:: welcome to Ríkir hf :: bloghome | Viltu vera memm? ::
Vikulistinn (halogen)
- - - - - - - - - -
Vikulistinn (gmarius)
- - - - - - - - - -
Vikulistinn (hauxon)
- - - - - - - - - -
Vikulistinn (kristallur)
- - - - - - - - - -
Vikulistinn (Valgarduz)
- - - - - - - - - -
[::..Eldra stuff..::]

  :: miðvikudagur, mars 31, 2004 ::

Nei, nú ætla ég ekki að þegja!!!

Að eignast barn er persónulegt val sem hefur ýmsar afleiðingar í för með sér. Þegar fólk tekur þessa ákvörðun má það búast við því að þurfa tímabundið að trappa sig niður í vinnu, gera verulegar breytingar á útgjöldum heimilisins og koma sér upp alveg nýrri forgangsröðun hvað flesta hluti varðar - sérstaklega hluti sem kosta peninga. Næstu árin má fólk síðan búast við að þurfa að vera frá vinnu vegna veikinda barna, svo koma fjárútlát vegna daggæslu, tómstunda og að lokum vegna neyslu barnsins. Að eignast barn er auðvitað fyrst og fremst tilfinningaleg skuldbinding, en hún hefur líka fjárhagslegar afleiðingar.

Fæðingarorlofssjóður er "samfélagslegur lúxus" sem Íslendingar geta veitt sér verandi meðal ríkustu þjóða heims. Það Þýðir þó ekki að í hann sé hægt að ausa óendanlegum fjármunum, enda skattaálögur víst nógar fyrir þó við bætum ekki slíkum böggum á skattgreiðendur þessa lands. Fæðingarorlofssjóði er ætlað að koma til móts við ungt fólk sem er að vinna sig upp í atvinnulífinu og er á sama tíma að koma sér upp heimili og fjölskyldu. Til að útvega félaga Grétari Mar örlitla jarðtengingu þá ætla ég að fullyrða það, að fólk í þessari stöðu nær almennt ekki svo háum tekjum að vera með 600 þúsund í heildarlaun á mánuði. Þorri landsmanna lifir einfaldlega í öðrum veruleika en heimi lúxusjeppa, sumarbústaða og "designer-einbýlishúsa".

Þetta er því spurning um forgangsröðun. Það þurfa ALLIR að trappa sig niður í neyslu við það að eignast barn og eftir því sem fólk er með lægri tekjur, því erfiðara er það, því það er einfaldlega af minna að taka. ÞETTA FÓLK Á ÞVÍ AÐ SITJA Í FORGANGI ÞEGAR KEMUR AÐ ÞVÍ AÐ NJÓTA SAMFÉLAGSLEGRA GÆÐA!!! Fólk með hærri tekjur en 600 þús. á mánuði ætti einfaldlega ekki að þurfa að finna eins mikið fyrir samdrættinum í heimilisbókhaldinu. Þegar allt kemur til alls, þá verða þeir sem minna hafa að færa hlutfallslega meiri fjárhagslegar fórnir vegna barneigna en þeir sem meira hafa. Það greiða jú allir sömu dagvistunargjöld, versla í sömu búðunum o.s.frv. Ég verð að segja að málflutningur GMars hér að neðan minnir óþægilega mikið á hugsunarhátt Heimdellinga um samfélagslegt frumskógarlögmál - SURVIVAL OF THE FATTEST!!!!

Þegar allt kemur til alls, þá er það alltaf persónuleg ákvörðun hjá fólki að eignast barn. Þurfi þeir sem hæstu launin hafa að þola það að þurfa að selja lúxusjeppann og fara á þriggja ára gamla Toyotu í staðinn, eða að þola nokkur ár án þess að eiga sumarbústað úti á landi; THEN SO BE IT!!! Aðrar stéttir þurfa víst að færa aðrar eins, ef ekki hlutfallslega meiri fórnir en það.

Kammerat Valgarduz

:: Valgarduz miðvikudagur, mars 31, 2004 [+] ::
...
|

[::..Þóknanlegt..::]



Danskir teiknarar!



Jón Baldvin



Max Headroom



Seona Dancing



Türkmenbashy






STÓRVAL


[::.Tvífarinn.::]


Mugi jón Hafstein-son


William H. Macy
Hauxon á MSN

This page is powered by Blogger. Isn't yours?