:: welcome to Ríkir hf :: bloghome | Viltu vera memm? ::
Vikulistinn (halogen)
- - - - - - - - - -
Vikulistinn (gmarius)
- - - - - - - - - -
Vikulistinn (hauxon)
- - - - - - - - - -
Vikulistinn (kristallur)
- - - - - - - - - -
Vikulistinn (Valgarduz)
- - - - - - - - - -
[::..Eldra stuff..::]

  :: mánudagur, nóvember 08, 2004 ::

Félagar!
Veruleikafirring Samfylkingarmanna er algjör. Að sjá Margréti Frímans í sjónvarpinu að lýsa því yfir að "olíumálið" sé sigur vinstrimanna er náttúrulega algjör brandari. Fór það framhjá henni að borgarstjóri - fulltrúi vinstrimanna, tók þátt í því að hösla borgina og að borgin sé að hugleiða bótakröfu á hendur olíufélögunum vegna svika sem borgarstjóri tók sjálfur þátt í.
Burt séð frá því hvort borgarstjóri hafi gerst sekur um lögbrot eður ei, þá er hann greinilega algjör gunga, eða eins og hann segir sjálfur, þá skorti honum kjark til að standa upp og berja í borðið. Bara það gerir hann óhæfan í starf borgarstjóra. Samfylkingarfólk keppist við að koma í fjölmiðla og segja hvað hann sé góður kall og eigi annað tækifæri skilið. Hvaða eindæmis bull er það! Að vera næs gæi er enginn mælikvarði. Eini mælikvarðinn er: Hvað hefurðu gert og hvað geturðu gert. Nú vitum við öll hvað hann gerði, eða réttara sagt gerði ekki.

Ef honum verður ekki fórnað þá mun ég aldrei kjósa Samfylkinguna aftur.

:: Halogen mánudagur, nóvember 08, 2004 [+] ::
...
|

[::..Þóknanlegt..::]



Danskir teiknarar!



Jón Baldvin



Max Headroom



Seona Dancing



Türkmenbashy






STÓRVAL


[::.Tvífarinn.::]


Mugi jón Hafstein-son


William H. Macy
Hauxon á MSN

This page is powered by Blogger. Isn't yours?