| Vikulistinn (halogen) |
| - - - - - - - - - - |
|
| Vikulistinn (gmarius) |
| - - - - - - - - - - |
|
| Vikulistinn (hauxon) |
| - - - - - - - - - - |
|
| Vikulistinn (kristallur) |
| - - - - - - - - - - |
 |
| Vikulistinn (Valgarduz) |
| - - - - - - - - - - |
| [::..Eldra stuff..::] | |
|
|
:: fimmtudagur, ágúst 19, 2004 ::
Heill Halogeniusi! Lýðurinn fagnar 32 ára blessun og návistar hanns mikilfengleika.
Mikil leynd hefur verið yfir heimsókn Clinton hjónanna. Svo mun verða áfram. Halogen, blekkingameistari, þú sérð áfram um að villa um fyrir lýðnum. Enginn má komast að athvarfi þeirra að Hreimsstöðum. Gmaríuz tekur þau með sér frá Kúbu og fer með þau austur. Við Valgaduz villum um fyrir svo enn frekar ens og við gerðum í dag með því að þykjast vera lélegir í golfi.
Yfir og út fyrir!
Hrannolouz Örfeúreuz Hau Hau Hau
Leynifjelaginu Ríkir háeff
:: HauXon fimmtudagur, ágúst 19, 2004 [+] ::
...
|
:: fimmtudagur, ágúst 12, 2004 ::
Ég og fjölskylda mín þökkum góðar kveðjur. Mér er farið að líða eins og Sir William Wallace í Braveheart: Hvernig sem fer fyrir mér, þá mun mun mínu blóði hlotnast öll völd að lokum. Þeim sem vilja fá að líta þennan nýja arftaka Ríkra augum bendi ég á vefsíðu:
http://storm.prohosting.com/valli/
Fleiri myndum verður bætt þarna inn síðar.
:: Valgarduz fimmtudagur, ágúst 12, 2004 [+] ::
...
|
:: þriðjudagur, ágúst 10, 2004 ::
Til hamingju Valli og Íris með nýja drenginn! Veðurfarsstýingastofa Ríkra sendir blíðviðri yfir landið í tilefni viðburðarins út vikuna. Landsmenn skulu allir ganga um á stuttbuxum, borða ís og grilla næstu daga til heiðurs stórfjölskyldunni að Vall(a)holti.
Svo mikil leynd hvíldi yfir árlegu golfmóti Ríkra þetta árið að enginn vissi af því, ekki einu sinni Ríkir sjálfir og tóku því engir þátt í því er það fór fram. Það er spurning hvort að óðalsbóndinn að Hreimsstöðum beri ekki skylda til þess að bæta okkur hinum skaðann með því að bjóða okkur í hreindýrapatè, gæsalifur, grafinn lax og kúbveska vindla.
Enn og aftur hamingju óskir með hinn nýja Ríka.
:: HauXon þriðjudagur, ágúst 10, 2004 [+] ::
...
|
:: mánudagur, ágúst 09, 2004 ::
Íris og Valli!
Til hamingju með nýjasta fjölskyldumeðliminn og verðandi handhafa alvaldsins.
Hrannar!
Til hamingju með gærdaginn.....vil líka nota tækifærið og senda samúðarkveðjur vegna fráfalls afa þíns.
Þar sem ég er í kveðju-stuði ætla ég að senda sjálfum mér stuð kveðjur...or something...
:: Halogen mánudagur, ágúst 09, 2004 [+] ::
...
|
:: sunnudagur, ágúst 08, 2004 ::
Þar sem panflautuleikarinn í Lima er nú á bataveigi, þökk sé Blistex og mánaðarlaungum fyrirbænum Ríkra, þykir mér rétt að koma með smá öppdeit af Vallholtinu. Nú á sunnudagskveldi 8. ágúst er ég nýkominn ofan af sjúkrahúsi þar sem mín ektafrú var í undirbúníngi undir keisaraskurð sem framkvæmdur verður í fyrramálið. Ég hafði reyndar ákveðið að fara snemma að sofa þar sem ég ætla að mæta eldhress í fyrramálið upp á spítala til að klæðast græna skurðstofugallanum; en í þessum aðstæðum er ekki sérlega auðvelt að festa svefn og þess vegna er ég hér að skrifa inn á bloggið í stað þess að hvílast.
Þriðji erfingi okkar hjóna verður sumsé sóttur inní móðurkvið á morgun, mánudaginn 9. ágúst, með hjálp skurðhnífa, deyfilyfja og einnota hanska.
En nú verð ég að fara að reyna að sofa ef ég ætla ekki að verða rænulaus í fyrramálið. Læt vita um leið og eitthvað gerist.
:: Valgarduz sunnudagur, ágúst 08, 2004 [+] ::
...
|
:: miðvikudagur, ágúst 04, 2004 ::
EKKÓ EKKÓ! TESSTING TESSTING!
Við viljum þakka aðdáendum okkar fyrir að þola mánaðar þagnarbindindi til stuðnings fyrsta panflautuleikara synfóníuhljómsveitar Lima sem hefur átt við langvarandi varaþurrk að stríða.
:: HauXon miðvikudagur, ágúst 04, 2004 [+] ::
...
|
|
[::..Þóknanlegt..::]

Danskir teiknarar!

Jón Baldvin

Max Headroom

Seona Dancing

Türkmenbashy


STÓRVAL
[::.Tvífarinn.::]

Mugi jón Hafstein-son

William H. Macy
Hauxon á MSN
|