:: welcome to Ríkir hf :: bloghome | Viltu vera memm? ::
Vikulistinn (halogen)
- - - - - - - - - -
Vikulistinn (gmarius)
- - - - - - - - - -
Vikulistinn (hauxon)
- - - - - - - - - -
Vikulistinn (kristallur)
- - - - - - - - - -
Vikulistinn (Valgarduz)
- - - - - - - - - -
[::..Eldra stuff..::]

  :: sunnudagur, júní 13, 2004 ::

Sá tíundi er er merktur inn á dagatalið okkar Öldurínu. Mér þykir það frekar líklegt að meistari Gmaríuz hafi þegar séð dagsetninguna. Maðurinn er bara svo vinsæll að hann hefur ekki komist í að skrifa athugasemdir hér inn.

Annars var mér og lærisveini mínum Svenn boðin þátttaka í Hole in one Open golfmótinu sem fór fram núna í gær að Korpúlfsstaðavelli. Svo virðist sem Kristallur hafi ekki vitað af mótinu og stillt veðrið á slagveður. Var veðrið svo slæmt að eitt skiptið þegar ég var að pútta fauk ég næstum um koll og þykk húfa sem ég var með fauk þannig að ég þurfti að hlaupa á eftir henni. Nokkrum holum síðar fauk kerran og pokinn upp brekku á meðan ég var að slá. Svo átti ég dræv sem ég hitti sæmilega og náði svona kannski 60-70m á móti vindinum! Svenn var ekki með regnföt eða golfskó meðferðis var því ca. 100 kg að móti loknu. Ég stal húfunni af ofni í golfskálanum rétt áður en við fórum út. Besta skor dagsins átti Sigurjón Arnarson fyrrverandi íslandsmeistari, 83 högg (og þegar hann lék var veðrið rétt að byrja). Það versta var 138 högg og það átti einhver gaukur með 15 í forgjöf. Ég var vel yfir hundraðinu og Svenn var um hundraðið. Við þurftum að skríða inn í bíl eftir að hafa spilað í rúma fimm tíma. Flestir hættu eftir 9 holur, en okkur fannst þetta of fyndið til að hætta. Svo er bara vonandi að Ríkra mótið verði jafn magnað, en þó ekki veðurfarslega :-)

:: HauXon sunnudagur, júní 13, 2004 [+] ::
...
|

[::..Þóknanlegt..::]



Danskir teiknarar!



Jón Baldvin



Max Headroom



Seona Dancing



Türkmenbashy






STÓRVAL


[::.Tvífarinn.::]


Mugi jón Hafstein-son


William H. Macy
Hauxon á MSN

This page is powered by Blogger. Isn't yours?