| Vikulistinn (halogen) |
| - - - - - - - - - - |
|
| Vikulistinn (gmarius) |
| - - - - - - - - - - |
|
| Vikulistinn (hauxon) |
| - - - - - - - - - - |
|
| Vikulistinn (kristallur) |
| - - - - - - - - - - |
 |
| Vikulistinn (Valgarduz) |
| - - - - - - - - - - |
| [::..Eldra stuff..::] | |
|
|
:: miðvikudagur, október 27, 2004 ::
SVEITARFÉLÖG Á VILLIGÖTUM
Eins og allir vita þá eru sveitarfélög illa rekin. Þeim er vanalega stjórnað af þröngri klíku valdamanna sem flestir hafa setið of lengi að völdum. Valdþreyta og hroki gera vart við sig, svo og sinnuleysi gagnvart íbúunum. Þetta kemur vel fram í hinu margrómaða kennaraverkfalli sem nú hefur staðið yfir í 38 daga. Þarna sjá sveitarfélögin sér hag í því að spara á kostnað íbúana. Að vísu eiga þeir við þá stétt sem virðist vera algjörlega óseðjandi í launakröfum, það er kennara.
Ég hef því ákveðið að taka að mér sveitastjórnarmál Ríkra. Að vísu er það fyrir neðan virðingu Ríks að vera að vasast í slíkum smá málum en ég sé þetta sem ágætis dægrastyttingu í skammdeginu, á milli þess sem ég ligg á sólarströnd, spila golf eða ræði málin yfir einum köldum.
Ég ætla meira að segja að taka eitt sveitarfélag í gjörgæslu, svokallað tilraunarsveitarfélag Ríkra. Það sveitarfélag sem varð fyrir valinu er eitt af úthverfum Reykjavíkur, verksmiðjubær. Sveitarfélag sem einkennist af einhverri blöndu af þröngsýni og hræðslu við breytingar. Hálfgerður hreppur þar sem mikilla umbóta er þörf. Þetta sveitarfélag er Akranes!
Það er einkennandi fyrir Akranes hversu mikið þeir leggja upp úr stóriðju, merkileg tímaskekkja á dögum upplýsinga og tækni. Skagamenn hafa lagt sig alla fram við að laða til sín eiturspúandi verksmiðjur, þá sögu má rekja allt aftur til 1958 þegar Sementsverksmiðja Ríkisins tók þar til starfa. Framsýni þeirra var þá svo mikil að verksmiðjan var staðsett á besta stað í bænum, miðbænum. Var þetta gert með það að leiðarljósi að allir starfsmenn verksmiðjunar gætu gengið heim í mat og kaffi. Einnig til að aðrir íbúar staðarins þyrftu ekki klukku til að vita hvenær klukkan yrði 1200, sakir þess að stórum lúðri var komið fyrir í verksmiðjunni sem blés sem óður væri þegar menn ættu að fara í mat. Þetta eru að vísu eilítið umhverfisvæn sjónarmið, fólk þarf til dæmis ekki bíla og það hreyfir sig. En hvaða heilvita manni dettur í hug að setja verksmiðju inn í miðjan bæ?
Síðan þá hafa Skagamenn bætt heldur betur á sig í stóriðjunum, núna "eiga þeir" 1 álver og 1 járnblendiverksmiðju. Að vísu sáu þeir aðeins að sér og létu setja þær niður þannig að þeir þyrftu ekki að horfa á þær allan daginn. Þess vegna var þeim valin staður bak við Akrafjallið, meira að segja í öðrum hreppi. Svo mikil var skömmin. Æ síðan hafa þeir viljað sölsa undir sig þennan hrepp, sem er vel. En það hefði verðið réttara að gera það áður!
Þessari stóriðjuhyggju og molbúahætti fagna erlendir auðmenn, þeir eiga jú verksmiðjunar. Það datt náttúrulega engum almúgamanni það í hug að eiga slíkt, ekki á Skaganum. Auðmenn þessir sjá þarna tækifæri í ódýru vinnuafli, svo gott sem gefins orku og lágum aðstöðugjöldum. Það eina sem þarf að gera er að stinga dúsu upp í ráðamenn bæjarfélagsins/hreppsins, til dæmis að velja þá í valdalausar stöður innan fyrirtækjanna nú eða í stjórnir orkufyrirtækjanna.
Til að bæta gráu ofan á svart, þá kom upp sú umræða fyrir nokkrum misserum síðan, að leggja niður Sementsverksmiðjuna. Með því hefði verið hægt að breyta ásýnd þessa annars verksmiðjuvædda bæjar. Risu þá þessir sömu ráðamenn upp á afturlappirnar og sögðu það mikið óráð. Það væri svo mikið í húfi! Þar með misstu þeir að gullnu tækifæri til að snúa blaðinu við, bæta ráð sitt og byggja upp betri bæ. Bæ sem myndi laða til sín ungt fólk, fólk með menntun, fólk með peninga og líka fyrirtæki, fyrir fólk!
Ég mun halda þessum sveitarfélagarannsóknum mínum áfram næstu daga. Ég veit líka að allir Ríkir geta tekið undir hvert einasta orð sem ég hef hér skrifað. Látið í ykkur heyra félagar, þeytið lúðrana.
:: Gmaríus miðvikudagur, október 27, 2004 [+] ::
...
|
|
[::..Þóknanlegt..::]

Danskir teiknarar!

Jón Baldvin

Max Headroom

Seona Dancing

Türkmenbashy


STÓRVAL
[::.Tvífarinn.::]

Mugi jón Hafstein-son

William H. Macy
Hauxon á MSN
|