:: welcome to Ríkir hf :: bloghome | Viltu vera memm? ::
Vikulistinn (halogen)
- - - - - - - - - -
Vikulistinn (gmarius)
- - - - - - - - - -
Vikulistinn (hauxon)
- - - - - - - - - -
Vikulistinn (kristallur)
- - - - - - - - - -
Vikulistinn (Valgarduz)
- - - - - - - - - -
[::..Eldra stuff..::]

  :: þriðjudagur, janúar 18, 2005 ::

Jæja nú rennur blóðið í æðum Ríkra :-) Ástæða skrifanna var ekki að vera með dylgjur (nema að litlu leiti) heldur að fá svar sérfræðings Ríkra á því hversvegna 80 mín kennslu stundir er eru svona hentugar og ef til vill rök sem bæði mæla með og á móti breytingu á skólakerfinu í þá áttina. Þrátt löng bréf hefur þessari spurningu ekki verið svarað. Þess í stað eru menn gagnrýndir og sakaðir um vanvit fyrir að spyrja. Þetta snýst ekkert um vantraust á kennara eða ekki einu sinni um vantraust á skólakerfið. Málið snýst einungis um það að geta fært rök fyrir þeirri aðferðarfræði sem kosið er að nota við kennsluna. Svör eins og "Ég er sérfræðingur og mér er fyllilega treystandi til að meta þetta." Er svar við annarri spurningu sem var ekki borin upp og satt að segja fjarri tilgangi póstanna.

Það þarf ekki háskólamenntun í uppeldisfræðum til þess að hafa rétt til að velta fyrir sér þeim aðferðum sem notaðar eru við kennslu barnanna okkar. Það væri nær að fleiri foreldrar myndu nenna að velta þessu fyrir sér. Hér með skora ég á kennara að fagna áhuga foreldra á kennsluaðferðunum í stað þess að bíta til baka. Það mun alltaf vera einhver sem er gagnrýnir á leiðinlegan hátt og skiptir þá engu máli á hvaða starfsvettvangi það er. Eina leiðin til þess að eiga við slíkt er að fara ekki niður á sama level (það þarf þó ekki að taka fram að Ríkir eru allir á sama levelli og geta því sagt það sem þeir vilja við hvern annan).

Frám mínum bæjardyrum er þessi umræða aðeins æfing í rökfræðum fyrir Húsafellið. Sem vitringar fyrri tíma berjumst við Ríkir með orðum og hefur þessi umræða verið hörð en hin fínasta. Svo er það nú bara prýðilegt að umræða um uppeldis og skóla mál skuli vera lokið fyrir förina því hún hefur óþarflega oft verið rædd á vettvandi Ríkra að mínu mati. Við getum því verið einn allsherjar jákór í sveitinni og þreytt hvort annað á fróðleik sem vér erum sammála um.

Það er reyndar alveg rétt hjá þér að forritarar vista allt of sjaldan og nemur þjóðhagslegt tap af þessum völdum milljörðum króna. Svo er nú ekki svo langt síðan að auðmaður þurfti að koma flugmönnum og áhöfn til bjargar því að flugvélin var bensínlaus. Og að lokum þá er það rétt, það mætti nota rauðan meira í auglýsingar. Fyrirtæki vilja oft nota bláan í auglýsingarnar sínar af því að þau halda að blár sé traustvekjandi. Af þeim völdum er rauður ekki oft notaður í auglýsingar. Af þessu sannast að orð Valgarþuszar eru lög og því til einskis að mótmæla!!

I rest my case.

:: HauXon þriðjudagur, janúar 18, 2005 [+] ::
...
|

[::..Þóknanlegt..::]



Danskir teiknarar!



Jón Baldvin



Max Headroom



Seona Dancing



Türkmenbashy






STÓRVAL


[::.Tvífarinn.::]


Mugi jón Hafstein-son


William H. Macy
Hauxon á MSN

This page is powered by Blogger. Isn't yours?