:: welcome to Ríkir hf :: bloghome | Viltu vera memm? ::
Vikulistinn (halogen)
- - - - - - - - - -
Vikulistinn (gmarius)
- - - - - - - - - -
Vikulistinn (hauxon)
- - - - - - - - - -
Vikulistinn (kristallur)
- - - - - - - - - -
Vikulistinn (Valgarduz)
- - - - - - - - - -
[::..Eldra stuff..::]

  :: fimmtudagur, október 28, 2004 ::

Ágætlega þekki ég félagana og þeirra fólk, hins vegar reiknaði ég með að hin Ríkmannlegu sjónarmið Ríks yrðu ofan á í skoðanaskiptum okkar. Ég fagna þó þeirri yfirlýsingu félaga Kristalls að honum detti ekki í hug að vinna fyrir þau smánarlaun sem kennaralaunin eru. Tek ég undir þau orð, aldrei skildi mér detta í hug að vinna á slíkum sultarlaunum.

Hins vegar má alveg ljóst vera að eitthvað mikið þarf að breytast eigi að vera veruleg bót á launum kennara. Afkastatenging er ein að þeim aðferðum sem vert er að skoða, útfærslan á því hvernig því skuli háttað er akkúrat atriði þar sem sérþekking Ríkra á slíkum málum, gæti notið sín.

Hins vegar harma ég það hvað orðið einka stingur í augum/eyrum félaga Kristalls. Hann hefur líklega gleymt að setja í sig linsurnar áður en hann las mín fyrri skrif. Það má alveg ljóst að einka eitthvað er gott á borði Ríks, þó er ekki gott að alhæfa þar sem einka sumt á ekki við. Hins vegar tel ég því ekkert til fyrirstöðu að skólum sé gert kleyft að starfa sem einkareknir, en ekki vera fjársveltir umfram aðra rekna af sveitarfélögunum. Þess má sjá dæmi í borg óttans.

Með því að losa skólana undan ofurvaldi niðurnjörvaðra samninga um vinnutíma, launapotta og hvað það nú kallast allt saman. Með því að gera einstaka sveitarfélögum og skólum kleift að gera samninga sín á milli væri hægt að skapa fjölbreyttari skóla. Það má ekki gleymast að skólar er þjónustustofnanir sem veita börnum þessa lands menntun. Starfsmenn þeirra eru kennarar sem veita þjónusta til viðskipavinarins sem eru börnin. Greiðendurnir eru hins vegar allir skattgreiðendur sama hvort þeir eiga börn eða ekki. Og sem skattgreiðandi þessa lands þá geri ég þá kröfu á þjónustustofnanir, sama hvort um er að ræða einhvern skóla eða Tryggingastofnun, að þær skili viðskiptavinunum góðri þjónustu. Í tilfelli skólanna er það menntun.

Sá mælikvarði sem oftast er notaður til að mæla árangur þess starfs/náms er próf. Ekki er tekið tillit til þess, í tilfelli nemans, hvort hann sé skapgóður eða hafi verið í bekk með einhverjum ólátabelgjum þegar hann sækir um nám í framhaldsskóla. Með sömu rökum má segja að ekki sé neitt á móti því að meta árangur kennarans með sömu aðferðarfræði. Vandamálið með ólátabekkinn, sem veldur kennara sínum sálarangist, er vandamál sem skólinn á að geta tæklað. Ef skólinn getur það ekki í dag þá á það að vera krafa viðskiptavinarins og greiðandans að það verði gert.

Varðandi þau rök Kristalls að bera saman kennara og fórnarlömb nauðgana finnst mér með öllu óviðeigandi. Nauðgun er glæpur sem framin er á einhverjum gegn vilja viðkomandi. Síðasti kjarasamningur kennara var ekki settur á þá nauðuga, þeir samþykktu hann í lýðræðislegri atkvæðagreiðslu. Þá skiptir engu þó það hafi verið með naumum meiri hluta. Það sem skiptir máli var að meirihlutinn réði! Það gengur þó algjörlega gegn betri vitund Kristalls sem veit að valdið er okkar, okkar skoðanir eru alltaf réttar þó svo að þær stangist á við skoðanir hins umrædda meirihluta. Þetta er líklega það sem þú varst að reyna að skrifa áður en prentvillupúkinn læddist inn í textann.

Um lóðamál, markaðssetningu og mína meintu hægri sveiflu mun ég tjá mig í næsta pistli (ekki kæmi mér á óvart þó eitthvað yrði þar rætt um kennara).

Ps. Hvar er helsti kapítalisti Ríkra, fyrirtækiseigandinn?

:: Gmaríus fimmtudagur, október 28, 2004 [+] ::
...
|

[::..Þóknanlegt..::]



Danskir teiknarar!



Jón Baldvin



Max Headroom



Seona Dancing



Türkmenbashy






STÓRVAL


[::.Tvífarinn.::]


Mugi jón Hafstein-son


William H. Macy
Hauxon á MSN

This page is powered by Blogger. Isn't yours?