:: welcome to Ríkir hf :: bloghome | Viltu vera memm? ::
Vikulistinn (halogen)
- - - - - - - - - -
Vikulistinn (gmarius)
- - - - - - - - - -
Vikulistinn (hauxon)
- - - - - - - - - -
Vikulistinn (kristallur)
- - - - - - - - - -
Vikulistinn (Valgarduz)
- - - - - - - - - -
[::..Eldra stuff..::]

  :: sunnudagur, desember 26, 2004 ::

Eins og ég tók áður fram í jólakortum til ykkar flestra vil ég senda gleðikveðju til allra Ríkra. Ástæða þess að ég skrifa er að það er greinilegt að áhrif Ríkra eru ótrúleg og bæjar- og borgarstjórnarmenn víða um land fylgjast með síðunni okkar í von um að finna lausnir á öllum mögulegum vandamálum.

Í gær var ég í jólaboði í verksmiðjubæ úti á landi þar sem byggð hafa verið afskaplega ljót hús undanfarin ár. Mörg eru klædd áli og nánast gluggalaus og lóðastærð frekar smáleg. Þar eru raðhús sem minna á vinnuskúra amerízka hersins í Thule á Grænlandi. Auk þessarar viðbjóðslegu raðhúsalengju er fjöldinn allur af öðrum húsum sem eru byggð af álíka smekkvísi og hefur að mati margra orðið lýti á bænum en í stíl við verksmiðjublæinn sem lúrir yfir bæjarfélaginu.

Nú hafa bæjarstjórnaryfirvöld staðarins lesið bloggið okkar og tekið sönsum. Nú þurfa þeir sem ætla að byggja í þorpinu að framvísa teikningum og það þarf að samþykkja þær. Auðvitað voru íbúarnir undrandi á þessu háttarlagi. Ég benti þeim hins vegar á að brýn þörf væri á þessu og ég væri hissa að ekki sé búið að grípa til róttækari aðgerða til að stöðva þessa plágu. Ef ekki hefði verið gripið til þessara aðgerða mætta búast við að sjónmengunin af húsunum yrði jafnvel meiri en sú mengun sem kemur af eitrinu er verksmiðjurnar spúa frá sér. Vonandi sjá bæjarstjórnarmenn að sér í fleiri málum. Batnandi mönnum er bezt að lifa!

:: HauXon sunnudagur, desember 26, 2004 [+] ::
...
|
Jæja þá eru jólin að mestu yfirstaðinn.

Búdda Ríkra hefur þykknað allverulega um þessi jól. Íslenskur almúginn eyddi um 20% meira en fyrir síðustu jól. Því fögnum við um leið og við íhugum að hækka yfirdráttarvexti núna eftir jólin.

Ríkir fengu allir eitthvað fallegt, sjálfur fékk ég meðal annars kerti en engin spil. Ég svo sem hef aldrei fattað þetta með kertin, núna árið 2004 þegar rafljós eru í öllum húsum. Halogenið gat ekki setið á sér, hann bara varð að fá Ríkrasjónvarpið sitt fyrir jólin þó svo að vissi að Hauxon myndi gefa honum eitt slíkt í jólagjöf. Þetta setti Hauxon út af laginu í svona 1 nanósek, á meðan að hann ákvað að gefa Halogen bara Kitchen Aid eða buxnadragt. Að vísu átta ég mig ekki á þessu með Kitchen Aid, afhverju að gefa Halogen Kitchen Aid?

Annars þá hefur maður verið á fullu að fylla lagerinn af rommi og kúbönskum vindlum fyrir þorrablótið. Ég reikna með að Kristallur hafi farið út og skotið sér sel nú á haustmánuðum og sett hann í súr. Einnig að Vargarduz hafi tekið væna flís af feitum sauð og troðið honum í rolluvömb og einnig sett í súr.

Halogenið kemur svo með Kitchen Aid til ad hræra rjóman sem við berum á okkur fyrir pottfundinn.

Hauxon, tja hann, hmmm, hann kemur til með að púa alla vindlana svo að hann nái upp græna litnum senna kvölds.

Gleiðileg jól svona meðan ég man.

:: Gmaríus sunnudagur, desember 26, 2004 [+] ::
...
|
  :: laugardagur, desember 25, 2004 ::
Gleðileg jól!
Ágætu félagar. Sökum anna síðustu dagana fyrir jól þá sendi ég engin jólakort þetta árið. Þakka ég aftur á móti þeim sem sendu mér kort (sem voru allir æstráðendur nema Hauxon). Geri ég ráð fyrir að hann hafi hvort eð er ekki ætlað að senda mér kort heldur gjöf, en ekki fundið nógu dýra og fallega gjöf fyrir mig í tæka tíð. Fyrirgef ég Hauxsyni þetta og bíð spenntur eftir pakkanum!


:: Halogen laugardagur, desember 25, 2004 [+] ::
...
|
  :: þriðjudagur, desember 07, 2004 ::
Það ætti engin heilvita maður að svína á Ríkum.!

Það er greinilegt að orð Ríkra berast langt út fyrir þennan vef! Ég fór í dag á KFC og viti menn, sala á maísstönglum hefur líklega hrunið eftir að Kristallur kom upp um mikla maíssvindlið. Að minnsta kosti dró ég þessa ályktun þegar ég sá að KFC hefur neyðst til að setja maísinn á útsölu fyrir jólin! Núna kosta 4 stönglar aðeins 330 krónur. Ég keypti 2.

:: Gmaríus þriðjudagur, desember 07, 2004 [+] ::
...
|
  :: laugardagur, desember 04, 2004 ::
Úff. Fór í Kringluna í dag. Mikið ósköp er alltaf leiðinlegt að koma þangað, sérstaklega þegar að aðeins eru nokkrir dagar til jóla. Hávaðinn og áreitið er alveg óþolandi! Keyptum ekki neitt nema kaffi og sætabrauð. Skruppum síðan niður í Veiðihornið, Austurstræti. Þangað var nú betra að koma, kyrrð og friður :-) Legg til að við látum setja útgöngubann á almúgann frá klukkan 1200 til 2300, daganna 15 til og með 23 desember. Með því móti gætu Ríkir sinnt jólainnkaupum sínum í friði og ró. Möguleiki væri þó á að hleypa þeim út sem eru Ríkum þóknanlegir, svo að þeir gætu hitt á okkur á sama tíma.


:: Gmaríus laugardagur, desember 04, 2004 [+] ::
...
|
  :: föstudagur, desember 03, 2004 ::
Já brjálæðið magnast. Ríkir brálast! Ég er einmitt að brjálast af pestinni sem er búinn að vera að hrjá mig síðan ég kom aftur til landsins um síðustu helgi. Mig grunar að andstæðingar okkar hafi jafnvel eitrað fyrir mér, enda til mikils að vinna. En það þarf nú meira en einhverja smá pest til að lama starfsþrek Ríks. Mig líka grunar að útsendarar framsóknaríhaldsflokksins hafi líka náð að sýkja tölvur Ríkra að vírus sem hefur hindrað skrif þeirra á bloggið upp á síðkastið. Ekki ólíklegt að þeir hafi viljað ná sér niður á okkur! Sérstaklega Valgarduz, eftir að flokkurinn var tekinn af velþóknunarlista hans. En við munum launa þeim þetta þó síðar verði.


:: Gmaríus föstudagur, desember 03, 2004 [+] ::
...
|

[::..Þóknanlegt..::]



Danskir teiknarar!



Jón Baldvin



Max Headroom



Seona Dancing



Türkmenbashy






STÓRVAL


[::.Tvífarinn.::]


Mugi jón Hafstein-son


William H. Macy
Hauxon á MSN

This page is powered by Blogger. Isn't yours?