:: welcome to Ríkir hf :: bloghome | Viltu vera memm? ::
Vikulistinn (halogen)
- - - - - - - - - -
Vikulistinn (gmarius)
- - - - - - - - - -
Vikulistinn (hauxon)
- - - - - - - - - -
Vikulistinn (kristallur)
- - - - - - - - - -
Vikulistinn (Valgarduz)
- - - - - - - - - -
[::..Eldra stuff..::]

  :: þriðjudagur, ágúst 30, 2005 ::


Jæja þá er það Franz Ferdinand á föstudaginn. Ég er búinn að hlusta plötuna þeirra í spað undanfarið og komst að því að þetta er hin besta ryksugutónlist.

Nú verð ég sennilega að útskýra meiningu mína því hugtakið ryksugutónlist hljómar auðvitað frekar niðurlægjandi svona í fyrsta kasti. Mín meining er þó sú, að góð ryksugutónlist er þess eðlis að hún nær að lyfta anda manns og geði upp úr dýpstu öldudölum mannlegrar niðurlægingar, til dæmis þeim allsherjar leiðindum og andlega niðurbroti sem maður upplifir við afþurrkanir, skúringar og ryksugun. Góð ryksugutónlist miðlar slíkri lífsgleði og krafti að manni finnst lífið þess virði að lifa því, þrátt fyrir allar leiðinlegu kvaðirnar sem því fylgja (NotaBene ryksugun).



Hingað til hefur ryksugutónlist mín að mestu samanstaðið af Violent Femmes, Pixies (þá helst Doolittle) og gömlum Police plötum. Nú um helgina komu Franz Ferdinand sterkir inn í þennan flokk og redduðu geðslagi undirritaðs í gegnum STÓR-haust-hreingerningu ársins.

Hlakka til að hitta þá.

:: Valgarduz þriðjudagur, ágúst 30, 2005 [+] ::
...
|
  :: miðvikudagur, ágúst 24, 2005 ::
Vil óska Halogeninu til hamingju með daginn um daginn. 33 ár er stórafmæli samkvæmt dagatali hobbita og þó að Halogen sé ekki mikið fótloðinn fagna Ríkir þessum stór-tímamótum! Húrra, húrra, húrraaaaa!!!

Þar sem nagandi samviskubit yfir gleymzkunni á fæðingardegi Heilós hefur knúið mig til skrifta vil ek nota tækifærið og senda kjærar þakkir fyrir þær höfðinglegu móttökur er vér hjúin fengum hjá skógarbóndanum á Hreimsstöðum og frú hanns. Voru veitingar hinar glæsilegustu og svefnaðstaða til fyrirmyndar. Sýndi óðalsbóndinn stórfenglega takta er hann gólaði til trjánagandi rollanna og spratt á eftir þeim eins og skosk-íslensk sveitatík unz þær flæktu sig í gaddavírsgirðingu í ofboðsflótta. Nú hefur það sannast að flugmaðurinn er bóndi af lífi og sál. Enda ekki allir sem þekkja rollurnar á næsta bæ með nafni!

:: HauXon miðvikudagur, ágúst 24, 2005 [+] ::
...
|
  :: miðvikudagur, ágúst 17, 2005 ::
Jæja, fékk mér beyglu með Lee Ranaldo í hádeginu. Thurston kom svo og heilsaði upp á okkur en ákvaða að fá sér núðlur á Deli. Beyglan var mjög góð, með rjómaosti sólþurrkuðum tómötum, skinku og kjúklingi. Lee fékk sér méð Gouda osti.

:: HauXon miðvikudagur, ágúst 17, 2005 [+] ::
...
|
Úff!

:: HauXon miðvikudagur, ágúst 17, 2005 [+] ::
...
|
  :: þriðjudagur, ágúst 16, 2005 ::

Mæting Eggert Skata fjórir!

Fáum okkur öl og pizzu fyrir hljómleika Hljóðæzkunnar. Öllum Ríkum og velunnurum boðið til leiks. Skemmtilegar popp-punkts getraunir og lagabútar! Dólgslæti leyfileg. Eftir kl. 17:00 GMT

:: HauXon þriðjudagur, ágúst 16, 2005 [+] ::
...
|
  :: þriðjudagur, ágúst 02, 2005 ::

Hérna.... svo maður hafi það nú á hreinu: Hvort erum við að fara á Sonic Youth þann 16. eða 17. ágúst????

:: Valgarduz þriðjudagur, ágúst 02, 2005 [+] ::
...
|
  :: mánudagur, ágúst 01, 2005 ::
Halló halló
Jæja þá er maður búinn að sjá U2. Það var mikil upplifun, þó þeir séu náttúrulega enginn S.H Draumur. Anyway.....mesta furða hvað þeir spiluðu af gömlu lummunum miðað við að þeir eru að prómótera nýja plötu. Fór svo á snilldar metal festival daginn eftir. Þar voru mest finnskar og sænskar þungarokkshljómsveitir í mátulega mikilli tímaskekkju. Þó voru 2 brilliant bönd. Sumsé Apocalyptica og Rammstein.
Svona var mín verslunarmannahelgi..hvað gerðu svo hinir?

:: Halogen mánudagur, ágúst 01, 2005 [+] ::
...
|

[::..Þóknanlegt..::]



Danskir teiknarar!



Jón Baldvin



Max Headroom



Seona Dancing



Türkmenbashy






STÓRVAL


[::.Tvífarinn.::]


Mugi jón Hafstein-son


William H. Macy
Hauxon á MSN

This page is powered by Blogger. Isn't yours?