| Vikulistinn (halogen) |
| - - - - - - - - - - |
|
| Vikulistinn (gmarius) |
| - - - - - - - - - - |
|
| Vikulistinn (hauxon) |
| - - - - - - - - - - |
|
| Vikulistinn (kristallur) |
| - - - - - - - - - - |
 |
| Vikulistinn (Valgarduz) |
| - - - - - - - - - - |
| [::..Eldra stuff..::] | |
|
|
:: mánudagur, nóvember 15, 2004 ::
Sælir félagar
Ég vona að mér fyrirgefist þótt undanfarið hafi fátt frá mér heyrst eða af mér spurst. Satt að segja hefur andlegt ástand mitt verið með því móti, að mér hefur reynst ómögulegt að setjast til skrifta og taka þátt í umræðum hér á blogginu. Ég held nefnilega að almennt geri fólk sér ekki grein fyrir alvarleika kennaradeilunnar og hversu djúpt hún raunverulega ristir hjá fólki. Þess vegna ákvað ég að deila hér með ykkur bréfi sem ég skrifaði í dag til Dagnýjar Jónsdóttur þingmanns Framsóknarflokksins og tek fram að ekkert sem þarna stendur eru ýkjur eða oftúlkanir, ekkert skrifað í "geðshræringu" eða "í hita leiksins". Þetta eru allt vandlega yfirveguð orð og understatements frekar en hitt:
Komdu sæl Dagný
Ekki veit ég hvort þú munir eftir mér, en ég heiti Valgarður Lyngdal Jónsson og síðast þegar við hittumst var ég aðstoðarskólastjóri í grunnskólanum á Flúðum og formaður Félags ungra Framsóknarmanna í Árnessýslu. Nú er ég reyndar fluttur úr Árnessýslunni upp á Akranes. Ástæða þess að ég skrifa þér er sú að ég var mjög ánægður þegar þú varst kosin á þing og að mörgu leyti fannst mér þú vera "minn þingmaður" þótt þú kæmir reyndar úr allt öðru kjördæmi. Hér var komin ung og kraftmikil manneskja með áhuga á málefnum landsbyggðarinnar, ungs fjölskyldufólks og síðast en ekki síst með mikinn áhuga á menntamálum. Bar ég miklar vonir til þín sem þingmanns sem myndi vinna að framgangi þeirra mála sem mér væru hjartfólgin.
Í dag sagði ég mig úr Framsóknarflokknum. Ástæðan er einföld; ég er kennari. Á sínum tíma valdi ég mér þetta starf af hugsjón; vegna þess að ég vildi vinna að því að hlúa að hinum raunverulegu verðmætum þessarar þjóðar. Ég vissi reyndar að kennarar voru ekkert gríðarlega vel launaðir en ég taldi mig sjá ýmis merki þess bæði í almennri umræðu og á þróuninni í nágrannalöndunum að virðingin fyrir þessu starfi og verðmætamat fólks og stjórnvalda gagnvart menntun væru á hraðri uppleið. Ég vissi það alveg að ég myndi aldrei maka krókinn í þessu starfi; aldrei lifa neinu flottheitalífi; en ef ég gæti lifað sómasamlegu lífi og boðið fjölskyldu minni upp á sæmilegt heimili og þokkalegt öryggi þá væri ég tilbúinn til að sinna þessu starfi af þeirri hugsjón sem ég bjó yfir.
Það er skemmst frá því að segja að á síðustu vikum hafa hugsjónir mínar beðið algert skipbrot. Fyrir skömmu skrifaðir þú eftirfarandi á heimasíðu þinni:
"Afleiðingar lagasetningar geta orðið mjög slæmar. Kennarar verða óánægðir, segja jafnvel upp störfum og við viljum ekki missa góða kennara. Mórallinn verður ömurlegur og bitnar án efa á nemendum. Allir kostir eru vondir og maður verður jafnvel að búa sig undir næstu daga að taka erfiðar ákvarðanir í þessu máli."
Ég verð að segja þér að þessi orð þín lýsa algeru vanmati á afleiðingum þess gjörnings sem þú hefur síðustu daga tekið þátt í og reynt að réttlæta. Þessi lýsing þín nær engan veginn að orða alvarleika þeirra aðstæðna sem ég og kollegar mínir upplifum þessa dagana. Ég get aðeins talað fyrir sjálfan mig, en veit þó að langflestir kennarar hugsa á sama hátt og ég þegar ég segi að lífsstarf mitt er að engu orðið, meðal annars fyrir þinn atbeina. Þriggja ára háskólanám og átta ára hugsjónastarf hafa verið troðin niður í svaðið með ofbeldi og lítilsvirðingu. Og hér sit ég, 32ja ára háskólamenntaður sérfræðingur sem að öllu jöfnu væri meira en reiðubúinn til að sinna mínu ábyrgðarmikla og álagssama sérfræðistarfi, og neyðist til að endurmeta líf mitt algerlega frá grunni. Þetta ristir miklu dýpra en einhver "óánægja" eða "ömurlegur mórall". Mér finnst ég hafi verið sendur aftur á byrjunarreit í tafli lífsins. Mér finnst ég standa á ný í sömu sporum og ég stóð í tvítugur og reyni að ákveða hvað ég ætli að verða þegar ég verð stór.
Eitt er víst; ekki verð ég framsóknarmaður.
Með kærri kveðju
Valgarður Lyngdal Jónsson
kennari
:: Valgarduz mánudagur, nóvember 15, 2004 [+] ::
...
|
|
[::..Þóknanlegt..::]

Danskir teiknarar!

Jón Baldvin

Max Headroom

Seona Dancing

Türkmenbashy


STÓRVAL
[::.Tvífarinn.::]

Mugi jón Hafstein-son

William H. Macy
Hauxon á MSN
|