:: welcome to Ríkir hf :: bloghome | Viltu vera memm? ::
Vikulistinn (halogen)
- - - - - - - - - -
Vikulistinn (gmarius)
- - - - - - - - - -
Vikulistinn (hauxon)
- - - - - - - - - -
Vikulistinn (kristallur)
- - - - - - - - - -
Vikulistinn (Valgarduz)
- - - - - - - - - -
[::..Eldra stuff..::]

  :: þriðjudagur, janúar 18, 2005 ::

Væri fróðlegt að heyra skoðanir Ríkra á neðanskráðu:

Forritarar, og þá sér í lagi vef-forritarar, eru ekkert annað en upphafnir tölvunördar sem á grundvelli hraðsoðinnar þykjustumenntunar telja sig geta sett sig á einhvern hærri hest en venjulegir tölvuáhugamenn. Ég veit ekki betur en að búið sé að gefa út ýmis forrit, eins og til dæmis Microsoft FrontPage, sem geri hverjum sem er kleift að útbúa og hanna sína eigin vefi með engri fyrirhöfn. Þessir blessuðu forritarar hafa bara engu að bæta við það sem venjulegur meðaljón getur gert í heimilistölvunni sinni. Svo fara þessir menn um víðan völl og rembast við að "selja þjónustu sína" fyrirtækjum sem allt eins vel gætu ráðið hvaða menntaskólanema sem er til að "hanna" vef fyrirtækisins á mun skemmri tíma og á einfaldari hátt en þessir sjálfskipuðu sérfræðingar á útseldu tímakaupi.

Svo eftir að þessir besservisserar eru búnir að setja upp sína dálka og reiti í einhverju upphöfnu FrontPage-forriti, þá koma svokallaðir "grafískir hönnuðir" til að toppa allt saman, ákveða hvernig draslið á að vera á litinn og rukka fimmtíuþúsundkall fyrir.

Að því gefnu að forritarinn hafi munað eftir að seifa.

Lifi FrontPage!!

:: Valgarduz þriðjudagur, janúar 18, 2005 [+] ::
...
|

[::..Þóknanlegt..::]



Danskir teiknarar!



Jón Baldvin



Max Headroom



Seona Dancing



Türkmenbashy






STÓRVAL


[::.Tvífarinn.::]


Mugi jón Hafstein-son


William H. Macy
Hauxon á MSN

This page is powered by Blogger. Isn't yours?