| Vikulistinn (halogen) |
| - - - - - - - - - - |
|
| Vikulistinn (gmarius) |
| - - - - - - - - - - |
|
| Vikulistinn (hauxon) |
| - - - - - - - - - - |
|
| Vikulistinn (kristallur) |
| - - - - - - - - - - |
 |
| Vikulistinn (Valgarduz) |
| - - - - - - - - - - |
| [::..Eldra stuff..::] | |
|
|
:: miðvikudagur, nóvember 03, 2004 ::
Dumbungurinn úti núna er táknrænn fyrir það svarta óveðursský sem þjóð rednekkana virðist ætla að kjósa yfir heimsbyggðina. Vanþekking, fordómar, ofsatrú, sérhagsmunahyggja eru einkennisorð roðhnakkanna sem nú virðast hafa gefið heimskasta og grimmasta forseta bandaríkjanna áframhaldandi og aukin völd. Sjálfur sagði Runninn fyrir kosningar að hann teldi að þær yrðu mælistika á samþykki þjóðarinnar á stríðsrekstrinum í mið-austurlöndum. Má því telja að hann meti sem svo að stríðsrekstur sé það sem gerir kjósendur ánægða og því ástæða til að óttast að hann ráðist inn í Norður-Kóreu eða Kúbu. Lykilorðið er ÓTTI eins og Moore hefur réttilega bent á í myndum sínum. Við vitum að óttinn og óvissan heldur olíuverði uppi, og þannig malar Bush fjölskyldan gull á meðan. Hann sýndi það sem fylkisstjóri að hann metur mannslíf ekki mikils og þessi fjöldamorðingi heldur áfram að myrða fólk næstu 4 ár.
Það er svo sérlega fyndið að hugsa til þess að til eru íslendingar sem eru ánægðir með niðurstöðuna því að þá verða engar tafir á því að niðurstaða komist í "Varnar-"málin, það sé eiginlega best fyrir Suðurnesin. Það öfugsnúna við þetta er að á meðan sveitalubbinn er við völd í USA er nánast öruggt að hann mun hafa full not fyrir morðtólin sín annarsstaðar en á Íslandi. Í stað þess að bjarga sjómönnum úr lífsháska verða þyrlur og flugvélar hersins verða færðar þangað sem þær þykja koma að betri notum (þ.e. taka líf). Staðan er nú bara þannig að við íslendingar höfum ekki haft þörf fyrir varnir undanfarna áratugi. Í þeim átökum sem við íslendingar höfum lent í (þorskastríðin) hefur varnarliðið ekki komið að neinum notum, og ekki er útlit fyrir að við íslendingar lendum í harðari deilum en það. Það er því spurning hvort við íslendingar eigum ekki að þakka fyrir Marshall-aðstoðina og biðja þá um að fara. Ég sé enga haldbæra ástæðu fyrir því að halda sérþjálfaðri sveit morðingja hér jafnvel þó við fáum umbun fyrir. Ríkisstjórnin ætti að snúa sér að því að byggja upp atvinnulífið á Suðurnesjum með það í huga að starfsemi hersins fari minnkandi. Þá er ég ekki að meina ryksópunarstörf í eiturspúandi verksmiðjum erlendra auðhringja. Hvers vegna ekki að nota svæðið fyrir starfsemi sem gagnast af staðsetningu landsins milli álfanna? T.d. með því að auðvelda alþjólegum tæknifyrirtækjum að starfa hér líkt og írar hafa gert. Er ekki til einhver orkufrekur iðnaður sem byggir ekki á frumvinnslu? Eitthvað sem færir okkur frá iðnbyltingunni sem núverandi ríkisstjórn er að innleiða 150 árum á eftir öðrum þjóðum og nær tæknibyltingunni sem er víðast hvar annarsstaðar í gangi.
Svo er það spurningin! Ætla Ríkir að grípa til aðgerða? Hvað væri hægt að nota svæðið á Miðnesheiði undir eftir að búið er að svæla kakkalakkana úr landinu? Ég sé strax fyrir mér að tölvumiðstöð Ríkra gæti verið í sprengjuheldu byggingunni á Vellinum. Flugskýlin gætu orðið kvikmyndaver, tónleikahús, eða aðstaða fyrir flugskoðanir sem væri ef til vill hægt að ná hingað í auknu mæli. Það versta við þetta allt saman er að bölvað ofsatrúar- og ofstækisfólkið er á móti fóstureyðingum og getnaðarvörnum þannig að þeim fjölgar ótæpilega og von okkar um breytingar á næstu áratugum því litlar.
Eina von heimsbyggðarinnar er Ríkir hf.! Á næsta aðalfundi verður björgun heimsins efst á dagskrá. Á eftir tónlistargetrauninni, viskýdrykkjunni og átinu.
Urrrr arra bítann uurrrrvofff!
:: HauXon miðvikudagur, nóvember 03, 2004 [+] ::
...
|
|
[::..Þóknanlegt..::]

Danskir teiknarar!

Jón Baldvin

Max Headroom

Seona Dancing

Türkmenbashy


STÓRVAL
[::.Tvífarinn.::]

Mugi jón Hafstein-son

William H. Macy
Hauxon á MSN
|