| Vikulistinn (halogen) |
| - - - - - - - - - - |
|
| Vikulistinn (gmarius) |
| - - - - - - - - - - |
|
| Vikulistinn (hauxon) |
| - - - - - - - - - - |
|
| Vikulistinn (kristallur) |
| - - - - - - - - - - |
 |
| Vikulistinn (Valgarduz) |
| - - - - - - - - - - |
| [::..Eldra stuff..::] | |
|
|
:: mánudagur, janúar 17, 2005 ::
Það er alveg merkilegt hversu kennarar eru viðkvæmir gagnvart athugasemdum um störf þeirra. Ég verð að lýsa yfir undrun minni hörundssæri Valgarduzar og framsóknízkri vörn hanns á kerfi sem hann er ekki sjálfur ábyrgur fyrir. Þetta má ekki ræða það, verð að standa með forustunni viðhorf virðist ótrúlega virkt í mörgum þjóðfélagshópum. Lang best er að berja niður alla umræðu svo að hörundssárir þurfi ekki ekki að svara fyrir sig eða verja gjörðir sínar. Það sem mig undrar mest er að Ríkur skuli falla í þennan flokk og hélt ég að úrsögn hanns úr Framsóknarflokknum hafi einmitt sannað svo væri ekki.
1. Grunnskólabörn eru ekki í háskóla. Það vita það allir sem hafa hvort sem er setið í skóla eða unnið á almennum vinnumarkaði að vinnulotur mega ekki vera of langar. Ég man varla eftir að hafa unnið nokkurnsstaðar án þess að það séu skipulagðar pásur með reglulegu millibili eða mönnum lagt til að líta upp frá vinnunni í stutta stund ca. á klukkutíma fresti. Það ætti því ekki að skipta máli hvort um er að ræða kennara eða barn, upplit er nauðsynlegt til að halda dampinum.
2. Ríkir útskrifuðust úr grunnskóla fyrir 16-17 árum. Ég get tekið undir það að skólastarf hefur án efa batnað á undanförnum árum sérstaklega hvað varðar að gera nemandann meiri þáttakanda í kennslunni. En það kemur á móti að aukinn fjöldi nemenda í bekk gerir það að verkum að kennarinn getur ekki sinnt öllum börnunum eins vel. Annað sem hefur versnað er agaleysið sem er að mestu leyti komið til vegna foreldranna en mikill fjöldi í hverjum bekk gerir kennaranum enn erfiðara að ráða við þetta.
3. Skólum er enn gert að starfa eftir stífum og úreltum viðmiðum Það hefur ekkert breyst að til þess að læra þarf barnið að halda athyglinni. Það hefur ekkert upp á sig að segja að þetta eða hitt sé úrelt ef það er ekkert á bak við það. Ég hef ekki séð neitt sem bendir til þess að nútíma börn haldi athyglinni eitthvað lengur en fyrir 30 eða 100 árum, nema síður sé.
4. Kennarar eru háskólamenntaðir sérfræðingar. Ég skil nú ekki þessa ótrúlegu viðkvæmni. Ég reikna með að þar sem ég hef enn ekki neina háskólagráðu í neinu þá ætti ég bara að þegja því ég hef ekki vit á neinu sem hægt er að mennta sig í á háskólasviði. Ég gæti kannski helst talað um hvernig hvernig maður beitir skóflu eða hvort að kaffið sé nógu gott í kaffistofunni í verksmiðjunni sem ég ætti að vera að vinna í. Það er auðvitað alveg rétt hjá þér við foreldrar höfum ekkert vit á uppeldi og ættum ekkert að vera að skipta okkur af því hvað er gert við börnin okkar þegar þau eru í skólanum. Auðvitað ekki! Það eru nokkur atriði sem valda því að kennarar þurfa að svara oftar fyrir störf sín en aðrir sérfræðingar. Í fyrsta lagi þá eru allir landsmenn viðskiptamenn ykkar. Í öðru lagi þá er það staðreynd að enn eru fjölmargir leiðbeinendur að störfum í skólunum og þó það virðist standa til bóta þá hefur kennsla hingað til ekki alltaf verið í höndum "sérfræðinga". Svo er það sú vörn er kennarar fara alltaf í ef eitthvað er minnst á störf þeirra. Ósjálfráð vörn er viðbrögð þess sem hefur eitthvað að fela eða eitthvað á samviskunni. Þegar menn þurfa svo að slá um sig með menntun sinni og væna aðra um heimsku eða fáfræði bendir það enn frekar á að eitthvað sé að.
Ég tel aftur á móti að félagi Valgarduz hafi tekið dýpra í árinni til þess að koma betur til skila hversu mikið vit hanns er á málunum og metið svo að væg röksemdafærsla myndi ekki hitta marks þegar Ríkir eru annarsvegar. Þó svo að grunnskólakerfið sé að sogast ofan í niðurfallið og allir nemendurnir og kennarar með þá verður fjör að Húsafelli.
:: HauXon mánudagur, janúar 17, 2005 [+] ::
...
|
|
[::..Þóknanlegt..::]

Danskir teiknarar!

Jón Baldvin

Max Headroom

Seona Dancing

Türkmenbashy


STÓRVAL
[::.Tvífarinn.::]

Mugi jón Hafstein-son

William H. Macy
Hauxon á MSN
|