:: welcome to Ríkir hf :: bloghome | Viltu vera memm? ::
Vikulistinn (halogen)
- - - - - - - - - -
Vikulistinn (gmarius)
- - - - - - - - - -
Vikulistinn (hauxon)
- - - - - - - - - -
Vikulistinn (kristallur)
- - - - - - - - - -
Vikulistinn (Valgarduz)
- - - - - - - - - -
[::..Eldra stuff..::]

  :: mánudagur, janúar 17, 2005 ::

Mér sýnist Fjelagar að við séum komnir með eitt áríðandi mál á dagskrá hjá okkur, á fundinum góða.

Það er gerð nýrrar viðmiðunarstundaskrár og aðalnámsskrár fyrir grunnskóla landsins. Ekki virðist vera vanþörf á. Það ætti að reynast Ríkum létt verk, þar sem innan hópsins er að finna mikinn fjölda sérfræðinga og "sérfræðinga" á uppeldis- og kennslusviði. Ég legg til að við losum um þessi höft sem virðast vera að sliga alla skóla landsins um leið og við gefum kennurum tækifæri á að setja upp sína einkaskóla þar sem þeir geta beitt þeim nýungum og kenningum sem þeir telja bestar fyrir börn landsins. Þessi miðstýring skólakerfisins frá leppstofnun okkar, sveitarfélögum, virðist ekki vera að skila því sem við töldum að það myndi gera. Fjölgum skólunum og aukum úrvaldið.

Síðan legg ég til að auglýsingastofa Ríks taki að sér öll kynningarmál fyrir hagsmunasamtök kennara. Það er greinilegt af skrifum Valgarduz að kynningarmál þeirra eru í algjörum molum. Það er ekki nóg með það að meiri hluti þjóðarinnar finnist að kennarar hafi of há laun og séu bara alltaf í verkfalli sem standi í margar vikur. Heldur eru viðhorf almennings til þess sem fer fram í skólanum víst ekki í neinu samræmi við það sem þar fer raunverulega fram. Ef satt reynist þá er kennurum mikill vandi á höndum.

Hins vegar má vera að þær aðferðir sem kennarar þessa lands beita til að halda nemendum sínum í stólum í 80 mínútur, séu ekki þær sömu og foreldrar þessara barna telja bestar við uppfræðslu þeirra. Þeir [foreldrarnir] bera víst ennþá ábyrgð á uppeldi barna sinna. Og ég veit ekki til þess að því hafi verið breytt. Eða hvað?

Þetta skiptir hins vegar ekki máli þegar Ríkir hafa kveðið upp úr með það hvað sé best og hvernig eigi að gera hlutina. Og hana nú!

:: Gmaríus mánudagur, janúar 17, 2005 [+] ::
...
|

[::..Þóknanlegt..::]



Danskir teiknarar!



Jón Baldvin



Max Headroom



Seona Dancing



Türkmenbashy






STÓRVAL


[::.Tvífarinn.::]


Mugi jón Hafstein-son


William H. Macy
Hauxon á MSN

This page is powered by Blogger. Isn't yours?