| :: welcome to Ríkir hf :: bloghome | Viltu vera memm? :: | ||
|
:: fimmtudagur, janúar 20, 2005 :: Hér er mál sem mér hefur verið hugleikið annars lagið undan farin ár. Nú hafa skagamenn oft verið pirraðir út í "minni" lið sem ákveða að klæðast gulum treyjum oftast reyndar við bláar buxur. Oftar en ekki hafa verið á bilinu 2-4 lið af 10 í úrvalsdeildinni í gulum treyjum. Leiftur, Grindavík, KA og meira að segja voru Keflavík var einu sinni í gulu og svo auðvitað Skagamenn. Allir í þessum ömurlegu gulu treyjum. Ef við lítum aðeins út fyrir landssteinana, hvaða topp félagslið klæðast gulum treyjum eða svörtum buxum? Skagamönnum hefur oftar en ekki gengið betur í varabúningunum og spurningin er hvort að það sé ekki kominn tími á að skipta þessu glataða sjálflýsandi ógeðislit út? Flest lið sem eitthvað vit er í spila í rauðu, og annað hvort hvítum stuttbuxum eða rauðum ef þeir þurfa að sýnast hærri. Valsarar eru hvort eð er ekki neitt númer í íslenskri knattspyrnu lengur og er því tækifærið fyrir Skagann að ná litnum og vera liðið sem er þekktast á landinu fyrir að klæðast rauðu. Rauði liturinn er svo mikið hentugri fyrir áhorfendur sem þurfa ekki annað en að eiga einhverja flík í rauðu til þess að sýna stuðning sinn í verki. Enda hefur þessu viðbjóðarlitur sem Skaginn klæðist valdið því að stuðningsmenn liðsins sjást ekki í stúkunni. Úti á vellinum fá leikmenn ógleði er þeir sjá hvorn annan og vilja helst gefa á andstæðing. Það er kominn tími á að gefa þessum hallærislit frí og klæðast lit eins og "alvöru" fótboltalið!!
|
[::..Þóknanlegt..::]
![]() Danskir teiknarar! ![]() Jón Baldvin ![]() Max Headroom ![]() Seona Dancing ![]() Türkmenbashy ![]() ![]() STÓRVAL [::.Tvífarinn.::] ![]() Mugi jón Hafstein-son ![]() William H. Macy Hauxon á MSN | |
|
|
||