitalista. Tad eru allir ad selja eitthvad, ef ekki sjalfan sig ta amk vindla eda romm.
Vardandi flugtjonana ta eru teir nu Italskir og tvengofugir, teir sina hvor odrum mikinn ahuga og eru bara eins og einn af stelpunum (minnir mig a einn bekkjarbrodir ur grunnskola). Annars er nu meirihluti af ahofninni Italskar meyjar og tad er natturulega bara leidinlegt. ;( Taer hyggja einhverjar a ferd til landsins i nordri i sumar svo ad tad vaeri alveg vert ad kynna taer fyrir Halogen eda Jokli. ;)
Vardandi tonleiknana ta er eg nu bara ennta i afalli yfir ollu tessu. Vona bara ad madur verdi heima til ad sja tetta allt.
Bid ad heilsa med kvedju fra Castro.
Kamerat Gretar
:: Gmaríus föstudagur, mars 19, 2004 [+] ::
...
|
:: fimmtudagur, mars 18, 2004 ::
Þetta er eiginlega farið að verða algjörlega óraunverulegt. Vantar bara Sonic Youth og Tom Waits, þá væri þetta bara komið.
:: Valgarduz fimmtudagur, mars 18, 2004 [+] ::
...
|
:: miðvikudagur, mars 17, 2004 ::
HALLÓ!! ..... rosalega er bergmálið lengi á leiðinni! Sennilega farið alla leið til Kúbu til hans Gmaræiuzar sem er að kenna flugþjónum frá Suður Afríku að bera kylfuna og sveifla síðan þangað til þetta hvíta spýtist nokkuð langt. Þó að það sé of seint að láta vita þá á ég enga Hawaiskyrtu. Þessar skræpóttu sem maður átti á Parker Lewis tímabilinu eru komnar til Afríku í alþjóðlegt hjálparstarf og eiga ekki afturkvæmt.
Svo ætla vinir okkar í Violent Femmes ekki að vera útundan í hinu mikla tónlistarfestivali sem Ríkir hf. standa fyrir nú í vor og sumar. Takið 22. apríl frá.
:: HauXon miðvikudagur, mars 17, 2004 [+] ::
...
|
:: föstudagur, mars 12, 2004 ::
HALLÓ!!????
:: Valgarduz föstudagur, mars 12, 2004 [+] ::
...
|
:: miðvikudagur, mars 10, 2004 ::
Pantaði mér Pixies bol á netinu í dag, kippti einum Sonic Youth með í leiðinni. Vonandi verður bolurinn kominn fyrir stóru stundina. Maður verður að hafa réttu græjurnar þegar mikið stendur til.
:: Valgarduz miðvikudagur, mars 10, 2004 [+] ::
...
|
:: þriðjudagur, mars 09, 2004 ::
Verður hægt að treysta á að þeir Ríkir sem hafa til þess sambönd reddi okkur hinum miðum á sjóvið? Væntanlega verður ansi fljótt uppselt á þessa tónleika, ekki satt?
Á annars einhver ykkar Hawaii-skyrtu sem hægt væri að fá lánaða? Ég er að fara í huggulegt hóf á föstudagskvöldið þar sem Hawaii þema verður ríkjandi og bráðvantar viðeigandi klæðnað.
Áttundi ágúst verður væntanlega fullsnemma til að henta ríkisarfa III til hingaðheimskomu. Endanleg ákvörðun á dagsetningu verður gerð 29. mars, en líklega gerist þetta ekki fyrr en eftir 20. ágúst.
:: Valgarduz þriðjudagur, mars 09, 2004 [+] ::
...
|
:: föstudagur, mars 05, 2004 ::
Spádómsgáfa Ríkra er með ólíkindum. Nú er staðfest að 26. dag maímánuðar munu Pixies leika á slaghörpur sínar og bumbur á Fróninu! Húrra húrra húrraaaaa!! Ég er þegar kominn í röð.
:: HauXon föstudagur, mars 05, 2004 [+] ::
...
|
:: miðvikudagur, mars 03, 2004 ::
K?ri Valgarduz og fr?, takk fyrir ?essar dulb?nu gle?ifr?ttir! Er b?i? a? setja dag? Er ?ttundi ?g?st s?ns?? :-) N? m? fara a? klippa ? lei?slurnar (ehumm). Svo vir?ist sem ?ri? 2004 ver?i sama g?fu?ri? og ?ri? ? undan fyrir R?ka. H?rra h?rra h?rra!!!
Kve?ja, Hrannkov og Aldar?na
:: HauXon miðvikudagur, mars 03, 2004 [+] ::
...
|
:: þriðjudagur, mars 02, 2004 ::
Af hverju næ ég ekki að láta RÚV virka hjá mér? Er það kannske eitthvert firewall bull hér í skólanum?
Ég var reyndar farinn að hlakka svolítið til Skotlandsreisu, búinn að finna nokkur lítil og sæt gistiheimili í Kinross og svona. En aðdráttarkraftur Ríkra lætur ekki að sér hæða og kemur sér einkar vel, því í júlímánuði má búast við að kona mín verði orðin ansi framsett af meðgöngu þriðja afsprengis okkar. Hún hefði sum sé örugglega ekki komist til Skotlands, en þá koma Álfarnir bara til hennar. Er ekki alger snilld að vera RÍKUR?
:: Valgarduz þriðjudagur, mars 02, 2004 [+] ::
...
|
:: mánudagur, mars 01, 2004 ::
Fyrir aðdáendur Ríkraútvarpsins RÚV þá er aftur hægt hlusta. Nú er kominn endurbættur fæll með linknum á stöðina.
Ríkraútvarpið (RÚV)
Í tilefni ástar helstu tónsillinga heims á Ríkum launum við þeim greiðann. Pixies, Placebo og Krafwerk munu fá lögin sín spiluð fremur öðrum í RÚV næstu daga (fá stefgjöld verða frægari).
:: HauXon mánudagur, mars 01, 2004 [+] ::
...
|
|
[::..Þóknanlegt..::]

Danskir teiknarar!

Jón Baldvin

Max Headroom

Seona Dancing

Türkmenbashy


STÓRVAL
[::.Tvífarinn.::]

Mugi jón Hafstein-son

William H. Macy
Hauxon á MSN
|