| Vikulistinn (halogen) |
| - - - - - - - - - - |
|
| Vikulistinn (gmarius) |
| - - - - - - - - - - |
|
| Vikulistinn (hauxon) |
| - - - - - - - - - - |
|
| Vikulistinn (kristallur) |
| - - - - - - - - - - |
 |
| Vikulistinn (Valgarduz) |
| - - - - - - - - - - |
| [::..Eldra stuff..::] | |
|
|
:: laugardagur, nóvember 20, 2004 ::
Hér er smá gleðimoli fyrir þá sem þjást af depurð, stressi, kvíða og fátækt. Auðvitað enginn okkar Ríkra, en við verðum að hugsa um lýðinn.
QueenJapan.mp3
Jæja.. læri læri læri.....
:: HauXon laugardagur, nóvember 20, 2004 [+] ::
...
|
:: fimmtudagur, nóvember 18, 2004 ::
Tad hefur ekki farid framhja landslyd ad Valgardus hefur sagt skilid vid haekjuflokkinn. Tad er mikid fagnadarefni fyrir alla enda um yfirvegada og vandada akvordun hans ad raeda. Hins vegar var eg ad skoda kommentin her ad nedan og rakst ta a eitt sem vakti ekki minni athygli mina. Ad visu er ekki haegt ad kanna uppruna tessa kommnets en i tvi matti lesa ad tru Kristalls a Samsuduna er eitthvad ad dvina. Tetta hljomar sem ligasaga i eyrum manna en er samt engu ad sidur ritad tarna. Einnig leggur hann til hid eina retta i stodunni, tad er ad opinberast fjoldanum i formi stjornamalaflokks! Med tvi myndu Rikir ad minnsta kosti na tvennu fram, ad solsa undir sig aukin vold og ad geta stundad lydskrum a opinberum vettvangi.
Tek eg undir ord hans og hvet menn til ad hugleida tetta, O-listinn er tad sem koma skal!
Ps. Eg vil nota taekifaerid til ad oska kennruum landsins til hamingju med "nyja" samninginn. Nu er bara spurning hvort sveitarfelogin felli hann ekki eftir hvatningu Einars Odds!
:: Gmaríus fimmtudagur, nóvember 18, 2004 [+] ::
...
|
Mark E. Smith fór á kostum í gær.....sannur rokkari!!!
:: Halogen fimmtudagur, nóvember 18, 2004 [+] ::
...
|
:: miðvikudagur, nóvember 17, 2004 ::
Saelir felagar.
Langar ad nota taekifaerid til ad fanga yfirvegadri akvordun Valgards. Tarna er um mjog rikmannlega akvordun ad raeda.
Um kjor kennara a Kubu er tad helst ad segja ad tau eru alveg frabaer a islenskan maelikvarda. Laun teirra med ollum auka sporslum svo sem eins og launapottum og yfirvinnu eru um 20 USD a manudi, tad gera um 1340 kronur. Eins og kennarar vita ta er tad mun betra en teir fa upp a isakalda landi.
Nu er tad bara spurningin hvor Rikra var ennta Rikari um daginn tegar vid hrifsudum til okkar stora lottovinningin.
PS. Skal koma med storan vindil handa ter felagi. Veit ekki hvort tad borgar sig ad taka einn fyrir Hauxon, hann verdur alltaf svo graenn tegar hann reykir ta.
Adios,
Gmarius
A NATO fundi i Brussel
:: Gmaríus miðvikudagur, nóvember 17, 2004 [+] ::
...
|
:: þriðjudagur, nóvember 16, 2004 ::
GMar!! Hvernig væri nú að koma með eins og einn góðan vindil handa stríðshrjáðum kennara þegar þú kemur heim frá Kastró. Hvernig hafa kennarar það annars á Kúbu? Varla verra en hér!
:: Valgarduz þriðjudagur, nóvember 16, 2004 [+] ::
...
|
:: mánudagur, nóvember 15, 2004 ::
Sælir félagar
Ég vona að mér fyrirgefist þótt undanfarið hafi fátt frá mér heyrst eða af mér spurst. Satt að segja hefur andlegt ástand mitt verið með því móti, að mér hefur reynst ómögulegt að setjast til skrifta og taka þátt í umræðum hér á blogginu. Ég held nefnilega að almennt geri fólk sér ekki grein fyrir alvarleika kennaradeilunnar og hversu djúpt hún raunverulega ristir hjá fólki. Þess vegna ákvað ég að deila hér með ykkur bréfi sem ég skrifaði í dag til Dagnýjar Jónsdóttur þingmanns Framsóknarflokksins og tek fram að ekkert sem þarna stendur eru ýkjur eða oftúlkanir, ekkert skrifað í "geðshræringu" eða "í hita leiksins". Þetta eru allt vandlega yfirveguð orð og understatements frekar en hitt:
Komdu sæl Dagný
Ekki veit ég hvort þú munir eftir mér, en ég heiti Valgarður Lyngdal Jónsson og síðast þegar við hittumst var ég aðstoðarskólastjóri í grunnskólanum á Flúðum og formaður Félags ungra Framsóknarmanna í Árnessýslu. Nú er ég reyndar fluttur úr Árnessýslunni upp á Akranes. Ástæða þess að ég skrifa þér er sú að ég var mjög ánægður þegar þú varst kosin á þing og að mörgu leyti fannst mér þú vera "minn þingmaður" þótt þú kæmir reyndar úr allt öðru kjördæmi. Hér var komin ung og kraftmikil manneskja með áhuga á málefnum landsbyggðarinnar, ungs fjölskyldufólks og síðast en ekki síst með mikinn áhuga á menntamálum. Bar ég miklar vonir til þín sem þingmanns sem myndi vinna að framgangi þeirra mála sem mér væru hjartfólgin.
Í dag sagði ég mig úr Framsóknarflokknum. Ástæðan er einföld; ég er kennari. Á sínum tíma valdi ég mér þetta starf af hugsjón; vegna þess að ég vildi vinna að því að hlúa að hinum raunverulegu verðmætum þessarar þjóðar. Ég vissi reyndar að kennarar voru ekkert gríðarlega vel launaðir en ég taldi mig sjá ýmis merki þess bæði í almennri umræðu og á þróuninni í nágrannalöndunum að virðingin fyrir þessu starfi og verðmætamat fólks og stjórnvalda gagnvart menntun væru á hraðri uppleið. Ég vissi það alveg að ég myndi aldrei maka krókinn í þessu starfi; aldrei lifa neinu flottheitalífi; en ef ég gæti lifað sómasamlegu lífi og boðið fjölskyldu minni upp á sæmilegt heimili og þokkalegt öryggi þá væri ég tilbúinn til að sinna þessu starfi af þeirri hugsjón sem ég bjó yfir.
Það er skemmst frá því að segja að á síðustu vikum hafa hugsjónir mínar beðið algert skipbrot. Fyrir skömmu skrifaðir þú eftirfarandi á heimasíðu þinni:
"Afleiðingar lagasetningar geta orðið mjög slæmar. Kennarar verða óánægðir, segja jafnvel upp störfum og við viljum ekki missa góða kennara. Mórallinn verður ömurlegur og bitnar án efa á nemendum. Allir kostir eru vondir og maður verður jafnvel að búa sig undir næstu daga að taka erfiðar ákvarðanir í þessu máli."
Ég verð að segja þér að þessi orð þín lýsa algeru vanmati á afleiðingum þess gjörnings sem þú hefur síðustu daga tekið þátt í og reynt að réttlæta. Þessi lýsing þín nær engan veginn að orða alvarleika þeirra aðstæðna sem ég og kollegar mínir upplifum þessa dagana. Ég get aðeins talað fyrir sjálfan mig, en veit þó að langflestir kennarar hugsa á sama hátt og ég þegar ég segi að lífsstarf mitt er að engu orðið, meðal annars fyrir þinn atbeina. Þriggja ára háskólanám og átta ára hugsjónastarf hafa verið troðin niður í svaðið með ofbeldi og lítilsvirðingu. Og hér sit ég, 32ja ára háskólamenntaður sérfræðingur sem að öllu jöfnu væri meira en reiðubúinn til að sinna mínu ábyrgðarmikla og álagssama sérfræðistarfi, og neyðist til að endurmeta líf mitt algerlega frá grunni. Þetta ristir miklu dýpra en einhver "óánægja" eða "ömurlegur mórall". Mér finnst ég hafi verið sendur aftur á byrjunarreit í tafli lífsins. Mér finnst ég standa á ný í sömu sporum og ég stóð í tvítugur og reyni að ákveða hvað ég ætli að verða þegar ég verð stór.
Eitt er víst; ekki verð ég framsóknarmaður.
Með kærri kveðju
Valgarður Lyngdal Jónsson
kennari
:: Valgarduz mánudagur, nóvember 15, 2004 [+] ::
...
|
:: fimmtudagur, nóvember 11, 2004 ::
Ja enn og aftur sannast tad ad mattur Rikra er mikill. Gullkindinn er Rikra. Ad sjalfsogdu gerdi Halogen hid eina retta, hann hirti fe af lydnum vid gerd tessa urvals sjonvarpsefnis, an tess ad vera nokkrun timan bendladur beint vid tattinn. Tad er audvita bara snilld. Gullrollann er okkar!!!!
Ja og tad upplysist her med ad uppahalds nagranni Rikra verdur ad sjalfsogdu gefinn ut i actual size fyrir jolin. Hun mun verda oska jolagjof fedra og einbua. Nu geta karlarnir loksins uppfyllt drauma sina um 3some med einhverri Barbie doll og konunni. Potttett Gullrolla a naesta ari.
Nu tegar Arafat er allur og er tessa stundina einhversstadar yfir Italiu a leidinni i jardaforina sina. Ta held eg afram undirbuningi minum fyrir for mina a fund med fjelaga Castro. Hann nefnilega fekk ta flugu i hofudid um daginn (sama fluga og olli falli hans ad lokinni raedunni fraegu) ad banna U$D a Kubu og taka tess i stad upp Evrur. Tetta er bara eitthvad sem snillingum dettur i hug, tar sem Kubanir hafa hingad til ekki viljad sja Evrurnar.
Eg mun flytja honum kvedjur Rikra um leid og eg sendi ykkar skal, Mohido skal!
Adios amigos.
:: Gmaríus fimmtudagur, nóvember 11, 2004 [+] ::
...
|
Nú er ástæða til að fagna því nú hafa Ríkir loksins eignast verðlaunastyttu fyrir sjónvarpsefni. Þátturinn Landsins snjallasti hlaut hina eftir sóttu Gullkind Tvíhöfða sem versti sjónvarpsþátturinn. Í öðrum flokkum mátti meðal annars sjá stórverkin Opinberun Hannesar og Pikköpplínur með Kalla Lú, ekki slæmur félagsskapur það! Húrra! Húrra! Húrra!
:: HauXon fimmtudagur, nóvember 11, 2004 [+] ::
...
|
:: miðvikudagur, nóvember 10, 2004 ::
Detta nú af mér allar dauðar flær! Uppáhaldsnágranninn hanns Gmaríuzar ætlar ekki bara að gefa út barnaplötu fyrir jól heldur líka dúkku!! Djís! Það er spurning hvort að þetta sé lógísk þróun út frá barnaböllunum á Nasa og nálgun við markhópinn eða hvort þetta sé talandi dæmi um mikilmennskubrjálæði kókaínsfíkilsins? Ég á bara ekki til orð! Ég bíð bara eftir Jónsi leiki í leikinni He-Man mynd "Skelector forms a band" sem komi út með íslensku tali. Markaðssetningin yrði einföld, Skelector brúðurnar eru þegar til. Jah sei sei. .... ætli Birgittu dúkkurnar fáist í fullri stærð?.. bara að hugsa um einhlauparana...
:: HauXon miðvikudagur, nóvember 10, 2004 [+] ::
...
|
:: mánudagur, nóvember 08, 2004 ::
Félagar!
Veruleikafirring Samfylkingarmanna er algjör. Að sjá Margréti Frímans í sjónvarpinu að lýsa því yfir að "olíumálið" sé sigur vinstrimanna er náttúrulega algjör brandari. Fór það framhjá henni að borgarstjóri - fulltrúi vinstrimanna, tók þátt í því að hösla borgina og að borgin sé að hugleiða bótakröfu á hendur olíufélögunum vegna svika sem borgarstjóri tók sjálfur þátt í.
Burt séð frá því hvort borgarstjóri hafi gerst sekur um lögbrot eður ei, þá er hann greinilega algjör gunga, eða eins og hann segir sjálfur, þá skorti honum kjark til að standa upp og berja í borðið. Bara það gerir hann óhæfan í starf borgarstjóra. Samfylkingarfólk keppist við að koma í fjölmiðla og segja hvað hann sé góður kall og eigi annað tækifæri skilið. Hvaða eindæmis bull er það! Að vera næs gæi er enginn mælikvarði. Eini mælikvarðinn er: Hvað hefurðu gert og hvað geturðu gert. Nú vitum við öll hvað hann gerði, eða réttara sagt gerði ekki.
Ef honum verður ekki fórnað þá mun ég aldrei kjósa Samfylkinguna aftur.
:: Halogen mánudagur, nóvember 08, 2004 [+] ::
...
|
:: sunnudagur, nóvember 07, 2004 ::
Kæru aðdáendur! Nú hafa Ríkir hf. ákveðið að leyfa ykkur að skrifa tilsvör við hugleiðingar okkar. Ekki er víst að við nennum að lesa hraflið ykkar en þið getið í það minnsta létt af ykkur eftir að hafa lesið sannleikann. Þögn er líka sama og samþykki og því lítum við svo á að orð okkar séu sjálfkrafa lög ef það eru 0 tilsvör. Ef enginn þessara þúsunda aðdáenda þorir að koma upp orði næsta mánuðinn tökum við málsvarsréttinn til baka. Og munið að sannleikurinn getur oft verið erfiður að meðtaka og má því búast við því að þeir sem skrifa heimskuleg tilsvör lendi í því að verða afhjúpaðir heimsku sinni opinberlega.
:: HauXon sunnudagur, nóvember 07, 2004 [+] ::
...
|
:: föstudagur, nóvember 05, 2004 ::
Það er náttúrulega spurning hvort það ætti að leyfa lýðnum að tjá sína ómarktæku skoðun.
Það þarf bara að argumenta það og greiða atkvæði í framhaldinu.
:: Halogen föstudagur, nóvember 05, 2004 [+] ::
...
|
:: fimmtudagur, nóvember 04, 2004 ::
Ríkir eru nú ekkert að tala af sér hérna á blogginu. Spurning hvort við ættum að leyfa "comments" fyrir aðdáendur okkar fyrst við erum svona gríðarlega íhuglir.
:: HauXon fimmtudagur, nóvember 04, 2004 [+] ::
...
|
:: miðvikudagur, nóvember 03, 2004 ::
Dumbungurinn úti núna er táknrænn fyrir það svarta óveðursský sem þjóð rednekkana virðist ætla að kjósa yfir heimsbyggðina. Vanþekking, fordómar, ofsatrú, sérhagsmunahyggja eru einkennisorð roðhnakkanna sem nú virðast hafa gefið heimskasta og grimmasta forseta bandaríkjanna áframhaldandi og aukin völd. Sjálfur sagði Runninn fyrir kosningar að hann teldi að þær yrðu mælistika á samþykki þjóðarinnar á stríðsrekstrinum í mið-austurlöndum. Má því telja að hann meti sem svo að stríðsrekstur sé það sem gerir kjósendur ánægða og því ástæða til að óttast að hann ráðist inn í Norður-Kóreu eða Kúbu. Lykilorðið er ÓTTI eins og Moore hefur réttilega bent á í myndum sínum. Við vitum að óttinn og óvissan heldur olíuverði uppi, og þannig malar Bush fjölskyldan gull á meðan. Hann sýndi það sem fylkisstjóri að hann metur mannslíf ekki mikils og þessi fjöldamorðingi heldur áfram að myrða fólk næstu 4 ár.
Það er svo sérlega fyndið að hugsa til þess að til eru íslendingar sem eru ánægðir með niðurstöðuna því að þá verða engar tafir á því að niðurstaða komist í "Varnar-"málin, það sé eiginlega best fyrir Suðurnesin. Það öfugsnúna við þetta er að á meðan sveitalubbinn er við völd í USA er nánast öruggt að hann mun hafa full not fyrir morðtólin sín annarsstaðar en á Íslandi. Í stað þess að bjarga sjómönnum úr lífsháska verða þyrlur og flugvélar hersins verða færðar þangað sem þær þykja koma að betri notum (þ.e. taka líf). Staðan er nú bara þannig að við íslendingar höfum ekki haft þörf fyrir varnir undanfarna áratugi. Í þeim átökum sem við íslendingar höfum lent í (þorskastríðin) hefur varnarliðið ekki komið að neinum notum, og ekki er útlit fyrir að við íslendingar lendum í harðari deilum en það. Það er því spurning hvort við íslendingar eigum ekki að þakka fyrir Marshall-aðstoðina og biðja þá um að fara. Ég sé enga haldbæra ástæðu fyrir því að halda sérþjálfaðri sveit morðingja hér jafnvel þó við fáum umbun fyrir. Ríkisstjórnin ætti að snúa sér að því að byggja upp atvinnulífið á Suðurnesjum með það í huga að starfsemi hersins fari minnkandi. Þá er ég ekki að meina ryksópunarstörf í eiturspúandi verksmiðjum erlendra auðhringja. Hvers vegna ekki að nota svæðið fyrir starfsemi sem gagnast af staðsetningu landsins milli álfanna? T.d. með því að auðvelda alþjólegum tæknifyrirtækjum að starfa hér líkt og írar hafa gert. Er ekki til einhver orkufrekur iðnaður sem byggir ekki á frumvinnslu? Eitthvað sem færir okkur frá iðnbyltingunni sem núverandi ríkisstjórn er að innleiða 150 árum á eftir öðrum þjóðum og nær tæknibyltingunni sem er víðast hvar annarsstaðar í gangi.
Svo er það spurningin! Ætla Ríkir að grípa til aðgerða? Hvað væri hægt að nota svæðið á Miðnesheiði undir eftir að búið er að svæla kakkalakkana úr landinu? Ég sé strax fyrir mér að tölvumiðstöð Ríkra gæti verið í sprengjuheldu byggingunni á Vellinum. Flugskýlin gætu orðið kvikmyndaver, tónleikahús, eða aðstaða fyrir flugskoðanir sem væri ef til vill hægt að ná hingað í auknu mæli. Það versta við þetta allt saman er að bölvað ofsatrúar- og ofstækisfólkið er á móti fóstureyðingum og getnaðarvörnum þannig að þeim fjölgar ótæpilega og von okkar um breytingar á næstu áratugum því litlar.
Eina von heimsbyggðarinnar er Ríkir hf.! Á næsta aðalfundi verður björgun heimsins efst á dagskrá. Á eftir tónlistargetrauninni, viskýdrykkjunni og átinu.
Urrrr arra bítann uurrrrvofff!
:: HauXon miðvikudagur, nóvember 03, 2004 [+] ::
...
|
|
[::..Þóknanlegt..::]

Danskir teiknarar!

Jón Baldvin

Max Headroom

Seona Dancing

Türkmenbashy


STÓRVAL
[::.Tvífarinn.::]

Mugi jón Hafstein-son

William H. Macy
Hauxon á MSN
|