| Vikulistinn (halogen) |
| - - - - - - - - - - |
|
| Vikulistinn (gmarius) |
| - - - - - - - - - - |
|
| Vikulistinn (hauxon) |
| - - - - - - - - - - |
|
| Vikulistinn (kristallur) |
| - - - - - - - - - - |
 |
| Vikulistinn (Valgarduz) |
| - - - - - - - - - - |
| [::..Eldra stuff..::] | |
|
|
:: föstudagur, mars 26, 2004 ::
UPPPPSSS!!!
Ja nú þykja mér menn vera byrjaðir að hleypa af stóru fallbyssunum ... greinilegt að ummæli Kristalls um að "Helvíti eru Ríkir alltaf hressir á blogginu. Maður þarf að fara koma af stað einhverjum leiðindum til þess að ná einhverju aksjóni hérna. So here goes nothing ". Hafi svo sannarlega náð fram því sem hann vara að reyna. Það er að hleypa lífi í umræðuna á blogginu. Ekki ætla ég að blanda mér í þessa hörðu orðræðu svo neinu nemi. En verð þó að biðja menn um að gæta stillingar og geyma kjarnorkusprengjurnar þangað síðar.
Sjálfur er ég búinn að setja við skjáinn og bíða óþreyjufullur eftir svari við mínu Kúbverska bloggi. Lék þar tæknin á mig enn einu sinni og bölvaður Internet Explorer vinur minn, þar sem refresh virkaði ekki sem skyldi.
Það má vel vera að einhverjum finnist Icelandair skítaeinokunarfyrirtæki, en hvað sem því líður þá er ég nú hræddur um að landanum myndi nú bregða hressilega ef þess nyti ekki við. Þá fyrst yrði ástandið í samgöngumálum eins og á einokunartíma Dana, enda ekki flogið til nema 2ja borga daglega allt árið. Einnig er ég nú ansi hræddur um að hinir ýmsu "kotbændur" í borgum og bæjum landsins sem ganga undir nafninu, ferðaþjónustuaðilar, daglegu tali, myndu nú væla ansi hátt ef stóra einokunarfyrirtækið í henni Reykjavík myndi ekki sjá um mest alla landkynningu fyrir þá. Ætli þeir væru bara ekki upp til fjalla að mjólka ærnar sínar. ;o
Varðandi spjátrungshátt flugmanna hef ég það eitt að segja að ekki Þykir mér nú neitt verra að vera talinn spjátrungur, enda tel ég það merki þess að vera ekki mótaður í sama mót og almúginn.
Varðandi miða á hina og þessa tónleika þá skilst mér að mínir miðar og minnar kvinnu séu komnir heilir og höldu í hús hjá Halogeninu enda sá hann um að draga þá björg í bú þar sem ég átti í snörpum orðaskiptum við félaga Kastró á sama tíma.
Og hananú .... í bili.
:: Gmaríus föstudagur, mars 26, 2004 [+] ::
...
|
|
[::..Þóknanlegt..::]

Danskir teiknarar!

Jón Baldvin

Max Headroom

Seona Dancing

Türkmenbashy


STÓRVAL
[::.Tvífarinn.::]

Mugi jón Hafstein-son

William H. Macy
Hauxon á MSN
|