| :: welcome to Ríkir hf :: bloghome | Viltu vera memm? :: | ||
|
:: fimmtudagur, apríl 29, 2004 :: Ég er ritstíflaður!
:: mánudagur, apríl 26, 2004 ::
Rösgur mí nasgnuletag refnumelage? Fergasni myrukaris gadne fersehe. ehehe (-:
Magnað hvað ísraelska lagið fékk góðar undirtektir hjá þvernorrænu dómnefndinni. Eiki Hauks rokkar feitt. Þurfti bara magnarastæður og gæja með sítt hár til að gleðja hann - lagið aukaatriði. Þetta er maður með forgangsröðina á hreinu!! Mikið vildi ég sjá Eika í pólitík, helst í ráðherrasæti fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Hann yrði t.d. geðveikur menntamálaráðherra. Held reyndar að hann yrði lélegur í samsærum - hann er eitthvað svo gegnsær grey kallinn.
Skemmtilegt þetta fjölmiðlafrumvarp! Það er sérsniðið að aukinni samsærisumræðu, sem er auðvitað svakalega spennandi. Menn diskútera óvild Sjálfstæðisflokksins gegn ákveðnum aðilum. Mér finnst hinsvegar meira spennandi að vita hvaða stór-fyrirtæki/laxar hafa vild valdhafanna. Það vantar einhverja brjálaða rannsóknarblaðamenn til þess að brjótast inn í höfuðstöðvar Sjálfstæðisflokksins til þess að komast að "sannleikanum", afhjúpa leyndardóminn. Svo er auðvitað hin samsæriskenningin.... hver eru tengsl Baugs og Samfylkingarinannar, borga þeir... Eiga Pétur Blöndal og Mörður Árnason í leynilegu ástarsambandi?
:: laugardagur, apríl 24, 2004 ::
Damnit! Ég asnaðist til að stilla imbann á Popppunkt. Bíð bara spenntur eftir að heyra lagið í keppninni. Abstrakt þankagangur Gunnars Jökuls magnaður og ekki undarlegt að Ísraelar leiti ráðgjafar kleifhuga á fleirum sviðum en utanríkismálum. Annars var ekkert spennadi að Ske í Popppunkti þannig að ég hefði allt eins getað slökkt á Apparatinu.
:: föstudagur, apríl 23, 2004 ::
Tek við þar sem Halogen hætti.
jammzla....þá er það búið....gott en ekki fullkomið.
:: þriðjudagur, apríl 20, 2004 ::
Þið verðið nú að kíkja á nýjasta uppátælið hjá vini okkar Túrkmenabasa
:: sunnudagur, apríl 18, 2004 ::
Reyndar var AlFret aðeins hugsaður sem Tvífari, það er nú meira þannig að hann þóknast Ríkum. Halogenius fær klapp á öxlina fyrir að koma taum í hann. Um leið að því líkur verður hann auðvitað afhöfðaður og höfuðið sett á platta og hann hengdur upp að Hreimsstöðum.
:: laugardagur, apríl 17, 2004 ::
Obb bobb bobb, gleymdi einu ágætis útlit á vefnum okkar. Hönnuður þess skilið að fá heiðursorðu fyrir viðvikið. Annars er ég ekki viss um að Alfreð Þorsteins sé okkur lengur þóknanlegur! Halogenið getur að vísu bara einn svarað því.
Sælir.
Skil að vissu leiti pirringinn hjá honum. Hann skilur ekki hvers vegna hann á að skipa í embætti ef hann hefur ekkert með það að segja hverjir fá stöðuna. Það hefði verið einfalt fyrir hann að viðurkenna að hugsanlega hafi hann gert mistök. Þetta er bara auli.
:: föstudagur, apríl 16, 2004 ::
Hvað með Engilbert Jensen? Góður á tambúrínunni :-)
Verst að svona snillingur kemur ekki aftur fyrr en Gulli Briem fer að taka LSD, safnar skeggi, hendir trommusettinu og fær sér skemmtara. Annars væri hægt að fá Geirmundi í bojbandið í hans stað, ekki eins snjall en jafn hlægilegur.
Gunnar Jökull dó því miður nokkrum mánuðum fyrir þrítugsafmæli okkar.....en planið var jú að fá hann til að spila.
Er Gunnar Jökull ekki kominn yfir móðuna?
Tók út þessa romsu sem var hérna áðan. En mér er samt í nöp við Birgi Ármannsson og Bjarna Benediktsson. Veit ekki hvort það eru þessir teinóttu einkennisbúningar og lakkskórnir eða hvort það er heimskuglottið.
:: miðvikudagur, apríl 07, 2004 ::
Jó hómís!
:: laugardagur, apríl 03, 2004 ::
Talandi um lænöpp, Þá bætist en í lænöppið á Ríkrafestivalinu Thule Open 2004. Nú er Metallica búin að bætast í hópinn. Það er eins og hljómsveitirnar haldi að það sé síðasti séns að hitta okkur.
:: fimmtudagur, apríl 01, 2004 ::
Munið þið eftir "T in the Park"-tónleikahátíðinni. Þið vitið, í Skotlandi þar sem við ætluðum að sjá Pixies áður en kom á daginn að þau kæmu til okkar. Nýjustu fréttir af line-up á T in the Park eru þessar:
|
[::..Þóknanlegt..::]
![]() Danskir teiknarar! ![]() Jón Baldvin ![]() Max Headroom ![]() Seona Dancing ![]() Türkmenbashy ![]() ![]() STÓRVAL [::.Tvífarinn.::] ![]() Mugi jón Hafstein-son ![]() William H. Macy Hauxon á MSN | |
|
|
||