:: welcome to Ríkir hf :: bloghome | Viltu vera memm? ::
Vikulistinn (halogen)
- - - - - - - - - -
Vikulistinn (gmarius)
- - - - - - - - - -
Vikulistinn (hauxon)
- - - - - - - - - -
Vikulistinn (kristallur)
- - - - - - - - - -
Vikulistinn (Valgarduz)
- - - - - - - - - -
[::..Eldra stuff..::]

  :: laugardagur, október 30, 2004 ::

Sumir virðast á köflum svo ánægðir með sig að ekki veitir af smá níðvísu til mótvægis.

Fágaður og fínn til fara.
Fégráðugur, rogginn flugmaðurinn.
Ríkisbubbinn er nú bara.
Rútubílstjóri... já!... og búningurinn.

:: HauXon laugardagur, október 30, 2004 [+] ::
...
|
  :: föstudagur, október 29, 2004 ::

Á vörum allra og hvers manns tungu.
Var verkfallið bara plat?
Kennaragreyin á limminu sprungu,
og kjósa svo um eitthvað frat.



:: HauXon föstudagur, október 29, 2004 [+] ::
...
|
  :: fimmtudagur, október 28, 2004 ::
Ágætlega þekki ég félagana og þeirra fólk, hins vegar reiknaði ég með að hin Ríkmannlegu sjónarmið Ríks yrðu ofan á í skoðanaskiptum okkar. Ég fagna þó þeirri yfirlýsingu félaga Kristalls að honum detti ekki í hug að vinna fyrir þau smánarlaun sem kennaralaunin eru. Tek ég undir þau orð, aldrei skildi mér detta í hug að vinna á slíkum sultarlaunum.

Hins vegar má alveg ljóst vera að eitthvað mikið þarf að breytast eigi að vera veruleg bót á launum kennara. Afkastatenging er ein að þeim aðferðum sem vert er að skoða, útfærslan á því hvernig því skuli háttað er akkúrat atriði þar sem sérþekking Ríkra á slíkum málum, gæti notið sín.

Hins vegar harma ég það hvað orðið einka stingur í augum/eyrum félaga Kristalls. Hann hefur líklega gleymt að setja í sig linsurnar áður en hann las mín fyrri skrif. Það má alveg ljóst að einka eitthvað er gott á borði Ríks, þó er ekki gott að alhæfa þar sem einka sumt á ekki við. Hins vegar tel ég því ekkert til fyrirstöðu að skólum sé gert kleyft að starfa sem einkareknir, en ekki vera fjársveltir umfram aðra rekna af sveitarfélögunum. Þess má sjá dæmi í borg óttans.

Með því að losa skólana undan ofurvaldi niðurnjörvaðra samninga um vinnutíma, launapotta og hvað það nú kallast allt saman. Með því að gera einstaka sveitarfélögum og skólum kleift að gera samninga sín á milli væri hægt að skapa fjölbreyttari skóla. Það má ekki gleymast að skólar er þjónustustofnanir sem veita börnum þessa lands menntun. Starfsmenn þeirra eru kennarar sem veita þjónusta til viðskipavinarins sem eru börnin. Greiðendurnir eru hins vegar allir skattgreiðendur sama hvort þeir eiga börn eða ekki. Og sem skattgreiðandi þessa lands þá geri ég þá kröfu á þjónustustofnanir, sama hvort um er að ræða einhvern skóla eða Tryggingastofnun, að þær skili viðskiptavinunum góðri þjónustu. Í tilfelli skólanna er það menntun.

Sá mælikvarði sem oftast er notaður til að mæla árangur þess starfs/náms er próf. Ekki er tekið tillit til þess, í tilfelli nemans, hvort hann sé skapgóður eða hafi verið í bekk með einhverjum ólátabelgjum þegar hann sækir um nám í framhaldsskóla. Með sömu rökum má segja að ekki sé neitt á móti því að meta árangur kennarans með sömu aðferðarfræði. Vandamálið með ólátabekkinn, sem veldur kennara sínum sálarangist, er vandamál sem skólinn á að geta tæklað. Ef skólinn getur það ekki í dag þá á það að vera krafa viðskiptavinarins og greiðandans að það verði gert.

Varðandi þau rök Kristalls að bera saman kennara og fórnarlömb nauðgana finnst mér með öllu óviðeigandi. Nauðgun er glæpur sem framin er á einhverjum gegn vilja viðkomandi. Síðasti kjarasamningur kennara var ekki settur á þá nauðuga, þeir samþykktu hann í lýðræðislegri atkvæðagreiðslu. Þá skiptir engu þó það hafi verið með naumum meiri hluta. Það sem skiptir máli var að meirihlutinn réði! Það gengur þó algjörlega gegn betri vitund Kristalls sem veit að valdið er okkar, okkar skoðanir eru alltaf réttar þó svo að þær stangist á við skoðanir hins umrædda meirihluta. Þetta er líklega það sem þú varst að reyna að skrifa áður en prentvillupúkinn læddist inn í textann.

Um lóðamál, markaðssetningu og mína meintu hægri sveiflu mun ég tjá mig í næsta pistli (ekki kæmi mér á óvart þó eitthvað yrði þar rætt um kennara).

Ps. Hvar er helsti kapítalisti Ríkra, fyrirtækiseigandinn?

:: Gmaríus fimmtudagur, október 28, 2004 [+] ::
...
|
Fyndið hvernig andsvör Kristallar spegla svör íslenskra stjórnmálamanna. Allt er varið, mistök verða ekki viðurkennd sama hversu heimskuleg þau eru. Flatahverfið er svo illa skipulagt að enginn nema skipuleggjendurnir sjálfir (eða börn þeirra) láta sér detta í hug varnarorð fyrir þessa vitleysu. Það er nú ekki ennþá búið að minnast á Grænlensku vinnuskúrabyggðina austan við Víðigrundina. Þvílíkt umhverfisslys! Það er sorglegt að reyna að bera saman húsin og lóðirnar t.d. í Jörundarholtinu saman við þessi nýju hverfi, afturförin er gríðarleg. Lóðirnar í Flatahverfinu eru ekkert minni en gengur og gerist í Reykjavík en sjálfum finnst mér óþarfi að apa þá vitleysu upp. Varðandi stærri lóðir þá var útlendingur eini íbúinn á Akranesi sem sá kosti stórbýlalóðanna. Á Akranesi er manni kennt að vera ekki með eitthvað mikilmennskubrjálæði.

Fjölgun háskólamenntaðra á Akranesi ef einhver er, skipast af miklu leiti af þeirri þróun að háskólamenntun er að verða almennari en ekki vegna einhvers sem bæjarstjórnin á Akranesi hefur gert og hugsanlega breytingu leikskólakennaranáms á háskólastig. Þeir menntamenn sem hafa snúið heim hafa gert það af eigin frumkvæði og ekki fyrir tilstilli hugmyndasnauðra bæjaryfirvalda. Stóriðjurnar þurfa kannski 1 háskólamennstaðann á móti hverjum 100 sem vinna skítverk. Að halda því fram að þannig bæti maður hlutfall vel menntaðra á Akranesi sýnir dómgreindarskort. Hlutverk bæjarins hlýtur að vera að fá sem mest útsvar frá hverjum íbúa og þess vegna er ekkert gott við þessi skítastörf. Ekki sé ég fyrir mér að Garðabær reyni fyrir alla mætti að fá til sín eiturspúandi verksmiðjur með láglaunastörfum. Ég kalla það svo ekki mikinn metnað að fara í auðvelt háskólanám til þess eins að læra "eitthvað" og vinna svo við eitthvað sem reynir ekki meira á heilann á manni heldur en að opna niðursuðudós. Ég er þó allavegna í námi sem krefst einhvers af manni.

Varðandi kennaradeiluna þá er ótrúleg þversögn í því að halda því fram að vinnustundir kennara séu fleiri en eðlilegt teljist á vinnumarkaði og hafna síðan 50% launahækkun og styttingu vinnutíma samkvæmt því.

Nóg í bili ....HAUXON

:: HauXon fimmtudagur, október 28, 2004 [+] ::
...
|
Vörn Kristalls fyrir kennarastéttina er fyrir margra hluta sakir merkileg, verandi ekki kennari sjálfur. Færa má viss rök fyrir því að kennarar séu ekkert alltof vel af sínum launum komnir, hins vegar sömdu þeir bara hrapalega af sér síðast og geta engum um kennt en sér sjálfum. Ég tel að réttast væri að árangurstengja laun kennara. Eins og alþjóð veit þá hafa einkunnir úr samræmdum prófum ekki verið neitt til að hrópa húrra yfir. Landsmeðaltalið liggur rétt ofan við 5. Hver hefur brugðist? Neminn? Foreldrið? Kennarinn?

Ég held að réttast væri að losa skólana úr klóm ríkis og sveitarfélaga og gera einkaaðilum tækifæri á að spreyta sig á þessu sviði. Þar með gætu komið fram aðrar og betri leiðir við kennslu en verið er að nota í dag, skólar sem gæfu kennurunum og nemendum sínum tækifæri á að sýna sýnar bestu hliðar.
Sveitarfélögin, ríkið og kennarar virðast allir vilja halda í þetta gamla miðstýrða kerfi, þar sem allir koma út í ein pökkum. Greiða mætti skólum sem skila góðum árangri aukalega.

Aftur að skipulagsmálum. Hauxon kom inn á stærðir lóða, en það er eitt að þeim atriðum sem ég hugðist fjalla nánar um síðar. Rétt er hjá honum að þessar lóðir sem skipulagsyfirvöld Akraness hafa verið að bjóða upp á eru algjör frímerki. Og það er ekki rétt hjá Kristalli að húsbyggendur geti bara byggt eins og þeim sýnist á þessu frímerki, þar koma til þættir eins og nýtingarhlutfall lóðar og svo framvegis. Lóðirnar eru smáar og eingöngu ætlaðar fyrir smá hús! Smá hús henta hins vegar ekki öllum.

Þessi atriði koma síðan inn á markaðssetningu staðarins út á við, en hún er sáralítil. Það litla sem komið hefur flokkast bara undir crap!

Meira um skipulag og markaðsmál síðar.

:: Gmaríus fimmtudagur, október 28, 2004 [+] ::
...
|
Á bágt með að skilja hvers vegna kennarar vilja ekki einfalda launakerfið, skila fullri vinnuviku og þiggja þokkaleg laun fyrir það. Nú hafa kennarar endanlega misst alla samúð almennings.

Verkfallinu aftur beitt.
Á börnunum þeir níðast!
Þeir eiga ekki að fá neitt,
og fengu allt of mikið síðast!

Ég veit nú ekki hvað Kristallur á við þegar hann talar um "upplýst og siðmenntað vinnuafl"! Það er alkunna að bæjarstjórnaryfirvöld hafa hrakið menntafólk úr bænum svo árum skiptir. Ég get ekki séð hvað yfirvöld á Akranesi hafa gert til þess að laða til sín menntafólk í vel-launuðum störfum. Hve há prósenta háskólamenntaðra "Akurnesinga" býr enn á Akranesi? Hver eru laun (=væntanlegt útsvar) þeirra í samanburði við ryksóparana í álverinu eða sementverksmiðjunni? Hver er tilgangur bæjarfélagsins að laða til sín vinnu þar sem útsvarið er svo lágt að bærinn þarf að borga með fólkinu? Hvers vegna eru ný hverfi á Akranesi skipulögð þannig að lóðin stendur aðeins 2 metra út fyrir húsgrunninn? Hvar eru grænu svæðin inni í nýju hverfunum? Út af hverju stoppaði skógræktin allt í einu fyrir 20 árum? Listinn er endalaus!

Maður getur líka spurt sig "Hvað er aðlaðandi við Akranes?". Svarið við spurningunni fyrir mig allavegna er það sem Akurnesingar sjá ekki. Golfvöllurinn, nálægð við Reykjavík, nægt landrými = stórar og góðar lóðir, og takið eftir.. góðir skólar, milt veður, Harðar bakrarí hehehe.

:: HauXon fimmtudagur, október 28, 2004 [+] ::
...
|
  :: miðvikudagur, október 27, 2004 ::
SVEITARFÉLÖG Á VILLIGÖTUM

Eins og allir vita þá eru sveitarfélög illa rekin. Þeim er vanalega stjórnað af þröngri klíku valdamanna sem flestir hafa setið of lengi að völdum. Valdþreyta og hroki gera vart við sig, svo og sinnuleysi gagnvart íbúunum. Þetta kemur vel fram í hinu margrómaða kennaraverkfalli sem nú hefur staðið yfir í 38 daga. Þarna sjá sveitarfélögin sér hag í því að spara á kostnað íbúana. Að vísu eiga þeir við þá stétt sem virðist vera algjörlega óseðjandi í launakröfum, það er kennara.

Ég hef því ákveðið að taka að mér sveitastjórnarmál Ríkra. Að vísu er það fyrir neðan virðingu Ríks að vera að vasast í slíkum smá málum en ég sé þetta sem ágætis dægrastyttingu í skammdeginu, á milli þess sem ég ligg á sólarströnd, spila golf eða ræði málin yfir einum köldum.
Ég ætla meira að segja að taka eitt sveitarfélag í gjörgæslu, svokallað tilraunarsveitarfélag Ríkra. Það sveitarfélag sem varð fyrir valinu er eitt af úthverfum Reykjavíkur, verksmiðjubær. Sveitarfélag sem einkennist af einhverri blöndu af þröngsýni og hræðslu við breytingar. Hálfgerður hreppur þar sem mikilla umbóta er þörf. Þetta sveitarfélag er Akranes!

Það er einkennandi fyrir Akranes hversu mikið þeir leggja upp úr stóriðju, merkileg tímaskekkja á dögum upplýsinga og tækni. Skagamenn hafa lagt sig alla fram við að laða til sín eiturspúandi verksmiðjur, þá sögu má rekja allt aftur til 1958 þegar Sementsverksmiðja Ríkisins tók þar til starfa. Framsýni þeirra var þá svo mikil að verksmiðjan var staðsett á besta stað í bænum, miðbænum. Var þetta gert með það að leiðarljósi að allir starfsmenn verksmiðjunar gætu gengið heim í mat og kaffi. Einnig til að aðrir íbúar staðarins þyrftu ekki klukku til að vita hvenær klukkan yrði 1200, sakir þess að stórum lúðri var komið fyrir í verksmiðjunni sem blés sem óður væri þegar menn ættu að fara í mat. Þetta eru að vísu eilítið umhverfisvæn sjónarmið, fólk þarf til dæmis ekki bíla og það hreyfir sig. En hvaða heilvita manni dettur í hug að setja verksmiðju inn í miðjan bæ?

Síðan þá hafa Skagamenn bætt heldur betur á sig í stóriðjunum, núna "eiga þeir" 1 álver og 1 járnblendiverksmiðju. Að vísu sáu þeir aðeins að sér og létu setja þær niður þannig að þeir þyrftu ekki að horfa á þær allan daginn. Þess vegna var þeim valin staður bak við Akrafjallið, meira að segja í öðrum hreppi. Svo mikil var skömmin. Æ síðan hafa þeir viljað sölsa undir sig þennan hrepp, sem er vel. En það hefði verðið réttara að gera það áður!

Þessari stóriðjuhyggju og molbúahætti fagna erlendir auðmenn, þeir eiga jú verksmiðjunar. Það datt náttúrulega engum almúgamanni það í hug að eiga slíkt, ekki á Skaganum. Auðmenn þessir sjá þarna tækifæri í ódýru vinnuafli, svo gott sem gefins orku og lágum aðstöðugjöldum. Það eina sem þarf að gera er að stinga dúsu upp í ráðamenn bæjarfélagsins/hreppsins, til dæmis að velja þá í valdalausar stöður innan fyrirtækjanna nú eða í stjórnir orkufyrirtækjanna.

Til að bæta gráu ofan á svart, þá kom upp sú umræða fyrir nokkrum misserum síðan, að leggja niður Sementsverksmiðjuna. Með því hefði verið hægt að breyta ásýnd þessa annars verksmiðjuvædda bæjar. Risu þá þessir sömu ráðamenn upp á afturlappirnar og sögðu það mikið óráð. Það væri svo mikið í húfi! Þar með misstu þeir að gullnu tækifæri til að snúa blaðinu við, bæta ráð sitt og byggja upp betri bæ. Bæ sem myndi laða til sín ungt fólk, fólk með menntun, fólk með peninga og líka fyrirtæki, fyrir fólk!

Ég mun halda þessum sveitarfélagarannsóknum mínum áfram næstu daga. Ég veit líka að allir Ríkir geta tekið undir hvert einasta orð sem ég hef hér skrifað. Látið í ykkur heyra félagar, þeytið lúðrana.

:: Gmaríus miðvikudagur, október 27, 2004 [+] ::
...
|
  :: mánudagur, október 18, 2004 ::
Hómís!!
Skv. þýska DIN staðlinum þá er A4 blað helmingi minna en A3. A3 helmingi minna en A2 o.sv.frv. Er þá ekki Audi A8 drusla og margfalt ómerkilegri bíll en Audi A4? Ég mundi bara vilja A0 og ekkert annað!!

Jammzl það er ekki ómerkilegri sveit en The Fall á leiðinni til landsins. Sveitin er svo merkileg að það er til íslenskt orðatiltæki sem lýsir ágæti sveitarinnar og vísar sérstaklega í þá gæfu sem hlotnast þeim er á hlýða - Fall er fararheill!

:: Halogen mánudagur, október 18, 2004 [+] ::
...
|
  :: sunnudagur, október 17, 2004 ::
Nú er naprir haustvindarnir nauða og getum vér Ríkir hlakkað till súrra sela og sauða eftir að nýtt árþúsund gengur um garð (samkvæmt nýjustu úterikningum).

Vér Halogenius verðum ekki fyrir vonbrigðum er við förum á Vonbrigði með Haustinu (the Fall) og Hjálmarsson læknir hitar upp en ekki niður í Eystri-bæjarbíógrafi. Til að halda jafnvægi á móti pönkinu ætla ég að hlusta á hinu hugljúfu Keane-bræður leika griplandi lagalykkjur í listahafninu niður við söfn. Máski ætti maður einnig að leggja eyrun eftir heitnætum Saharaeyðimerkurinnar en þessar sænzku kjötgellur spila einmitt einnig á íslensku loftölduhátíðinni næstu helgi.

Englahárið ekur nú á bifreið sem Ríkir myndu nota ef þeir þyrftu ekki fara huldu höfði, Audi A8. Á meðan svo er fær hann bílinn til afnota gegn því að bóna hann reglulega. Yfir og út og suður.

Bla bla bla bla bla. Bla bla bla bla bla. Bla bla bla bla bla. Bla bla bla bla bla. Bla bla bla bla bla. Bla bla bla bla bla.

Kveðja, Dr. Hurfrfrfrfrrfr

:: HauXon sunnudagur, október 17, 2004 [+] ::
...
|
  :: fimmtudagur, október 07, 2004 ::
THE MASTER SPEAKS!

Saelir fjelagar. Tad er nokkud langt um lidid sidan eg hef akvedid ad leggja her ord i belg. Takka godar kvedjur vegna glaest sigur mins a Rikramotinu svo og vegna tess arlega stovidburdar sem afmaeli mitt er, eins og er med onnur afmaeli Riks.

Fretti annars ad 2 af Rikum hefdu farid i rannsoknarfor nidur i midbae Reykjavikur eftir ad skyggja tok nu um daginn. Teir hefdu tekid ut alla helstu gomlu stadina og sed ad ekkert hefdi breyst. Enda ekki vid tvi ad buast tegar Rikir eru ekki naerri a tessum stodum on daily basis.

Nu svona til ad gledja mannskapinn, ta er kominn dagsetning a vetrarfagnad fjelagsins. Tad mun verda haldid i sumarholl samgongumafiunnar i Felli Husa daganna 28 til og med 30 januar naestkomandi. Tad er ad segja ef eg man rett. Tvi eru Rikir bednir um ad byrja ad leggja kjet i sur og veida ta seli sem til tarf. Einnig er haegt ad fara ad leggja i og eyma innan skamms.

Annars bid eg fyrir bestu kvedjur upp a Fron hedan fra NYC tar sem eg er a fundi med helstu fjarmalaleppum okkar herna i vesturheimi. A morgun verdur svo farid til Gayana en tad mun ta vera i fysta sinn sem Rikur stigur a Sudur ameriska grund svo vitad se (ad minnsta kosti opinberlega).

Adios amigos.



:: Gmaríus fimmtudagur, október 07, 2004 [+] ::
...
|
  :: þriðjudagur, október 05, 2004 ::
"Steven Stack og James Gundlach fengu læknisfræðiverðlaunin fyrir skýrslu sína um áhrif kántrítónlistar á sjálfsvígstíðni." íhíhíhhíhíhi

Sjá: http://www.mbl.is/mm/frettir/togt/frett.html?nid=1105514

:: HauXon þriðjudagur, október 05, 2004 [+] ::
...
|

[::..Þóknanlegt..::]



Danskir teiknarar!



Jón Baldvin



Max Headroom



Seona Dancing



Türkmenbashy






STÓRVAL


[::.Tvífarinn.::]


Mugi jón Hafstein-son


William H. Macy
Hauxon á MSN

This page is powered by Blogger. Isn't yours?