| Vikulistinn (halogen) |
| - - - - - - - - - - |
|
| Vikulistinn (gmarius) |
| - - - - - - - - - - |
|
| Vikulistinn (hauxon) |
| - - - - - - - - - - |
|
| Vikulistinn (kristallur) |
| - - - - - - - - - - |
 |
| Vikulistinn (Valgarduz) |
| - - - - - - - - - - |
| [::..Eldra stuff..::] | |
|
|
:: mánudagur, janúar 10, 2005 ::
Verð að taka þátt í þessum topp-5 leik með mínum hætti. Reyndar er ég enn meira út úr korti í tónlistinni er Hauxon. Mín diskakaup snúast yfirleitt um að vinna upp gamla tónlist þannig að ég enda alltaf með því að vera pínulítið átdeited í músíkkinni. Þannig var besti diskurinn sem ég eignaðist á árinu 2004 "O" með Damien Rice en hann telst örugglega ekki með vegna útgáfuársins 2003.
Ég ætla hins vegar að birta hér 5 bestu bíómyndir ársins 2004:
Nr.1: KILL BILL vol.2. Djöfulsöskrandibrilliansoggargandisnilld!!!!! Tarantino er kóngurinn og Uma er drottning hans. Blastaði þessa í nýja heimabíóinu (jólagjöfinni) um daginn og boyóboy.... þvílík unun...þvílík upplifun...þvílík djöfulsöskrandibrilliansoggargandisnilld!!!
Nr.2: MONSTER. Einhvern veginn í fjáranum fékk maður samúð með þessari snarvitlausu, morðóðu og forljótu trukkalessu. Það bendir bara til þess að það sé eitthvað meira en lítið spunnið í þá sem gerðu þessa mynd. Alveg frábær.
Nr.3: BIG FISH. Algjört æði - sjaldan verið svona GAMAN að horfa á eina mynd frá upphafi til enda. Ógeðslega skemmtileg í sínum fantastíska súrrealisma.
Nr.4: STARSKY & HUTCH. Ben Stiller er bara geðveikt fyndinn náungi. Hinn þarna Wilson svosem ágætur líka en Stiller er að mínu mati fyndnasti maðurinn í hollívúdd þessa dagana og þessi snilldarmynd var sú besta af þremur myndum með honum á síðasta ári (hinar Dodgeball og Along came Polly - ótrúleg afköst hjá kallinum).
Nr.5: SHREK2. Einn mesti gróðinn við að eiga börn er að komast á svona myndir í bíó án þess að fá á sig einhverjar niðurlægjandi spurningar eða augngotur. Ég held svei mér þá að foreldrarnir í bíó hafi hlegið meira en börnin, enda húmorinn alveg ótrúlega snjall og beinskeittur með vísanir í allar mögulegar áttir. Gosi að reyna að ljúga sig út úr G-strengs klandrinu er tvímælalaust hápunktur myndarinnar, ég meina hvernig á Gosi að geta logið með þetta nef??
Og að lokum; vonbrigði ársins: LOST IN TRANSLATION (Geeeeiiiiiisssp!!). Bill Murray er á síðasta séns hjá mér eftir þessi leiðindi og einnig fyrir að taka þátt í alveg ótrúlega lélegri mynd um Garfield. Ég meina -Garfield!! Hvernig er hægt að klúðra svo frábærum efnivið í einhverja innantóma froðumynd.
Tókuð þið eftir því að ég fór óvart að tala um Garfield í staðinn fyrir Lost in Translation. Segir nú soldið um hvað sú mynd var leiðinleg (Geeeeeiiiiiissssp).
Respect!
:: Valgarduz mánudagur, janúar 10, 2005 [+] ::
...
|
|
[::..Þóknanlegt..::]

Danskir teiknarar!

Jón Baldvin

Max Headroom

Seona Dancing

Türkmenbashy


STÓRVAL
[::.Tvífarinn.::]

Mugi jón Hafstein-son

William H. Macy
Hauxon á MSN
|