| :: welcome to Ríkir hf :: bloghome | Viltu vera memm? :: | ||
|
:: miðvikudagur, júní 30, 2004 :: Það er merkilegt hvað óvinurinn leggur á sig til að sundra Ríkum....nýjasta dæmið er náttúrulega að kalla einn meðlima til Afríku.......Legg ég til að við fáum sphinxinn í sárabætur fyrir þann missi. Akratorg er kjörinn staður fyrir sphinxinn......Egyptar geta fengið sjómanninn til varðveislu, svona til að missa ekki allt túristaaðráttarafl.
:: þriðjudagur, júní 29, 2004 ::
Þá er maður kominn heim úr heiðadalnum. Mættur í mengunina og skarkalann!
:: laugardagur, júní 26, 2004 ::
Fannst Ástþór bara nokkuð góður í sjónvarpinu í gær. Myndi frekar kjósa hann en jólasveininn. Það væri stórkostlegt að sjá Ástþór hitta Bush útataður í tómatsósu, John Heinz Kerry gæti skaffað honum hana hehehe. Svoldið einkennilegt líka að Ástþór sem fór sem jólasveinn til Íraks fyrir 10 árum, að nú skuli jólasveinninn sjálfur vera mótframbjóðandi hanns! Þetta er efni í mikla samsæriskenningu. Er það vegna þess að Ástþór bauð honum ekki með? Eða af því að Írak er múslimaríki? Viljum við síðan ekki að jólasveinninn sé ópólitískur? Híhíhíhíhi NEI ég meina hohohoho!
:: föstudagur, júní 25, 2004 ::
Kaustu ekki Ástþór frítt síðast?
:: mánudagur, júní 21, 2004 ::
ATKVÆÐI TIL SÖLU!
:: þriðjudagur, júní 15, 2004 ::
Þá er dagsetningin klár - ótrúlega áreynslulítið þetta árið. Þá er bara að maður fari nú að drösla sér út á völl öðru hvoru og æfa sveifluna. Það hefur einhvern veginn orðið minna úr golfiðkun þetta vorið en ætlunin var. Þar sem maður er nú orðinn gildur limur í Leyni verður maður að minnsta kosti að reyna að spila upp í árgjaldið.
:: sunnudagur, júní 13, 2004 ::
Hreimsstaðatröllið tilkynnti mér símleiðis nú rétt áðan að dagsetningin sé ókei.
Sá tíundi er er merktur inn á dagatalið okkar Öldurínu. Mér þykir það frekar líklegt að meistari Gmaríuz hafi þegar séð dagsetninguna. Maðurinn er bara svo vinsæll að hann hefur ekki komist í að skrifa athugasemdir hér inn.
:: föstudagur, júní 11, 2004 ::
það efa ég.......er líka nokkuð viss um að morskerfinu hefði verið breytt í samræmi við niðustöðu Gmars ef misræmi hefði verið á niðurstöðu Ríks og prófstjóra.
:: fimmtudagur, júní 10, 2004 ::
Man ég ekki rétt að hann hafi einhvern tíma fallið á mors-prófi í Flugskólanum?
Trjábóndinn er víst að reyna að hola niður sem flestum jurtum svo hann hafi efni á nýju þaki á kofann. Það tekur sirkabát allan júnímánuð og held ég að hann verði ekki mjög internetglaður á meðan.......enda skilst mér að internetið hafi ekki náð til austurs.....en hey....hann kann mors!!!....sem mun áreiðanlega nýtast í internetlausum óbyggðunum.
HauXon var búinn að lýsa því yfir að allar dagsetningar væru í lagi fyrir hann og hans frú, þannig að nú vantar bara staðfestingu frá GMar á 10. júlí. Er hann máske utan tölvusambands á útkoti sínu á Austurlandi?
:: sunnudagur, júní 06, 2004 ::
Hómís,
:: miðvikudagur, júní 02, 2004 ::
Fjelagar!!
Var nú bara svona að spá í tilefni sumarsins hvenær menn væru lausir í Rikir Closed. Valli var búinn að pósta mögulegum dagsetningum sem allar eru í lagi fyrir okkur Öldurínu. Hvernig er með ykkur hina? Miðað við síðustu golfferð okkar Gmaríuzar ætti hann að vilja hafa mótið fljótlega :-Þ Ríkir reisið raust ykkar! Ég legg til að nú verði keyptur bikar sem sigurvegarinn hefur til vörslu í ár.
|
[::..Þóknanlegt..::]
![]() Danskir teiknarar! ![]() Jón Baldvin ![]() Max Headroom ![]() Seona Dancing ![]() Türkmenbashy ![]() ![]() STÓRVAL [::.Tvífarinn.::] ![]() Mugi jón Hafstein-son ![]() William H. Macy Hauxon á MSN | |
|
|
||