| Vikulistinn (halogen) |
| - - - - - - - - - - |
|
| Vikulistinn (gmarius) |
| - - - - - - - - - - |
|
| Vikulistinn (hauxon) |
| - - - - - - - - - - |
|
| Vikulistinn (kristallur) |
| - - - - - - - - - - |
 |
| Vikulistinn (Valgarduz) |
| - - - - - - - - - - |
| [::..Eldra stuff..::] | |
|
|
:: sunnudagur, janúar 09, 2005 ::
Það er hefð fyrir því að gefa út lista yfir hitt og þetta eftir hvert ár svo að hér kemur listi yfir bestu plötur sem smugu inn fyrir mín eyru á árinu, ekki í neinni sérstakri röð. Ég er svo mikið dottinn út úr músíkinni að ég get ekki einu sinni birt 5 plötur.
Interpol - Antics
Ein besta plata sem ég heyrt í nokkur ár. Verður betri með hverri hlustun. Hljómar stundum eins og Joy Division hafi gert "gleði"plötu. ...Rosemary...
Kings og Lyon - Aha Shake Heartbreak
Plata sem vinnur á. Betri en fyrsta platan sem var frábær. Skemmtilegt rokk og ról sem sándar gamalt en reynir ekki of mikið að vera "hip".
Hjálmar - Hljóðlega af stað
Fyrstu viðbrögð voru "Djísös!.. hvað er þetta eiginlega?". Svo hlustar maður áfram og fattar að þessir gaurar hljóta að vera úthverfir blökkumenn. Ég stend mig af því að spila Hjálma ótrúlega oft. Jamm og jamm og jú!!
Mugison - Mugimama is this monkey music?
Hljómar stundum eins og Portishead spilað afturábak og þess á milli eins og Beck eða Will Oldham eða eitthvað. Fínn diskur sem ég ætti að hlusta meira á. Mugison er partur af batnandi tíð í íslenskri músík.
Ég las eina bók í fyrra utan námsbókana og hún kom ekki einusinni út 2004. Hún var góð.
Hvaða myndir voru nú aftur í bíó í fyrra? Er ekki búinn að sjá hina "umdeildu" Eternal sunshine enn þá. American Splendor var góð og City of God frábær man ekki eftir fleirum góðum.
Well thats it folks!
:: HauXon sunnudagur, janúar 09, 2005 [+] ::
...
|
|
[::..Þóknanlegt..::]

Danskir teiknarar!

Jón Baldvin

Max Headroom

Seona Dancing

Türkmenbashy


STÓRVAL
[::.Tvífarinn.::]

Mugi jón Hafstein-son

William H. Macy
Hauxon á MSN
|